Morgunblaðið - 13.12.2000, Side 23

Morgunblaðið - 13.12.2000, Side 23
fSLlil'S bóiÆ verðl| SKU NNTA ,UNIN KRISTNI Á ÍSLANDI Tímamótaverk um kristni á íslandi frá landnámsöld til okkar daga 1. bindi Frumkristni og upphaf kirkju 2. bindi íslenskt samfélag og Rómakirkja 3. bindi Frá siðaskiptum til upplýsingar Eftir Hjalta Hugason Eftir Gunnar F. Guðmundsson Eftir Loft Guttormsson Trúarleg menning íslendinga fram um 1150. Hvernig kristin Evrópumenning hóf innreið sína á íslandi. Hvað einkenndi kirkjuna fyrstu árin. Hvernig kirkjan breyttist í volduga yfirþjóðlega stofnun sem mótaði samfélagið og allt líf manna frá fæðingu til dauða. Lúthersk siðbreyting breytti samfélaginu enn, með miklum áhrifum á dagiegt líf fólks jafnt og stjórnarfar. 4. bindi Til móts við nútímann Eftir Þórunni Valdimarsdóttur og Pétur Pétursson Einhæft og einangrað kristið bændasamfélag mætir frelsishugmyndum nútímans með stöðugt vaxandi fjölhyggju. Glæsilegt ritverk í stóru broti, alls rúmlega 1600 bls. prýddar yfir 1100 myndum sem margar hafa ekki birst hér á landi áður. Með útgáfunni er leitast við að draga upp heildstæða mynd af sambúð þjóðar og kirkju í Ijósi nýjustu rannsókna m.a. með því að skýra stöðugleika eða þróun eftir því sem við á, fræða lesendur um íslenska sögu út frá sambúð þjóðar og kirkju og hjálpa þeim að túlka íslenskt þjóðlíf og menningu, sem og eigin tilveru á líðandi stundu. Benda má á menningarleg-, félagsleg, pólitísk- og efnahagsleg tengsl þjóðar og kirkju, sýnt hvernig kirkjan mótaði siðferði, heimsmynd, söguskilning, lífstúlkun og list þjóðarinnar á mismunandi tímum Kristin þjóð hlýtur að fagna þessu framtaki, en útgáfan er kostuð af Alþingi í tilefni af því að 1000 ár eru liðin frá kristnitökunni, eins k merkasta atburðar þingsögunnar. Hið íslenska bókmenntafélag annast dreifingu. ALÞI NGI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.