Morgunblaðið - 01.12.2000, Page 63
Endalok örlagasögu
Enginn íslenskur athafnamaður átti sér stærri drauma í upphafi aldar en Einar Benediktsson, ekkert skáld
hugsaði hærra og enginn persónuleiki var margslungnari. En eftir umbrotamikinn áratug, þegar glæstar
borgir hrynja og háleitar hugsjónir verða að víkja fyrir bláköldum veruleikanum, er hafáttin farin að hleypa
skammdegisbrúnum að skáldjöfrinum. Smám saman fýkur í skjólin og stoðirnar bresta þótt enn eigi
eldhuginn Einar Benediktsson til þann töffakraft sem hrífúr og heillar. Slíkir menn hverfa ekki þegjandi og
hljóðalaust af sjónarsviðinu og kannski var Einar sjaldan stærri í sniðum en eftir að halla tók undan fæti í lífi
hans, skuldum vafin heimsborgari sem lauk að lokum ævinni á afskekktum sveitabæ.
Guðjón Friðriksson sagnffæðingur lýkur hér hinni miklu ævisögu þjóðskáldsins, hugsjónamannsins og
snillingsins dáða og umdeilda, Einars Benediktssonar, sem um leið er saga íslensks þjóðfélags í árdaga nýrrar
aldar. Með umfangsmikilli heimildarvinnu, heilsteyptri úrvinnslu og skáldlegu innsæi dregur hann upp
áhrifamilda mynd af manni sem átti stærri og viðburðaríkari sögu en nokkur samtímamaður hans.
Guðjón Friðriksson hlaut Islensku bókmenntaverðlaunin fyrir fyrsta bindi ævisögu Einars Benediktssonar.
L