Morgunblaðið - 13.12.2000, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 13.12.2000, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000 15 HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Reykjavík Fjöldi verslana í miðborg Reykjavíkur 1996-2000 og flokkað eftir svæðum Hærra sorphirðugjald BORGARRÁÐ hefur sam- þykkt að hækka almennt sorphirðugjald úr 6.000 kr. á hverja tunnu í 6.600 krón- ur á hverja tunnu á ári. Sorphirðugjald atvinnufyr- irtækja hækkar úr 7.800 kr. í 8.600 kr. á tunnu á ári. Jafnframt því sem gjald- skráin breytist að þessu leyti lækkar framlag borg- ai'sjóðs til sorphreinsunar úr 300 milljónum króna í 280 milljónir króna á ári. Nýtt hús á fjölförnu horni FYRIRHUGAÐUR forn- leifauppgröftur á horni Að- alstrætis og Túngötu sem hefjast á í byrjun janúar 2001 verður að mati borg- arminjavarðar, Guðnýjar Gerðar Gunnarsdóttur, bæði dýrari og tímafrekari en væri hann unninn að sumri til. Frumkostnaðaráætlun hljóðar að sögn Guðnýjar upp á 46 milljónir króna. Þar af veitir borgarráð til verks- ins 32 milljónir á næsta ári þegar sjálfur uppgröfturinn Fjöldi verslana í miðborg Reykjavíkur Nær 10% fækkun á fimm árum VERSLUNUM í miðborg Reykjavíkur hefur fækkað úr 372 árið 1996 í 337 árið 2000, eða um 9,4%. Þetta kemur fram í samantekt Þróunarfélags miðborgar- innar, en það hefur látið telja og flokka verslanir í miðborginni í september- mánuði árin 1996 til 2000. Mest munar um verslanir í Kvosinni en þar fækkaði þeim úr 67 í 39 á þessum fimm árum, eða um 42%. Verslunum á Laugavegi og í Bankastræti hefur fækkað úr 191 í 176 eða um 7,9%. Verslunum í hliðargötum hefur hins vegar fjölgað úr 36 í 44, eða um 22%. í könn- un Þróunarfélagsins kemur einnig fram að um leið og verslunum hafi fækkað í miðbænum, hafi veitinga- stöðum fjölgað. fer fram og árið 2002 er gert ráð fyrir 14 milljóna fjárveit- ingu til að ljúka við að vinna úr upplýsingum og birta nið- urstöður. Ráðgert er að reisa 73 her- bergja, fjögurra stjörnu hót- el á horninu og eiga fram- kvæmdir við bygginguna að hefjast um leið og fomleifa- uppgreftrinum lýkur en áætluð verklok hans eru í maí. Þegar hún var spurð hvort þetta væri ekki allt of knappur tími til fomleifaupp- graftar sagði Guðný tímann vissulega vera stuttan og byggingarframkvæmdirnar setja vinnu fornleifafræðing- anna skorður. „Við vonum að það verði unnt að vinna þetta en forn- leifauppgröftur felur alltaf í sér mikla óvissuþætti þannig að það er mjög erfitt að gera áætlanir. Við gerum þó okk- ar áætlanir sem eiga að geta staðist, svo framarlega sem ekkert þeim mun óvæntara kemur í ljós við gröftinn en við munum bregðast við því eins og verkið krefst,“ segir Guðný og bendir á þá fyr- irvara, s.s. tímamörk, sem verk af þessari stærðargráðu kallar á. „Við emm að sjálf- sögðu bundin af þeim samn- ingum sem Reykjavíkurborg hefur gert um uppbyggingu á lóðinni við Minjavernd og Þyrpingu sem standa að hót- elbyggingunni. Þeir samn- ingar ganga út frá að bygg- ingarframkvæmdir hefjist í byi-jun sumars og þá verðum við að hafa lokið verkinu þar sem ekki má byggja fyrr en fornleifarnar hafa verið kannaðar samkvæmt þjóð- minjalögum." Minjar frá landnáms- tíma á lóðunum sem þarf að kanna A áttunda áratugnum var að sögn Guðnýjar gerð rann- sókn á lóðunum norðan og sunnan við áætlaðan bygg- ingarstað og þá fundust leif- ar af skála frá landnámstíma. Hluti skálans sem enn er órannsakaður liggur á lóð- inni við Aðalstræti 16. „Þess- ar vísbendingar sem við höf- um úr fyrri rannsókn benda til þess að það sé byggð frá landnámstíma á þessu svæði og þær þarf að kanna.“ Veturinn er að mati Guð- nýjar ekki heppilegasti tím- inn til vinnu af þessu tagi enda hafa flestir fornleifa- uppgreftir á Islandi verið gerðir að sumarlagi. Guðný sagði að byggt yrði í kring- um og yfir uppgraftarsvæðið og upphitað veðurskýli þann- ig myndað fyrir vísinda- mennina. Aðspurð sagði hún að slíkt yrði vissulega dýrara í framkvæmd en aðstæður gerðu slíkan aðbúnað nauð- synlegan. „Við verðum svo bara að treysta á veðurguð- ina og vona að þeir verði okkur hliðhollir. En miðað við þá tækni sem menn ráða yfir teijum við að hægt sé að gera þarna það sem nauð- synlegt er.“ Fornminjauppgröftur í Aðalstræti hefst í janúar Knappur tími gefst til fornleifarannsókna VINNUPALLAR sem hafa umkringt Laugaveg 99 um nokkurra mánaða skeið voru fjarlægðir í lok síðustu viku, og nú blasir þar við augum gangandi fólks og akandi nýtt þriggja hæða stein- steypt hús, teiknað af Pétri Erni Björnssyni arkitekti. „Það er verið að leggja lokahönd á að klára húsið, að utan sem innan,“ sagði Brynjar Guðmundsson hjá fyrirtækinu Viðhald og ný- smíði, þegar Morgunblaðið spurði hann tíðinda af fram- kvæmdunum, sem hófust í ágúst í fyrra. „Það er Intr- um innheimtuþjónusta sem hefur tekið allt húsið á leigu, og það er gert ráð fyrir að hún geti flutt inn í lok þessarar viku. Það er svo til ekkert athafnapláss þarna fyrir utan til að hellu- leggja og ganga frá, svo það tefst eitthvað smávegis, en ekkert þó svo heitið geti.“ „Við erum með 120% vöxt á síðasta ári og það er nú stærsta ástæðan. Þetta er sumsé bara viðbótarpláss," sagði Sigurður Arnar Jóns- son, framkvæmdastjóri Intrum, þegar hann var spurður um ástæðu þess að fyrirtækið hefði tekið þetta nýhýsi á leigu. „Intrum er núna til húsa á Laugavegi 95 og 97 og þarf meira rými vegna aukinna umsvifa og þess vegna hentar þetta af- ar vel,“ bætti hann við. „Ég veit ekki hvenær við opnum, en við flytjum eftir nokkra daga.“ Morgunblaðið/Porkell Nýtt hús er risið á Laugavegi 99 og er verið að leggja þar síðustu hönd á framkvæmdir sem hófust í ágústmánuði í fyrra. 400 SAMTALS Laugavegur og Bankastræti Skólavörðu- Hverfis- stígur gata 350- 300 Kvosin 250 200- 200 150- 150 100- 100 50- 50- Hliðar- götur 1996 1997 1998 1999 2000 nMt nnil| 1996 2000 1996 2000 1996 2000 1996 2000 1996 2000 Laugavegur Miðborg Miðborg Morgunblaðið/Golli Olga Björk Omarsdóttir í hinum nýju húsakynnum á Bræðraborgarstíg 1, þar sem nýtt og stærra Olgukot hefur starfsemi í byrjun nýs árs. Leikskóli í gamla mat- vörubúð Vesturbær FRÁ og með næstu áramót- um verður opnaður leikskóli á Bræðraborgarstíg 1, en þar, á horni Vesturgötu og Bræðra- borgarstígs, hefur um árabil verið rekin matvöruverslun, síðast Verslun M. Gilsfjörð. Umsókn frá Olgu Björk Óm- arsdóttur dagmóður um leyfi til rekstrar leikskóla þar var samþykkt í Leikskólaráði í lok síðasta mánaðar. „Jú, ég reikna með að opna þarna um áramótin," sagði Olga Björk í samtali við Morgunblaðið fyrir skömmu. „Það varð að breyta ýmsu í húsinu og þessa dagana er verið að leggja síðustu hönd á öryggisatriðin og annað slíkt. Ég er búin að vera með einka- rekinn leikskóla fyrir yngri börnin, þ.e.a.s. frá sex mán- aða til þriggja ára, hér á Öldu- götu 44 í ein níu ár og er með þessu að láta þann draum minn rætast að gera betur. Ég er þess vegna í raun og veru bara að flytja þann gamla í nýtt og stærra hús- næði. Og nafnið fylgir honum líka, verður áfram Olgukot." Olga Björk sagðist þegar vera búin að ráða leikskóla- kennara og reiknaði með að 30-35 böm yrðu í hinu nýja Olgukoti, en það væri samt ekki enn með öllu ljóst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.