Morgunblaðið - 01.12.2000, Side 58

Morgunblaðið - 01.12.2000, Side 58
58 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2000 T------------------------- MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ við nutum oft og líkulega. Hún hafði hjartað á réttum stað og kannski skiptir það mestu máli. I þessum máttlitlu orðum við mik- inn missi, viljum við systkinin og allt okkar fólk biðja góðan guð að blessa bömin hennar og bamabömin og alla þá sem nú kveðja vininn sinn látna. Þorgeir bróðir okkar hefur misst heil- steyptan lífsförunaut, það var engin feyra í steypunni og efnið var gull. En hann á auðlegð í sínu fólki og ástrík- um minningum. Hann er ekki einn. Undarleg er sú tilfinning, þegar sorgin sker og söknuðurinn nagar, að finna til þakklætis til forsjónarinnar, sem nú tók hana frá okkur, fyrir það sem hún hafði áður gefið. Fyrir nokkmm áram barðist Una við krabbamein og það varð ströng og ill- víg barátta. En hún hafði sigur og þannig var okkur gefið átta ára ríkt líf með henni. En nú kom að því að greiða þurfti reikninginn. Kannski var það afleiðing þeirrar hörðu lækn- ismeðferðar sem hafði gefið okkur ár- in góðu er nú tók sinn toll. Hjarta hennar gaf sig og nú hefur hún kvatt þennan heim, en enginn fer allur. Gengin spor gæfukonu eins og henn- ar halda áfram að bera arð í niðjum hennar og lífsstarfi öllu. Þeir verða að missa sem eiga, það hafa þau reynt sem áttu Unu Halldórsdóttur að, sem eiginkonu og móður, tengdamóður og ömmu. Það er huggun harmi gegn að eftir lifir minningin um góða konu og að mannkostir hennar hafa gengið í áif til afkomenda hennar. Þannig reynist lífið jafnvel dauðanum yfir- sterkara þrátt fyrir allt og alit. Steindór Hjörleifsson. Mig langar til að minnast með nokkram orðum frænku minnar og vinkonu Unu Halldórsdóttur. Það fyrsta sem kemur upp í hugann era margir góðir eiginleikar hennar svo sem tryggð, umhyggja, greiðvikni, trúrækni, glettni og jafnvel smá- sþríðni. Við ólumst upp á ísafirði og byrjuð- um að vinna á sjúkrahúsinu 16 og 17 ára gamlar og bjuggum þá saman í herbergi á sjúkrahúsinu. Við áttum frí um miðjan daginn og fóram þá nið- ur í rækjuverksmiðjuna í Suðurtanga og pilluðum rækjur í akkorði. Markmiðið var að safna peningum fyrir skólavist. Á þessum tíma tókum við mikinn þátt í skátastarfi á ísafirði. Sérstak- lega er mér eftirminnileg ferð okkar á landsmót skáta sem haldið var á Þingvöllum 1948. Það var mikið ævin- týri því mörg okkar höfðu ekki komið suður áður. Handboltinn átti stóran þátt í lífi okkar á þessum tíma svo og skíðaferðir og fleiri íþróttir. Leið okkar lá svo suður í sæluna til að víkka sjóndeildarhringinn.Við fór- um að vinna á vöggustofu. Við æfðum handbolta með Val í Hálogalandi og kynntumst þar mörgum góðum völs- uram og stelpumar komu svo í vin- áttuleik til Isafjarðar sumarið eftir, en slíkar heimsóknir vora ekki al- gengar um miðj a öldina. Aftur héldum við heim til ísafjarð- ar og í vinnu á sjúkrahúsinu. Við höfð- um nefnilega fengið bréf upp á það að við gætum hafið nám í Hjúkranar- kvennaskóla íslands og við ætluðum að vera vel undir það búnar. Þegar til kom var Unu ætlaður annar skóli í líf- inu, en ég hygg að sú reynsla og þjálf- un sem hún fékk í margra ára starfi á sjúkrahúsinu hafi komið sér vel seinna á lífsleiðinni. Hún hitti Geira sinn og fór síðan í húsmæðraskólann á Isafirði. I framhaldi af því stofnuðu þau síðan heimili og eignuðust tvö yndisleg böm. Una og Geiri vora miklar félags- verur og lögðu víða hönd á plóginn í félagsstarfi á Isafirði og einnig hér syðra eftir að leið þein-a lá hingað. Þau áttu marga félaga og vini. Tengslin milli okkar rofnuðu aldrei þótt minn starfsvettvangur væri hér syðra en hennar lengst af fyrir vest- an. Kæra vinkona og frænka. Eg þakka þér margra áratuga tryggð og vináttu sem aldrei bar skugga á. Geiri minn og íjölskylda og aðrir ættingjar og vinir. Við Húnbogi biðj- um góðan guð að gefa ykkur styrk í sorginni. Erla Ingadóttir. Góð vinkona er fallin frá. Una Hall- dórsdóttir kvaddi þetta líf sunnudag- inn 5. nóvember sl. Það var erfitt að trúa því Ávallt viðbúin vora orðin og takmarkið hennar Unu okkar elsku- legu vinkonu, en við voram ekki „við- búin“ því að kveðjustund væri svo nærri og að hún Una verði ekki á lengur á meðal okkar. Una bar það með sér að hún var af dugmiklu og góðu fólki komin, fædd í faðmi vestfirskra fjalla stórbrotnu umhverfi þar sem fjöllin gnæfa með stóram og stundum dimmum klettum sem gefa mikla fegurð er sólin gyllir, spegilsléttur Pollurinn töfrar staðinn umkringdum fjallahringnum. í þessu umhverfi sem hún unni svo mjög fæddist hún og ólst upp, hér stofnaði hún heimili sitt með elskulegum eig- inmanni sínum, hér á Isafirði fæddust börnin þeirra Elisabet og Halldór. Síðar fluttust þau til Reykjavíkur vegna lasleika Unu þar sem auðveld- ara var að ná til sérfræðinga. Una var Ijúf og góð kona, hún var hress og vildi hafa gleðina í fyrirrúmi en ákaf- lega viðkvæm ef hún vissi af erfiðleik- um vina og vandamanna. Heimili hennai- og Geira var fallegt þar var allt svo akkúrat eins og Una, þau vora samhent hjón, það var gott að sækja þau heim, vinátta og tryggð frá Isa- fjarðaráranum var ekki rofin hún var alltaf til staðar þar var traust og tryggð. Við vinimir sem enn eram hér á Isafirði og minnumst nú elsku- legrar vinkonu eigum öll svo góðar og hlýjar minningar sem leita á hugann eftir margra ára vináttu og samvera- stunda. Þær minningar era dýrmæt- ur fjársjóður sem gott er að ylja sér við, við arineldinn. Við giftum okkur öll um svipað leyti stofnuðum heimili - börnin fæddust, nóg var að gera, - vinafund- ir vora margir, þeir gáfu gleði, - en margai’ stundir vora til að hjálpa og rétta hendi ef eitthvað stóð til. Saumaklúbburinn okkar var sér- stakur hann var ekki síður fyrir eigin- menn okkar sem alltaf mættu. Þefr spurðu hvar er klúbburinn í kvöld, hvar eigum við að mæta, - þar vora miklar gleðistundir, við vinkonumar pijónuðum eða saumuðum þar til strákarnir mættu í klúbbinn en þá vora að sjálfsögðu snæddar góðar veitingar eins og vera ber við slík tækifæri, en það var ósjaldan sem bragðið var á leik s.s. leika bókaheiti sem gert var af mikilli snilld og gleymist seint eða þá margir aðrir leikir s.s. aumingja kisi, - það var reyndar aðeins einn úr hópnum sem fékk það hlutverk, - allar þessar stundir era okkur kærar það var svo margt sem við fundum upp til að skemmta okkur við, en einnig var hugsað og framkvæmt eitt og annað sem þroskaði hugann og efldi okkur í því hlutverki sem beið okkar í lífinu. Una var stór hlekkur í að efla vináttu og samverastundir. Hún var ekki heilsuhraust síðustu árin, en hún lét það ekki aftra sér frá að vinna að góð- um málum. Hún var traustur og góð- ur félagi þar sem hún kom að félags- málum og trú þeirri ábyrgð sem hún tók að sér hveiju sinni, en atorka hennar og vilji var ekki síður minni við að rækta vináttu við ættingja og vini sem átti hug hennar allan, og við vitum að margir búa að því með þakk- læti í huga. Andlát Unu bar brátt að einkunn- arorð hennar „Ávallt viðbúin", - segja okkur að það eram við ekki alltaf, við voram því ekki viðbúin nú; að kallið væri komið, veram því ,Ávallt við- búin“ að rækta vináttuna eins og hún Una gerði svo ríkulega. Nú þegar við kveðjum Unu er að- ventan að ganga í garð, með sitt mikla kærleiksljós, við biðjum að Ijós kær- leikans verði með og hjá henni Unu okkar og gefi henni frið og lýsi henni leiðina sem hún nú fer. Elsku Geiri, Guð veri með þér, bömum þínum og fjölskyldum þeiira á þessari stundu. Minning Unu er björt og fögur, látið hana létta ykkur sporin. Jónína Einarsdóttir, Guimar Jónsson, Amalía Kr. Einarsd., Hreinn Jónsson.Lára Gísladóttir, Gunnlaugur Jónasson, Geirþrúð- ur Charlesd., Jón B. Guðjónsson. Sá einn sem reynir skynjar best og skilur, hve skin frá vinarhug er gott að finna. I hjarta þér bjó fegurð, ást og ylur, sem innstu lífsins rætur saman tvinna en kærleikurinn er það Ijós á leið sem lýsir skærast mannsins æviskeið (Ág. Böðvarsson.) Kær vinkona mín og skólasystir, Una Halldórsdóttir, er farin í ferðina sem við föram öll að lokum. Hún fór svo alltof snemma, að okkur finnst sem þótti svo afar vænt um hana. Við kynntumst í Húsmæðraskóla Isafjarðar árið 1952 er við hófum báð- ar nám þar. Við fundum fljótt að við áttum margt sameiginlegt og hefur vinátta haldist með okkur alla tíð síð- an og aldrei borið þar skugga á. Una var mikill Isfirðingur og var hún fús að fræða pkkur skólasystur sínar um staðinn. Eg á margar góðar minningar frá foreldrahúsum hennar þar. Brátt kynntumst við svo ástinni hennar, honum Geira. Er skóla lauk fórum við allar hver í sína áttina en við Una skrifuðumst á og fylgdumst vel hvor með annarri. Það er margs að minnast. Mörg sumur komu Una og Geiri í heimsókn tU okkar í sveitina mína í Dölunum. Fyrst þau tvö og síðan með bömin sín Elsu og Dúdda. Oft stóð heyskapur þá sem hæst og mikið að gera í sveitinni. Una, Geiri og krakk- amir vora ávallt tUbúin að taka þátt í verkunum með heimilisfólkinu. Það var gaman að fá þau og þau vora svo sannarlega aufúsugestir á Erpsstöð- um. Eg og fjölskylda mín fóram nokkram sinnum til ísafjarðar og nutum gestrisni Unu og Gefra þar. Þau tóku vel á móti okkur og vildu allt fyrir okkur gera. Eigum við margar góðar minningar úr þessum ferðum. Meðal annars fóram við í útilegu í Hattardal og áttum þar góðar stundfr sem aldrei gleymast. Eftfr að þau fluttu suður var hæg- ara um vik að hittast. Við vorum svo lánsöm að þau bjuggu í nágrenni við okkur. Oft var farið á milli í heim- sóknir. Ævinlega var gott að leita til Unu ef á þurfti að halda. Þau vora ófá skiptin sem ég leitaði til hennar um ráð. Una var mjög handlagin og kom ótrúlega miklu í verk. Oft áttum við samleið í slíkum vangaveltum og var hún ávallt boðin og búin að rétta hjálparhönd. Hyggðu að því helga og háa það hjartanu veitir þér frið. En h'ttu á það lága og smáa og láttu það koma þér við. (MargrétPálmad.) Svo sannarlega lét hún Una vini sína koma sér við. Eg sakna svo margs að sakna þess að geta ekki spjallað við hana í síma. Eg sakna heimsókna, ferðanna í saumaklúbbinn, tilkynningaskyld- unnar sem við höfðum þegar við fór- um eitthvað í burtu. Ég sakna velvilja hennar og vináttu því Una var svo sannarlega vinur vina sinna og gott að eiga hana fyrir vinkonu. Ég hefði svo innilega viljað að við hefðum feng- ið lengri tíma með henni. Ég og fjölskylda mín sendum Geira, Elsu, Dúdda og öllum ástvin- um Unu okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Elsku Unu minni þakka ég alla hennar vináttu og tryggð. Farþúífriði, friður guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt (V. Briem.) Anna M. Albertsdóttir. • Fleiri minningargreinar um Unu Halldórsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. TIL SÖLU Sézstakt tilboð! Alveg nýtt! Frystikistur fyrir heimilið 102 lítra Kostnaðarverð 26.000 kr. (eða 3 þús. kr. á mán.). La Baguette, Glæsibæ, sfmi 588 2759. Lokkur/fjölklippur Til sölu nýr Kingsland-lokkur (fjölklippur), gerð 55xsd (55 tonn). Ertil sýnis hjá Fossberg. Góð greiðslukjör í boði. Vaki DMG hf., sími 461 1122 (Helgi eða Steinar). Styrkir úr Málræktarsjóði Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Mál- ræktarsjóði. Sjóðurinn var stofnaður árið 1991. Samkvæmt skipulagsskrá er tilgangur hans: a) að styrkja fjárhagslega nýyrða- og íðorða- starf í landinu, b) að styrkja fjárhagslega starf orðanefnda sem vinna að þýðingum á tæknimáli eða sér- hæfðu máli, c) að styrkja fjárhagslega útgáfu handbóka og leiðbeininga um málnotkun, d) að styrkja fjárhagslega útgáfu kennsluefnis í íslensku, e) að styrkja fjárhagslega útgáfu orðabóka, f) að veita einstaklingum, samtökum og stofn- unum viðurkenningu fyrir málvöndun og málrækt, g) að styrkja með fjárframlögum hvers konar framtak, sem verða má til þess að markmið- um Málræktarsjóðs verði náð. Umsóknareyðublöð fást hjá framkvæmdastjóra Málræktarsjóðs, Neshaga 16,107 Reykjavík (sími 552 8530), og skal umsóknum skilað þangað fyrir 1. febrúar 2001. MÁLRÆKTARSJÓÐUR NAUÐUNGARSALA Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 1, Isafirði, þriðjudaginn 5. desember 2000 kl. 14.00 á eftirfar- andi eignum: Aðalgata 47, Suðureyri, þingl. eig. Þröstur V. Þorsteinsson og Lífeyr- issjóður Vestfirðinga, gerðarbeiðandi Oddgeir Gylfason. Fjarðarstræti 4, 0201, (safirði, þingl. eicj. Ása Kristveig Þórðardóttir og Jens Magnússon, gerðarbeiðandi Ibúðalánasjóður. Góuholt 8, ísafirði, þingl. eig. Arnar Kristjánsson, gerðarbeiðendur íbúðalánasjóður, ísafjarðarbær og Vátryggingafélag islands hf. Hafnarstræti 15-19, Flateyri, þingl. eig. Lára Thorarensen og Þórður Sævar Jónsson, gerðarbeiðendur Byggðastofnun og Skeljungur hf. Hlíðarvegur 35, 0101, Isafirði, þingl. eig. Magnús Guðmundur Samú- elsson, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður Vestfirðinga. Iðnaðarhús á Flateyrarodda, Flateyri, þingl. eig. S.l. Pétursson ehf., gerðarbeiðendur Byggðastofnun og ísafjarðarbær. Ólafstún 14, Flateyri, þingl. eig. Hjálmur ehf., gerðarbeiðandi íbúða- lánasjóður. Sætún 12, 0202, íb. 7, Suðureyri, þingl. eig. Húsnæðisnefnd ísafjarð- arbæjar, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður. Sætún 8, Suðureyri, þingl. eig. Margrét Hildur Eiðsdóttir og Jón Arnar Gestsson, gerðarbeiðendur (búðalánasjóður og (safjarðarbær. Tangagata 20, ytri endi, 0102, ísafirði, þingl. eig. Hrönn Benónýsdóttir, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag íslands hf. Urðarvegur 24, ísafirði, þingl. eig. Halldóra Jónsdóttir og Eiríkur Brynjólfur Böðvarsson, gerðarbeiðendur (búðalánasjóður og (safjarð- arbær. Sýslumaðurinn á ísafirði, 30. nóvember 2000.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.