Morgunblaðið - 13.12.2000, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.12.2000, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Björn Bjarnason á UNESCO-fundi Menning njóti sérstöðu i BJÖRN Bjarnason menntamálaráð- herra hitti Koichiro Matsuura, fram- kvæmdastjóra UNESCO, á fundi í París í gær ásamt Sigríði Snævarr, sendiherra íslands hjá UNESCO, og Sveini Einarssyni, ráðgjafa ráðherra um menningarmál, en hann er fram- bjóðandi íslands til framkvæmda- stjórnar UNESCO sem kosin verður á næsta áii. Menntamálaráðherra sat tveggja daga óformlegan fund menningar- málaráðherra UNESCO-ríkjanna í höfuðstöðvunum í París, þar sem rætt hefur verið um menningarlega fjölbreytni og kröfur markaðarins í menningarmálum. Samkvæmt upp- lýsingum frá menntamálaráðuneyt- inu sagðist Björn Bjamason á fund- inum ekki taka undir með þeim sem mæltu með skilyrðislausri verndar- stefnu fyrir menningu í alþjóðavið- skiptum. Það væri engum til gagns | að fylgja slíki-i einangrunarstefnu en | á hinn bóginn væri menning skil- | greind á annan hátt heldur en al- menn þjónusta eða verslunarvara og ætti að njóta þeirrar stöðu við mat á alþjóðlegum viðskiptareglum. Vand- inn væri að finna sáttaleið á milli verndarsinna og markaðssinna á þessum forsendum. Það væri ekki aðeins alþjóðlegt viðfangsefni heldur einnig verkefni innan einstakra UNESCO-ríkja. ------t-M------- Alpha ætti að sjást frá Islandi eftir átta daga ALÞJÓÐLEGA geimstöðin Aipha I ætti að geta sést frá jörðu hér á landi w efth- átta daga þar sem hún geysist um himinhvolfið á 27.646 km hraða á klukkustund. Hún fer þó aldrei beint yíh’ landið en ætti að sjást lágt á suð- urhimni í um átta gráðu hæð, segir Þorsteinn Sæmundsson stjömufræð- ingur. Bandarískir geimfarar frá Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, hafa nýlokið við að festa | vængi með sólarrafhlöðum á stöðina 1 til að sjá henni fyrir rafmagni. Alpha I sást vel frá jörðu við geimferðamið- * stöðina Kennedy í Flórída í fyrra- kvöld og það glampaði á vængina þar sem stöðin þaut eftir himninum. Braut Alpha fer hæst upp á 51. gráðu norðlægrar breiddar og því mun geimstöðin ekki svífa beint yfir íslandi heldur vera næst í um 1.000 km fjarlægð. Þorsteinn segir erfitt að segja til um hvenær sé helst hægt að k sjá geimstöðina frá íslandi en það sé þó ekki útilokað í nótt. Bestu skilyrði | næstu daga ættu þó líklega að vera P 21. desember klukkan 19:10. Þá ætti geimstöðin að geta sést lágt á suð- urhimni, ekki hærra en átta gráður, en einungis í skamma stund og hún verður líklega ekki mjög skær. Geim- stöðin fer mjög hratt frá vestri til austurs og það tekur hana ekki nema hálfan annan tíma að ná einum hring um jörðu. k Braut Alpha sveiflast um miðbaug | jarðar og fer syðst í ca 51. breidd- | argráðu og svipað í norður. Geim- f stöðin mun ekki sjást sem ein af al- skærustu stjörnunum hér á landi þó svo að hún sjáist þannig frá Banda- ríkjunum. Hún verður þó samt ein af þeim björtustu. TENGLAR http://spaceflight.nasa.gov/realdata/ tracklng/index.html http://liftoff.msfc.nasa.gov/temp/ StationLoc.html FRÉTTIR Borgin tekur þátt í hluta- fjáraukningu Línu.Nets BORGARRÁÐ Reykjavíkur sam- þykkti í gær að Orkuveita Reykjavík- ur nýti sér forkaupsrétt vegna hluta- fjáraukningar hjá Línu.Neti fyrir 99,75 milljónir króna. Sjálfstæðis- menn greiddu atkvæði gegn málinu og kemur það því til kasta borgar- stjómar. Eftir hiutafjáraukninguna fer hlutur Orkuveitunnar í fyrirtækinu úr 67,67% í 51,5%. Hlutaféð er keypt á genginu 10,5 og er nafnverð þess 9,5 milljónir króna. I greinargerð til veitustjórn- ar, sem lögð var fyrir borgarráð, kemur fram að stjórn fyrirtækisins hafi ákveðið að auka hlutafé um 100 m.kr. að nafnverði og hafi núverandi hluthöfum boðist 15 m.kr. af þessari aukningu. Markmið hlutafjáraukningarinnar sé m.a að standa undir kostnaði við miklar fjárfestingar við að tengja ein- staka viðskiptavini við ljósleiðara- netið ásamt fjárfestingum í tenging- um í gegnum rafdreifikerfið, en íyrirtækið hyggst bjóða almenningi sítengingu við Netið um rafdreifi- kerfið frá og með miðju næsta ári. Um þessar mundir er verið að ljúka við að setja upp þann búnað og þá Ijósleiðara sem þarf til að reka kerfi fyrirtækisins. Alls bar Orkuveitunni réttur til 10,15 m.kr. af auknu hlutafé að nafn- virði, sem jafngilti 106,5 m.kr. að kaupvirði, en samþykktin gei-ir ráð fyrir að keyptar verði 9,5 m.kr. að nafnvirði eins og fyrr sagði. Borgarráð samþykkti þátttöku í hlutafjáraukningunni með fjórum at- kvæðum meirihlutans gegn þremur atkvæðum sjálfstæðismanna. Fulltrúar sjálfstæðismanna létu bóka mótmæli við ákvörðun meiri- hlutans enda hafi verið almennur skilningur við stofnun Línu.Nets með 200 m.kr. framlagi að ekki yrði um viðbótargreiðslur til fyrh’tækis- ins að ræða heldur kæmi nýtt fjár- magn frá aðilum á markaði. „Sú hef- ur ekki orðið raunin og nú neyðist Orkuveitan til að setja nýtt fjármagn inn í fyrirtækið til að treysta greiðslustöðu þess,“ segir í bókuninni og jafnframt að með nýju hlutafé aukist greiðslur borgarinnar til Línu.Nets um 50% og nemi nú 300 m.kr. Borgarráðsfulltrúar Reykjavíkur- listans svöruðu með bókun þar sem segir að verðmæti Línu.Nets hafi ríf- lega tífaldast frá stofnun og það þannig sannað mikilvægi sitt. A þess- um tímapunkti sé talið mikilvægt að Orkuveitan nýti forkaupsrétt og eigi áfram meirihluta í fyrirtækinu hvað sem síðar verði. „Óhætt er að fullyrða að þeir fjármunir sem Orkuveita Reykjavíkur hefur lagt til Línu.Nets ehf. hafa margfalt skilað sér í verð- mæti fyrirtækisins, bættri þjónustu og lægraverði fyrir Reykvíldnga og er engin ástæða til að ætla að breyt- ing verði þar á,“ segir í bókuninni. Henni svöruðu sjálfstæðismenn með annarri bókun þar sem segir að engin rök hafi verið færð fyrir því að Orkuveitan haldi meirihluta í Línu,- Neti enda sé þátttaka borgarinnar í fyrirtækinu hreinlega andstæð hlut- verki sveitarfélags. „Ekki hefur reynt á raunverulegt gengi hluta- bréfa í fyrirtækinu og því betra að bíða með að hrósa happi vegna þess. Nú er ágætt tækifæri til þess að láta reyna á gengi fyrirtækisins á hluta- bréfamarkaði." Fullt tungl við Víkurklett Morgunblaðið/Jón í Fagradal FULLT tungl var í gær og hvfldi dulúð yfír fylgihnetti jarðar þegar þessi mynd var tekin við Víkurklett skammt austan við Vík í Mýrdal. Samtök atvinnulífsins hvetja til aðhalds í verðlagsmálum Gagnrýna hækkun ríkis- útgjalda STJÓRN Samtaka atvinnulífsins (SA) telur að þróun verðlags- og pen- ingamála á næstu vikum og mánuð- um skipti sköpum um hvort mark- mið kjarasamninga náist og hér takist að tryggja efnahagslegan stöðugleika og bætt lífskjör. Þetta kemur fram í samþykkt stjórnar SA frá í gær. „Flest bendir til að sá verðbólgu- þrýstingur, sem við stöndum frammi fyrir, sé tímabundinn og við getum komist í stöðugra umhverfi innan skamms, sé rétt á haldið. Nauðsyn- legt er því að allir sýni ýtrasta að- hald. Þetta á við um verðhækkanir einkafyrirtækja í samkeppni, en ekki síður gjaldskrár- og skattahækkanir ríkis og sveitarfélaga, sem ekki búa við aðhald markaðarins,“ segir í samþykkt stjómar SA. Öfugþróun „Þrátt fyrir ágætan tekjuafgang á nýsamþykktum fjárlögum telja Sam- tök atvinnulífsins mikið áhyggjuefni að samkvæmt þeim hækka áætluð útgjöld ríkisins um rúmlega 13% frá fjárlögum ársins 2000. Þess aðhalds, sem nauðsynlegt er, var ekki gætt í meðferð Alþingis á fjárlagafrum- varpinu, enda hækkuðu áformuð rík- isútgjöld næsta árs um 9 milljarða króna frá upphaflegu fjárlagafrum- varpi. Útgjaldahækkunin milli ára er aukinheldur rúmlega 7% umfram spá Þjóðhagsstofnunar um almennar verðlagsbreytingar 2000-2001. Þetta telja samtökin öfugþróun og ítreka enn nauðsyn þess að auka að- hald í fjármálum ríkisins og freista þess þannig að draga úr þenslu í þjóðfélaginu," segir í samþykkt SA. Álagningarprósenta fasteigna- gjalds verði endurskoðuð Samtökin lýsa einnig áhyggjum af þeirri auknu skattbyrði sem leiði af hækkun gjaldstofns fasteignagjalda og leggja til að álagningarprósenta fasteignagjalds verði endurskoðuð þannig að hækkun þess verði ekki umfram almennar verðhækkanir. Hraða ber einkavæðingu Samtök atvinnulífsins vilja einnig að einkavæðingu opinberra fyrir- tækja verði hraðað. í samþykktinni segir að víðtæk einkavæðing fjar- skipta-, fjármála- og orkufyrirtækja þjóni þeim tilgangi að efla erlenda fjárfestingu, sem enn sé alltof lítil á Islandi, og skapa ný og hagstæð fjár- festingartækifæri fyrir lífeyrissjóði og aðra innlenda fjárfesta. Með því megi jafnframt draga úr viðskipta- halla og þrýstingi á gengi krónunn- ar. Samtökin fagna ákvörðun ríkis- stjórnarinnar um að_ hefja einka- væðingu Landssíma Islands hf. en telja að þar ætti að stíga stærri skref strax í upphafi en rætt hefur verið um, selja stærri hlut í fyrirtækinu og bjóða hlutafé út að hluta á alþjóð- legum markaði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.