Morgunblaðið - 13.12.2000, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 13.12.2000, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDÁGUR 13. DESEMBER 2000 47 VALGERÐUR SÆMUNDSDÓTTIR + Valgerður fædd- ist. í Litlagerði, Grýtubakkahreppi, 6. apríl 1931. Hún lést á líknardeild Landspítala Kópa- vogi 4. desember síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Sæmundur Reykjalín Guðmundsson, bóndi frá Lómatjörn í Grýtubakkahreppi, og Guðrún Jónsdótt- ir, ljósmóðir frá Hóli í Höfðahverfi. Þau fluttust að Fagrabæ í Grýtubakkahreppi 1938 og bjuggu þar siðan. Eignuðust þau tíu börn, þau voru Guðbjörg, f. 1929, d. 1986; Valgerður, f. 1931, d. 2000; Guðmundur, f. 1932; Jön, f. 1934; Hallur Steingrímur, f. 1935, d. 1984; Anna, f. 1937, d. 1979; Sveinn, f. 1939; Tómas, f. 1943; Sigrún, f. 1944 og Baldur, f. 1946. Valgerður giftist 28. nóvember 1954 eftirlifandi manni sínum Indriða Indriðasyni skógfræðingi, f. 16. apríl 1932. Hann er sonur Nú er hún Valgerður tengda- móðir mín farin. Við heimsóttum oft Völlu og Indriða á Tumastöðum þegar þau bjuggu þar, sérstaklega þegar börnin okkar voru yngri. Ég á margar góðar minningar frá Tuma- stöðum þar sem Valla var húsmóð- ir. Stuttu eftir að ég kynntist kon- unni minni vann ég í sumarvinnu á Tumastöðum við skógræktina. Þar kenndi Valla mér að þekkja hinar ýmsu trjátegundir og handtökin við að gróðursetja plöntur þannig að sem best færi um þær. Hún hafði mikinn áhuga á að rækta plöntur og reyndi ávallt að fá sem flest afbrigði til að finna út hvað hentaði best fyrir okkar íslensku náttúru og veðurfar. A heimilinu var ávallt snyrtilegt. Hún vildi ætíð hafa hlutina í röð og reglu í kringum sig og vann sína vinnu af mikilli samviskusemi og alúð. Valla var alltaf róleg og yf- irveguð og aldrei heyrði ég styggð- aryrði af hennar vörum. Hún var góður gestgjafi, það var alltaf tekið vel á móti okkur og passað upp á að við fengjum gott að borða. Hún var líka alltaf hag- sýn og hugsaði um heimilið og fjöl- skylduna. Við settum niður kart- öflur á vorin og tókum upp saman á haustin. Það var tekið slátur, tínt rifs, farið í berjamó og gróðursett tré. Þetta voru skemmtilegar stundir þar sem öll fjölskyldan kom saman og oft var kappið þá mikið. Að verki loknu bar Valla alltaf fram veglegar veitingar. Valla hafði mjög gaman af veiði- mennsku og fór ég oft með þeim hjónunum að renna fyrir silung og lax. Ég á margar góðar minningar frá veiðiferðum okkar saman í Rangá og að Gíslastöðum við Hvítá. Síðustu árin voru erfið hjá Völlu, hún veiktist af krabbameini árið 1995. Hún sýndi alltaf mikinn styrk og ótrúlega bjarstýni þrátt fyrir veikindin. Hún var ákveðin í að gefast ekki upp og aldrei kveinkaði hún sér og hélt alltaf í vonina um bata. Valla og Indriði fluttu frá Tuma- stöðum til Reykjavíkur fyrir rúmu ári. Þau hjónin keyptu sér íbúð og þrátt fyrir veikindin lagði Valla hart að sér við að gera hana í stand. Fyrir stuttu var hún að sauma ný gluggatjöld, sem var lokahöndin á góðu verki. Hlustarðu, í hinsta sinn, héma, á sönginn minn, liggur að lyktum inn lífsferill þinn. Þar sem um eilíf ár ofan við jarðlífs fár Indriða Indriðason- ar ættfræðings og Sólveigar Jónsdótt- ur. Valgerður og Indriði eignuðust tvær dætur þær eru Guðrún, f. 1955, leik- skólakennari í Reykjavík, gift Jóni Ágústi Sigurjóns- syni rafmagnstækni- fræðingi. Þeirra börn eru: Bjarki Rafn, f. 1979, Vala Sif, f. 1982, Sindri Freyr, f. 1990 og Vera Björk, f. 1992; Sólveig, f. 1956, tannsmiður, bú- sett í Kópavogi gift Stefáni K. Guðnasyni, rafverktaka. Þeirra böm eru: Indriði, f. 1977, Heiður, f. 1981 og Arnþór, f. 1983. Valgerður og Indriði bjuggu á Tumastöðum í Ujótshlíð frá 1954 til 1999 þegar þau fluttu til Reykjavíkur. Valgerður og Indr- iði vom starfsmenn Skógræktar ríkisins á Tumastöðum. Útför Valgerðar fer fram frá Áskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. brosir Guðs himinn hár, heiður og blár. (Indriði Þórkelsson.) Við þökkum þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur og allar góðu minningarnar. Góða ferð Valla, hvíl þú í friði og guð geymi þig. Jón Ágúst Sigurjónsson og böm. Valgerður Sæmundsdóttir, eða Valla eins og við yfirleitt kölluðum hana, var fædd 6. apríl 1931 að Litla-Gerði í Grýtubakkahreppi við Eyjafjörð. Éoreldrar hennar, Sæmundur Reykjalín Guðmundsson og Guð- rún Jónsdóttir ljósmóðir, bjuggu lengst af að Fagrabæ í Grýtu- bakkahreppi. Valla var næst elst tíu systkina og byrjaði hún þess vegna snemma að aðstoða foreldra sína við heimilisstörf og gæslu yngri systkina sinna. Valla kynntist eftirlifandi manni sínum, Indriða Indriðasyni, er hún vann að skóræktarstörfum í Vagla- skógi. Valla giftist Indriða árið 1954 og sama ár flutti þau að Tumastöðum þar sem hann starf- aði sem skógfræðingur. Indriði tók við skógarvarðarstöðu á Tumastöð- um árið 1964 og þangað komum við hjónin oft í heimsókn. Við gerðum ýmislegt saman og má þar nefna ferðir um Fljótshlíðina og veiðitúra í Rangá áður en hún varð fræg. Við fórum líka að veiða í Veiðivötnum. Einnig eru okkur minnistæð öll þau skipti sem við tókum saman naut og úrbeinuðum. Konan mín leit mjög upp til Völlu, en hún var i vist hjá henni sem barnapía. Valla var henni góð fyrirmynd og var oft eins og henn- ar önnur móðir enda segir Sólveig oft þegar vandamál koma upp „hvernig skyldi Valla hafa gert þetta“. Valla var mjög vinnusöm kona og féll henni sjaldan verk úr hendi. Hún vann að skógrækt með manni sínum og var ákaflega fróð um all- an gróður, það voru fáar plönturn- ar sem hún þekkti ekki. Skógrækt- aráhugi þeirra var mjög mikill og komu þau nokkrum sinnum upp í Hrauneyjar og Sigöldu og tóku stiklinga handa okkur til ræktunar. Margar tegundir og mörg kvæmi voru gróðursett þar að áeggjan þeirra. Valla hélt alla tíð tryggð við fæð- ingarbyggð sína og á hverju ári fóru þau hjónin norður í Fagrabæ í heimsókn. Þau ferðuðust þar um, fóru í Fjörður, á Flateyjardal og renndu fyrir fisk í Eyjafirði. Iddi og Valla undu sér vel á Tumastöðum þar sem þau eignuð- ust dætur sínar tvær Rúnu og Systu og þar ólust þær upp. Iddi og Valla bjuggu á Tumastöðum Þar til þau voru rifin upp með rótum árið 1999. Ég segi rifin upp með rótum. Alla tíð hefur mönnum ver- ið kennt það, að ef flytja eigi full- orðið tré verði að huga vel að rót- unum og helst að gefa sér góðan tíma við undirbúninginn. Yfirmenn skógræktar ríkisins hafa sennilega ekki heyrt um þetta þegar sú ákvörðun var tekin að segja Indriða upp starfi á Tuma- stöðum. Uppsögnin kom á versta tíma, Valla hafði greinst með krabba- mein og varð hún þess vegna sam- tímis að berjast við veikindin og yf- irgefa Fljótshlíðna þar sem henni hafði liðið svo vel í þessi 45 ár. Þau fluttu til Reykjavíkur og keyptu sér íbúð í Ljósheimum, sem þau voru nýbúin að taka í gegn þegar kallið kom. Kæra Valla, takk fyrir samfylgd- ina í gegnum árin. Indriði, Rúna, Systa og fjöl- skyldur, við vottum ykkur okkar innilegustu samúðarkeðjur, Guð veri með ykkur á þessum sorgar- tímum. Björn Sverrisson, Búrfelli. HALLDORA K. SIGURÐARDÓTTIR + Halldóra K. Sig- urðardóttir fæddist í Görðum, Sæbóli, Aðalvík 6. desember 1920. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu Skógarbæ í Reykjavik 1. des- ember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Áskirkju 12. desember. Elsku besta Dóra Nú ertu farin frá okkur elsku besta vinkona. Við kynntumst fjög- urra ára gamlar á Súðavík og þú varst vinkona mín alla ævina. Við misstum aldrei sambandið þrátt fyr- ir aðskilnað á unglings- árum, þessi vinátta var ómetanleg. Það er sárt að sjá á eftir þér en ég er þakk- lát fyrir að þú fáir loks- ins friðinn. Guð geymi þig og megi hann veita fjöl- skyldu þinni og að- standendum styrk og kraft. Farþúífriði, friður Guð þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Kveðja, Guðríður Markúsdóttir. Formáli minningargreina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn, skóla- göngu og störf og loks hvaðan út- för hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feit- letraður, en ekki í greinunum sjálfum. RAGNHEIÐUR BJARNADÓTTIR * + Ragnheiður Bjarnadóttir fæddist á Hesteyri við ísafjarðardjúp 20. september 1923. Hún lést á beimili sínu 29. nóvember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík 5. des- ember. Elsku amma mín. Ég kveð þig með söknuð í hjarta og vona að þér líði vel þar sem þú ert núna. Ég vil þakka þér fyrir all- ar góðu stundimar sem við áttum saman og allt sem þú kenndir mér. Elsku amma, ég vil þakka þér sam- fylgdina. Þú munt alltaf eiga stað í hjarta mínu. Leiddu mína litlu hendi, yúfiJesúþérégsendi, bæn frá mínu brjósti sjáðu blíðiJesúaðmérgáðu. (Ásmundur Eiríksson.) Kveðja, Ágúst. Elsku amma litla. Nú hefur þú kvatt okkur, í þessu lífi. Við vitum að þú ert komin á góðan stað þar sem þér h'ður vel. Við hefðum vijjað hafa þig hjá okkur alla ævi, en hver er ekki eigingjam á ömmu sína? Þú tókst okkur alltaf opnum örm- um og alltaf var nóg pláss og nægur tími fyrir okkur. Góðu minningamar sem við eigum um þig em svo margar að ekki væri pláss fyrir þær allar í þessu blaði. Langömmubarnið þitt, Katrín Lóa, biður að heilsa og hefði gjaman viljað koma í eina heimsókn i viðbót með kleinupoka handa þér. Við kveðjum þig með virðingu, þökk og sökn- uði en vitum að afi bíður þín við hlið himnaríkis. Blessuð sé minning þín. Vertuyfirogalltum kring með eilífri blessun þinni. Sifji guðs englar saman í hring sænginnijfirminni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Kveðja, Ragnheiður og Guðrún. Elsku amma mín. Ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að byrja því þegar ég horfi til baka rifjast upp fyrir mér svo ótrúlega margar góðar minningar um þig. Þessar minningar mun ég geyma í hjarta mínu alla ævi. Elsku amma, fyrir mér varst þú meira en bara,* amma, þú varst góður vinur og stór hluti af fjölskyldu minni. Eg þakka þau ár sem ég áttí þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um huga minn fer. Þó þú sért horfm úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Guð geymi þig. G. Benjamín (Benni). t Maðurinn minn og bróðir okkar, KRISTINN GUÐSTEINSSON garðyrkjumaður, hjúkrunarheimilinu Skjóli, áður Hrísateig 6, verður jarðsunginn frá Áskirkju fimmtudaginn 14. desember kl. 13.30. Elísabet Magnúsdóttir og systkini hins látna. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS INGIMUNDARSON, er látinn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki gjör- gæsludeildar Landspítalans við Hringbraut. Kristjana Guðný Eggertsdóttir, Eggert Árni Magnússon, Guðlaug Nanna Ólafsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Jeffrey Gailiun, Inga Steinunn Magnúsdóttir, Kristjana Vigdís Magnúsdóttir, Halldór Ingi Guðmundsson, Hildur Guðrún Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartans þakkirtil allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við fráfall og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUNNARS GfSLASONAR, Grundargerði 12, Reykjavík. Kristín Sveinsdóttir, Gísli Pétur Gunnarsson, Anna Guðbjörg Guðjónsdóttir, Lára Lilja Gunnarsdóttir, Bjarni Axelsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.