Morgunblaðið - 01.12.2000, Page 62

Morgunblaðið - 01.12.2000, Page 62
Þorgrímur Þráínsson hefur skrifað fjölda bóka sem notið hafa feikilegra vinsælda. I Hlæjandi ref kveður við nýjan tón sem kemur á óvart og enn mun fjölga í hinum stóra lesendahópi Þorgríms. Sumarið sem Olfhildur er þrettán ára gerast óvæntir atburðir í lífi hennar þegar hún kynnist indíánastráknum Mússí sem kemur til íslands sem laumufarþegi með skipi. Hann gefur engar skýringar á ferðum sínum og neitar að tala við nokkurn mann. Úlfhildi tekst þó með ýmsum brögðum að vinna trúnað hans og smátt og smátt leysir Mússí frá skjóðunni og segir henni frá því hvers vegna hann flúði til íslands og hvaða ógnir steðja að honum. Friðrik Erlingsson í þessu nýja verki skyggnist Friðrik inn í hugarheim hinna minnstu bræðra, ekki síður en þeirra sem meira mega sín. Á heimili suður með sjó líta ung hjón á það sem köllun sína að veita drengjum sem erfitt eiga uppdráttar samastað og aðhald. Þar grípur hver og einn til sinna ráða til að heyja hina daglegu baráttu; lífsflótti, kaldhæðni og húmor kallast á. Og undir niðri kraumar þung undiralda því allir hafa sinn djöful að draga. Næm skynjun og nakinn veruleiki spila hér saman á áhrifaríkan hátt. „Umhverfi sögunnar er fullt af fyrirboðum, náttúrulýsingarnar eru svo skýrar að auðvelt er að sjá landið fyrir sér. Það sama á við persónurnar og undirrituð gat ekki varist þeirri tilfinningu að hún væri að lesa málverk á hreyfingu. Það er greinilegt að Friðrik Erlingsson hefur fundið sinn eigin stíl, sína eigin rödd. Hún er hljómmikil og sterk, auk þess sem Friðrik hefur næma tilfinningu fyrir því smæsta og leyndasta í mannlegu eðli.“ Or ritdómi í Morgunblaðinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.