Morgunblaðið - 15.11.2000, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Héraðsdómur
Norðurlands eystra
TJA greiði
sjómanni um
800 þúsund
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyiinga
hefur í Héraðsdómi Norðurlands
eystra verið dæmt til að greiða sjó-
manni sem starfaði hjá félaginu tæp-
lega 800 þúsund krónur auk dráttar-
vaxta vegna vanreiknaðs aflahlutar
eftir að maðurinn lenti í slysi. Þá var
ÚA gert að greiða 280 þúsund krón-
ur í málskostnað.
Maðurinn starfaði sem vélstjóri á
Svalbak ÞH og slasaðist á leið úr
vinnu sinni í skipinu þar sem það var
í slipp í Akureyrarhöfn. Atvikið átti
sér stað í byrjun nóvember í fyrra og
var maðurinn metinn óvinnufær
fram yfir jól. Hann fór því ekki á sjó
aftur fyrr en eftir áramót.
Forsvarsmenn ÚA ákváðu að vél-
stjórinn fengi hálfan hlut háseta í
síðustu veiðiferð skipins það ár,
þeirri sem hann missti af vegna
slyssins, og 70% hásetahlut auk 20%
aukahlutar vélstjóra í seinni ferð-
inni. Vélstjórinn krafðist þess að fá
greiddan fullan hlut fyrir þessar
veiðiferðir. Þeim kröfum var hafnað
af hálfu ÚA-manna, en Héraðsdóm-
ur Norðurlands eystra hefur nú
dæmt félagið til að greiða manninum
hinn vanreiknaða aflahlut.
---------------
Alþjóðleg
fræði á
íslensku
SIGURÐUR Kristinsson, heimspek-
ingur og lektor við kennaradeild Há-
skólans á Akureyri, flytur fyrirlestur
sem hann nefnir Alþjóðleg fræði á ís-
lensku á degi íslenskrai' tungu, 16.
nóvember. Fyrii-lesturinn verður
fluttur í húsnæði Háskólans á Akur-
eyri í Þingvallastræti og hefst hann
kl. 17ístofu 14.
I fyrirlestrinum fjallar hann um
það hlutskipti íslenskra háskóla-
manna að stunda fræði sín í alþjóð-
legu samhengi en nota samt íslensk-
una í kennslu, umræðum og ýmsum
skrifum sem og í daglegu lífi.
Sigurður er nú í vetur umsjónar-
maður fjamáms í almennum hugvís-
indum og nútímafræðum við Háskól-
ann á Akureyri. Fyrirlesturinn er á
vegum kennaradeildar og bókasafns
Háskólans á Akureyri og eru allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
TRILLIIR
• Léttu þér vinnuna
• Gerðu langar vega-
lengdir stuttar og
þungar vörur léttar
• Sterk plastgrind og
öflug hjól með legum
SOCO trillur
- liprar og léttar -
vogir cru okkarfag -
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
Fjórir Akureyringar gáfu bloö í 50. skipti í Blóðbanka Fjórðungssjúkrahússins
Fengu viður-
kenningu fyrir
traust viðskipti
FJÓRIR Akureyringar bættust í
vikunni í hóp þeirra sem gefið
hafa blóð í Blóðbankanum á FSA
í 50 skipti og eru þeir nú orðnir
tíu að tölu. Þeir Kristján Guð-
mundur Óskarsson, Páll Hlöð-
versson, Björn Jóhannesson og
Eiríkur Eiríksson hittust í Blóð-
bankanum í vikunni, gáfu blóð og
þáðu að launum viðurkenningu
fyrir traust viðskipti við bankann.
Björn sagðist hafa gefíð blóð
reglulega fjórum sinnum á ári
undanfarin tíu ár og það væri al-
veg nauðsynlegt fyrir sig að
losna við blóðið, „annars fæ ég
bara hausverk". Kristján Guð-
mundur sagðist hafa gefið fyrst
blóð árið 1963, „og það hefur ver-
ið hringt eftir blóði jafnt að nóttu
sem degi“. Skráning hófst ekki
fyrr en tíu árum siðar og hann
hefur því vafalaust gefið blóð oft-
ar en fimmtíu sinnum.
Léttari og frískari á eftir
Eiríkur hóf að gefa blóð upp úr
1970 og hann sagði það alveg
nauðsynlegt að losna við blóð að
minnsta kosti þrisvar á ári, „mað-
ur er svo ferskur á eftir“. Páll
gaf fyrst blóð á Siglufirði um
miðjan sjöunda áratuginn en
hann hefur gefið blóð víða, m.a. í
Danmörku. „Þetta er alveg bráð-
nauðsynlegt, maður er allur létt-
ari og frískari og á einnig auð-
veldara með að vakna á
morgnana."
Vilborg Gautadóttir, deildar-
stjóri Blóðbankans á FSA, sagði
að bæjarbúar væru mjög jákvæð-
ir í garð bankans en það væri
vissulega mikilvægt að eiga að
Morgunblaðið/Kristján
Blóðgjafarnir fjórir í Blóðbanka FSA. Eiríkur Eiríksson liggur á bekkn-
um en við hlið hans standa f.v. Páll Hlöðversson, Björn Jóhannesson og
Kristján Guðmundur Óskarsson.
menn eins og þá fjórmenninga,
sem voru að gefa blóð í 50. skipti.
Hún sagði að yfirleitt væri góð
innstæða í bankanum en þó kæmi
fyrir að það stæði tæpt - því væri
þá bjargað með öðrum leiðum.
Vilborg sagði að íbúar í nágrenni
Akureyrar hefðu einnig reynst
vel. „Við fórum til Húsavíkur ný-
lega og þar komust færri að en
vildu.“ Þá sagði Vilborg að nem-
endur í 3. bekk MA hefðu jafnan
komið til að gefa blóð, sú heim-
sókn tengdist. líffræðikennslu í
skólanum, og hluti nemenda héldi
áfram sem blóðgjafar.
Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri gefur út bókina Líf í Eyjafírði
Náttúra og menning Eyja-
Qarðar í máli og myndum
Morgunblaðið/Kristján
Bragi Guðmundsson, dósent við kennaradeild Háskólans á Akureyri,
ritstjóri bókarinnar Líf í Eyjafirði.
LÍF í Eyjafirði nefnist bók sem
Rannsóknarstofnun Háskólans á
Akureyri hefur gefið út en í henni er
fjallað um náttúru og menningu
Éyjafjarðar í máli og myndum á
nýstárlegan hátt. Trausti Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri RHA, sagði
að þetta væri stærsta útgáfuverk-
efni sem stofnunin hefði ráðist í, en
bókin er yfir 460 síður og prýdd um
300 litmyndum. Ritstjóri er Bragi
Guðmundsson, dósent við kennara-
deild Háskólans á Akureyri.
Útgáfa bókarinnar var kynnt á
fundi í hátíðarsal háskólans en þar
gat Þorsteinn Gunnarsson rektor
þess að bókin væri gefin út af mikl-
um stórhug og metnaði. Hún höfðaði
til breiðs hóps; almennings, fræði-
manna, kennara og nemenda svo
dæmi væru tekin.
Aldamótanefnd Akureyrarbæjar
stuðlaði að því að bókin varð að
veruleika og sagði Þröstur Ás-
mundsson, formaður hennar, bókina
vera dæmi um merkilega frum-
kvöðlavinnu sem lengi myndi
standa. Bókin væri jákvætt innlegg í
byggðastefnu, hún efldi söguvitund
manna og vitnaði um innri styrk
þessa samfélags sem hún fjallaði
um.
Að auka þekkingu og
skilning á Eyjafirði
Bragi Guðmundsson, ritstjóri
bókarinnar, sagði megipmarkmið
hennar að auka þekkingu o'g skilning
á Eyjafirði, lífríki fjarðar og lands og
menningu héraðsins. Hún væri
gagnleg þeim sem við fjörðinn búa
og vilja eiga og nota rit þar sem þeir
geti á einum stað flett upp margvís-
legum upplýsingum og fróðleik.
Bókin gagnaðist einnig þeim sem
annars staðar búa en vilja kynnast
Eyjafirði betur. „Bókinni er ætlað að
kenna fólki að lesa á sitt nánasta um-
hverfi, það má segja að þarna sé á
ferðinni gamla góða átthagafræðin í
nýjum búningi. Átthagafræðin féll
úr tísku í skólakerfinu og skólarnir
hafa verið grandalausir um þessi
efni síðustu ár. Með þessari bók
leggjum við þeim í hendur tæki sem
þeir geta notað við þess háttar
kennslu. Ég vona að sá tilgangur
bókarinnar náist að fólk fái ást á
sínu nánasta umhverfi, lífríki þess
og mannlífi," sagði Bragi.
Meðal viðfangsefna bókarinnar
eru landlýsing, ferskvatns- og sjáv-
arlíf, örverur, lífverur í mold, flóra
Eyjafjarðar og fána, brugðið er upp
myndum af breytingum á húsakynn-
um og kaflar eru um sjónmenntir,
muni og minjar, bókmenntir og bú-
setubreytingar. Höfundar kaflanna
eru 22 talsins.
Bókin hefst á kafla um grenndar-
fræði, fræða- og kennslusvið sem
þróað hefur verið og notað við
kennslu í Háskólanum á Akureyiú á
undanförnum árum. Grenndarfræði
er aðferð til að auka meðvitund um
samspil náttúru og menningar og
styrkja með því sjálfsvitund ein-
staklinga og þjóðfélagshópa, t.d.
þeirra sem byggja tiltekin héruð. I
lokakafla bókarinnar er greint frá
vettvangsferðum með ólíka aldurs-
hópa, en sá kafli nýtist ekki einvörð-
ungu við vettvangsferðir með ólíka
aldurshópa heldur hvarvetna. Þann-
ig er bókinni ætlað að benda á leiðir
til að njóta náttúru og menningar og
vinna markvisst með næsta um-
hverfi í kennslu og öðru fræðslu-
starfi. Hún er þannig jöfnum hönd-
um almennt fræðslu- og skemmtirit
og mikilvægt fagrit á mörgum
fræðasviðum sínum.
„Rúntur-
inn“ að
opnast
FRAMKVÆMDIR í miðbæ Akur-
eyrar eru komnar á lokastig en
undanfarna mánuði hafa vegfar-
endur átt erfitt, um vik enda ýms-
ar akstursleiðir verið meira og
minna lokaðar.
Nú síðast hafa staðið yfir fram-
kvæmdir í Strandgötu, milli
Geislagötu og Skipagötu en sam-
kvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er stefnt að því að opna
þann kafla fyrir umferð
í dag, miðvikudag. Verk-
ið hefur tafist af ýmsum
ástæðum en nú sér loks
fyrir cndann á því.
Verslunareigendur og þá
ekki síst ungmennin sem
aka rúntinn svokallaða
ættu því að geta tekið
gleði sína á ný.
Héðinn Björnsson hjá
Garðtækni var í óða-
önn að púsla saman
litlum steinum í gang-
stéttina frarnan við
Nætursöluna við
Strandgötu í gær-
morgun.