Morgunblaðið - 01.12.2000, Side 63

Morgunblaðið - 01.12.2000, Side 63
 Endalok örlagasögu Enginn íslenskur athafnamaður átti sér stærri drauma í upphafi aldar en Einar Benediktsson, ekkert skáld hugsaði hærra og enginn persónuleiki var margslungnari. En eftir umbrotamikinn áratug, þegar glæstar borgir hrynja og háleitar hugsjónir verða að víkja fyrir bláköldum veruleikanum, er hafáttin farin að hleypa skammdegisbrúnum að skáldjöfrinum. Smám saman fýkur í skjólin og stoðirnar bresta þótt enn eigi eldhuginn Einar Benediktsson til þann töffakraft sem hrífúr og heillar. Slíkir menn hverfa ekki þegjandi og hljóðalaust af sjónarsviðinu og kannski var Einar sjaldan stærri í sniðum en eftir að halla tók undan fæti í lífi hans, skuldum vafin heimsborgari sem lauk að lokum ævinni á afskekktum sveitabæ. Guðjón Friðriksson sagnffæðingur lýkur hér hinni miklu ævisögu þjóðskáldsins, hugsjónamannsins og snillingsins dáða og umdeilda, Einars Benediktssonar, sem um leið er saga íslensks þjóðfélags í árdaga nýrrar aldar. Með umfangsmikilli heimildarvinnu, heilsteyptri úrvinnslu og skáldlegu innsæi dregur hann upp áhrifamilda mynd af manni sem átti stærri og viðburðaríkari sögu en nokkur samtímamaður hans. Guðjón Friðriksson hlaut Islensku bókmenntaverðlaunin fyrir fyrsta bindi ævisögu Einars Benediktssonar. L

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.