Morgunblaðið - 13.12.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.12.2000, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sérsveit lögreglunnar kölluð til til að yfírbuga vopnaðan mann á Akranesi Sigaði hundi á tvo lögreglu- menn SÉRSVEIT lögreglunnar var kölluð að húsi við Vesturgötu á Akranesi í gærmorgun til að yfirbuga mann vopnaðan hnífi og kylfu, en hann hafði fyrr um morguninn flúið und- an lögreglunni og sigað hundi á tvo lögreglumenn. Maðurinn, sem er 32 ára gamall, gafst hins vegar upp án frekari mótspyrnu eftir að sérsveit- in kom á staðinn, og var hann færð- ur í varðhald hjá lögreglunni á Akranesi. Lögreglan fékk tilkynningu skömmu eftir kl. 5 í gærmorgun um að maður væri að brjótast inn í Ráð- húsbakaríið, sem stendur við Still- holt 16-18, en Sigurhans Bollason, starfsmaður Öryggisþjónustu Vest- urlands, hafði komið að manninum bak við bakaríið og hringt í lögregl- una. „Ég tók eftir að hann var að bjástra hérna, hann var nú ekkert að fela það og var með bíl hérna. Hann var að eiga við hurðina og ég fylgdist með honum aðeins um 15 metrafrá, en hann tók aldrei eftir mér. Þegar hann var búinn að eiga við hurðina færði hann bflinn og notaði hann til að standa á honum til að eiga við gluggann," sagði Sig- urhans í samtali við Morgunblaðið. Skömmu síðar kom lögreglan að og segir Svanur Geirdal, yfirlög- regluþjónn á Akranesi, að tveir lög- regluþjónar hafi farið á vettvang eftir að tilkynningin barst. Þegar þeir komu að bakhlið bakarísins sat maðurinn í bflnum, en á þaki bflsins voru ýmis verkfæri. Lögreglan lagði lögreglubifreiðinni þétt upp að bfl mannsins, og ræddu lögregluþjón- arnir síðan við hann og báðu hann um að koma út úr bílnum. Auk mannsins var stór scháfer- hundur í bflnum og þegar lögreglu- mennirnir höfðu náð manninum út sigaði hann hundinum á þá og glefs- aði hundurinn í annan lögregluþjón- inn. Maðurinn settist þá aftur í bfl- inn og ók af stað niður sundið aftan við bakaríið. Þar lenti hann í sjálf- heldu, en náði að snúa bflnum við og ók síðan á fullri ferð á afturenda lögreglubifreiðarinnar, þannig að hún hentist til hliðar, og slapp mað- urinn í burtu. Áhætta að mæta manninum með kylfu og hníf Lögreglumennimir misstu því sjónar á manninum, en hófu þegar eftirgrennslan eftir honum. Þeir fóru að húsi við Vesturgötu, þar sem þeir vissu af sambýliskonu mannsins, en hún neitaði því að hann væri í íbúðinni og sagði að hann hefði farið á bílnum og haft með sér hund kunningja þeirra. Eftir skamma leit fann lögreglan Morgunblaðið/Þorkell Sérsveit lögreglunnar yfirbugaði í gærmorgun mann, sem hélt til vopnaður í þessu húsi við Vesturgötu á Akranesi. bflinn á bak við bflskúr skammt frá og fór þá aftur að húsinu. Húsráð- andi neitaði að hleypa þeim inn en lögreglumennirnir sáu manninum bregða fyrir þar innan dyra. Að sögn Svans var ákveðið að leita aðstoðar sérsveitar lögreglunn- ar, þar sem talsverð áhætta þótti að ráðast inn í húsið á móti vopnuðum manni með stóra hafnaboltakylfu og hníf, og þar að auki með scháfer- hundinn með sér. Þar sem ekki var um beina eft- irför að ræða höfðu lögreglumenn- irnir ekki heimild til að fara inn í húsið, og því þurfti að bíða eftir úr- skurði frá Héraðsdómi Vesturlands til að fá heimild til að ráðast inn í húsið. Sérsveitarmennirnir tóku sér stöðu við húsið á meðan beðið var eftir úrskurðinum, en eftir nokkrar fortölur ákvað maðurinn hins vegar að hleypa þeim inn og gefast upp mótspyrnulaust. Morgunblaðið/Þorkell Sigurhans Bollason, starfsmaður Öryggisþjónustu Vesturlands, kom að manninum þar sem hann var að reyna að bijótast inn um bakdyr og glugga í Ráðhúsbakaríinu við Stillholt. Talið stangast á að vera yfírmaður á Landspítala - háskólasjúkrahúsi og talsmaður einkasjúkrahúss Val í starf sviðs- stjóra kennslu og fræða afturkallað RÁÐNING Steins Jónssonar, sér- fræðings í stöðu sviðsstjóra kennslu og fræða á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, sem tilkynnt var um 28. nóvember síðastliðinn hefur verið afturkölluð, þar sem hann hefur komið fram sem tals- maður hóps sem beitir sér fyrir stofnun einkarekins sjúkrahúss. í bréfi Magnúsar Péturssonar, forstjóra Landspítala - háskóla- sjúkrahúss, til Steins af þessu til- efni segir að starf sviðsstjóra, sem helgi sig uppbyggingu kennslu og fræða meðal lækna, sé veigamikið starf sem varði miklu fyrir upp- byggingu háskólasjúkrahússins. „Að undanförnu hafið þér komið fram sem talsmaður hóps sem beit- ir sér fyrir stofnun einkarekins sjúkrahúss og haft um það for- göngu ásamt öðrum. Af því má vera ljóst að um er að ræða alvar- legan hagsmunaárekstur þar sem ætla verður að möguleikar yðar til að rækja umrætt starf af heilindum eru verulega skertir vegna vinnu yðar í undirbúningi að stofnun slíks fyrirtækis,“ segir síðan í bréfinu. Rúmast innan ramma núverandi samnings Steinn sagði í samtali við Morg- unblaðið að hann hefði ekki fengið neitt tækifæri til að útskýra fyrir einum eða neinum hvað um væri að ræða, heldur virtist orðrómur um að stefnt væri að stofnun einkaspít- ala tekinn bókstaflega, en það væri stórlega orðum aukið og ekki í fullu samræmi við það sem raunverulega hefði átt sér stað í þessum við- ræðum milli læknastöðvanna. „Það sem um er að ræða er hag- kvæmniathugun á því hvort hægt sé að reisa nýtt húsnæði yfir læknastöðvarnar og koma þeim öll- um undir eitt þak í því skyni að auka möguleika þeirra til að veita góða þjónustu. Eitt af því sem kemur þá upp sem möguleiki er að geta haft einhver sjúkrarúm til þess að fari betur um sjúklinga eft- ir aðgerðir og jafnvel meðan þeir njóta meðferðar hjá sérfræðingun- um, þar sem yrði þá hjúkrun að sjálfsögðu,“ sagði Steinn. Hann sagði að í þessum efnum væru læknastöðvarnar að hugsa um að geta boðið upp á vöknunar- pláss eftir aðgerðir, dagdeild þar sem fólk gæti fengið lyf og aðra þjónustu í þægilegu og góðu um- hverfi og jafnvel möguleika á því að geta haft fólk yfir nótt ef á þyrfti að halda. Þessi starfsemi rúmaðist í raun og veru innan ramma núver- andi samnings milli sérfræðinga og Tryggingastofnunar ríkisins og væri í samræmi við reglugerð heil- brigðisráðuneytisins um ferliverk. „Þess vegna er þetta í raun og veru ekkert nýtt og við þurfum út af fyrir sig ekki leyfi heilbrigð- isráðherra til þess að gera þetta. Það sem hins vegar þarf er sann- gjarn samningur milli sérfræðinga og Tryggingastofnunar um þessi verk og ef þetta verður að veru- leika þá mun það gefa möguleika á að veita meiri þjónustu og jafnvel leysa fleiri vandamál innan ramma þessarar miðstöðvar heldur en hingað til hefur verið,“ sagði Steinn. Hann sagðist ekki sjá í þessu neina meiriháttar hagsmuna- árekstra við Landspítalann. Hann væri að sinna sínu mikilvæga hlut- verki á sviði sjúkrahúss- og há- tækniþjónustu og það stæði ekki til að fara út í slíka starfsemi. „Mér finnst líka þetta bara snú- ast um það hvort menn hafi leyfi til þess að hafa skoðun á því hvernig heilbrigðiskerfið á að byggjast upp og tækifæri til að tjá sig um þær skoðanir án þess að eiga á hættu að vera beittir hefndarráðstöfunum," sagði Steinn. Hann sagðist hafa rætt þetta við læknaráð spítalans og að aðilar í starfsmannaráði hefðu komið að máli við sig. Hann hefði einnig haft samband við Læknafélag íslands og myndi hafa samband við forseta læknadeildar og deildarstjórn læknadeildar og skýra þeim frá því sem gerst hefði. „Ég reikna með að það komi ein- hver viðbrögð frá þessum aðilum, en get út af fyrir sig ekkert fullyrt um það. Ég hef orðið var við mikla reiði hjá samstarfsmönnum mínum, bæði læknum og hjúkrunarfræð- ingum, út af þessari þróun mála,“ sagði Steinn ennfremur. Trúnaðarbrestur Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala - háskólasjúkrahúss, sagði aðspurður af hverju ráðning Steins hefði verið afturkölluð, hann sagðist telja að það hlyti að verða trúnaðarbrestur þegar maður sem veldist í veigamikið stjórnunarstarf á spítalanum væri nokkrum dögum eftir að sú ákvörðun væri gerð op- inber að gagnrýna spítalann og leita leiða til að efla einkasjúkra- hús. Hann fengi ekki annað séð en að í þessum efnum stönguðust á hagsmunir. „Ég tel að það sé það alvarlegt mál þegar þannig er að spítalinn getur ekki unað því. Steinn er ekki eingöngu í sinni umfjöllun að ræða um það að sameina læknamiðstöðv- ar. Hann er fyrst og fremst að gagnrýna spítalann," sagði Magn- ús. Hann sagði að við þetta bættist trúnaðarbrestur við þann aðila sem væri yfirmaður Steins í kjölfar þessarar umræðu um einkasjúkra- hús. Aðspurður sagði Magnús að þetta hefði ekkert með skoðana- frelsi að gera. Málið snerist um það að Steinn væri að vinna fyrir spít- alann að tilteknum verkefnum og hann hlyti að þurfa að vera trúr þeim málstað. „Hann getur haft skoðanir á einkareknum sjúkrahús- um alveg eins og hverjum og einum hentar. Þetta snýst ekki um það heldur að málflutningur sem felst í gagnrýni á spítalann, sem er not- aður sem rökstuðningur við einka- rekin sjúkrahús er engan veginn viðeigandi," sagði Magnús. Hann bætti því við að í þessum efnum væri enginn munur á rík- isfyrirtækjum og einkafyrirtækj- um. Það hlyti að þurfa að gera þá lágmarkskröfu til starfsmanna, að ekki væri talað um yfirmenn sem væru valdir til ábyrgðarstarfa, að þeir sýndu trúmennsku í störfum sínum Magnús sagði að framkvæmda- stjórnin væri algerlega einhuga í þessum efnum. Hann myndi kynna stjórnarnefnd spítalans þetta í dag og hann drægi ekki í efa afstöðu hennar. Hann sagðist aðspurður ekki sjá að nein eftirmál yrðu vegna þess- arar ákvörðunar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.