Morgunblaðið - 13.12.2000, Blaðsíða 77

Morgunblaðið - 13.12.2000, Blaðsíða 77
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000 : ■'HlO.II :il 0 ,.;i . • MÍO.ll =i 1 0..ÍI f EINABÍÓIÐMEÐ kringluí > s1 qkbiB FYRIR 990 PUNKTA FERDU i RÍÓ Kringlunni 4-6, sími 588 0800 Tom Sizcmore UAL KíýMfeR Carrie-Aimw IVIáes 'm * v> ★%★ ÓRE Haus«erk.is Ekkert hljóð. Entiín vidiíör^i.flnsijiÁöaillÍM- Ekk' eln. Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. b. í. 12 Vit nr. 176 Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 12. Vit nr. 172 Sýnd kl. 4. Vit nr. 159 Kaupið miða í gegnum VITið. Nánari upplýsingar á vit.is vM:, FYRIR 990 PUNKTA FFIWU i Dlð IÍfllK4 Snorrabraut 37, sími 551 1384 Tom Sizemore Val Carrie-Aimw ftflc i... ★ ★★ ÓFE Hausverk.is Ehkert hljóð. En’yin ] ifoUuíeÍkÍ^NEhhí eín, Val Kilmer (Heat, Doors) og Carrie-Ann Moss (Matrix) í framtíðarspennutrylli Sýnd kl. 5.55, 8 og 10.05. b. í. 12. Vit nr. 176 Sýnd kl. 6. 8 oq 10. Vit nr. 121. ' ATHI Fríkort gilda ekki. Kaupið miða í gegnum VITið. Nánari upplýsingar á vit.ls Sýnci kl. 5.5b. 8 oq 10.05. B.i.i2.Vit nr. 172 1 VIT Tilboð rf pú greiJS miðann I gegnum vit þjónustuna fcrðu 200 kr. afilátt if mi&anum i myndina GunShy * • : j£»H= JjM VI L! XI : m Hálendingurinn - Lokabaráttan Gripinn, gómaður, negld IMu vet’ður .banist til síðasia uiamis ug nwfi-i’l vorfiui' gpflð elln’i liralrarafhuini snatch Stelamli sleimim otj I hriólandi trein Sýnd kl. 6, 8 og 10. AUM’IAN 1* \ »• | , . t »uu:» I 'M'lfl K*1.A MltlsKT' •Hl tlGI’ lÍÍANnER]^ . Fnamtiö heimsins er i hættu og aðeins einn niaöur getur homið til bjai'gar. Nu er komið að lokakalla Halendingsins ogurlega. Allir sannkallaöir aðdaendur Halendlngsins mega ekki lata hessa Iramhja ser lara. ATH! Her er a lerðinni aluöru Iramhald lyrstu mynd- arinnar har sem Christopher Lamhert ler a kostum sem Halendingurinn Connor Maclend Sýnd kl. 6, 8 og 10. b. í. i6ára Konano WOMANONTOP Seiðandi og lokkandi rómantisk gamanmynd meö lostafengnu ivafi. I anda myndarinar Kryddlegin hjörtu Sæt og suöræn peria með ninni sjóðheitu Penelope Cru2 Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sigríður Arnardóttir sér um Fólk á Skjá einum Þáttur um fólk ÓHÆTT ER að segja að Skjár einn standi hvað fremst í nýsköpun í ís- lenskri spjallþáttagerð. Nýjasta fjöðrin í hattinn er þátturinn Fólk í umsjón Sigríðar Arnarddttur sem sjónvarspáhorfendum er að góðu kunn sem stjómandi þáttarins / sannleika sagt, þula og ritstjóri. Þátturinn var framsýndur mið- vikudaginn sem leið, og verður á dagskrá frá 9 til 10 og sýndur í beinni útsendingu. „Þetta er mann- legur þáttur á jákvæðum nótum. Eins og nafnið gefur til kynna rúm- ast flest í þessum þætti sem tengist manneskjunni," segir Sigríður. „Það verða gestir í sal, eitt aðalefni verður í hverjum þætti og einhver uppákoma í stúdíói og innskot þar sem ég fæ einstakling með mér sem ég bind fyrir augun á og ek með vítt og breitt um borgina til að rugla í ríminu. Síðan leiði ég hann inn í hús einhvers þjóðþekkts manns - og hann hefur ekki hugmynd um hvar hann er. Þá tek ég klútinn frá aug- unum og spyr: „Hver býr hér?“ og fólk heima í stofu getur reynt að átta sig á því líka.“ Viðfangsefni fyrsta þáttarins var lífsgleði. „Sumir íslendingar eru bara þannig að sama er þótt skammdegið sé svart, þeir geisla allan ársins hring.“ Sigríður fékk f heimsókn til sín Sigrúnu Eðvalds- dóttur fíðluleikara, Guðrúnu Ás- mundsdóttur leikkonu og Magnús Scheving þolfimikappa og rithöf- und, - öll þekkt fyrir útgeislun, orku og lífsgleði. Sigríður hefur ekki verið mikið viðriðin fjölmiðla undanfarið þar sem hún tók sér frí til að sinna upp- eldi barna sinna. „Þegar Skjár einn bauð mér þetta starf fannst mér þetta svo spennandi verkefni að ég Nýi þátturinn hennar Sigríðar Araardóttur ber hið einkar viðkunn- anlega nafn Fólk. stdðst ekki mátið,“ segir Sigríður. „Það er voða margt spennandi þarna og léttur andi og mikil vinnu- gleði.“ Hægt verður að fylgjast með Sigríði alla miðvikudaga í vetur spjalla við fólk um fólk - þetta sí- vinsæla málefni sem er jú hjartans mál okkar allra. TOJVLIST G e i s I a d i s k u r MARGRÉT EIR Margrét Eir, samnefndur frum- burður söngkonunnar Margrétar Eirar. Margrét syngur en með henni eru þeir Kristján Eldjárn (gitar), Karl Olgeirsson (Rhodes), Jón Rafnsson (kontrabassi) og Birg- ir Baldursson (trommur). Lög og textar era eftir ýmsa erlenda höf- unda. Upptökum stýrði Kristján Eldjárn. 58,17 mín. Margrét Eir gefur sjálf út. Ábreiður undarlegar TÖKULAGA- eður ábreiðudiskar (e. cover) eru óvenjumargir í ár. Tökulag er lag sem flutt hefur verið áður og nýtur almennra vinsælda og þótt seinna skilyrðið sé svo sem eng- in regla eru þetta jafnan svokölluð staðallög (e. standards), lög sem hafa verið flutt margsinnis í gegnum árin af fjölda listamanna. Tökulagadiskamir í ár eru eins rnismunandi og þeir eru margir. Hin níu ára Jóhanna Guðrún „velur“ t.d. að syngja lög sem eru löðrandi í nýjabrumi á meðan öldungarnir í Vinabandinu renna sér í gegnum gömul og rammíslensk dægurlög. Einnig eiga Diddú, hinn kornungi Grímur Helgi, Páll Rósinkranz og Strákarnir á Borginni, þeir Helgi Björnsson og Bergþór Pálsson, við- líka plötur um þessi jól. Þetta er að mörgu leyti vafasöm þróun því að hver er nú tilgangur- inn? Það er jú búið að syngja lögin áður er það ekki? Þótt hljómsveitir eigi það til að renna sér í gegnum uppháldslögin sín í góðu gríni á hljómleikum finnst manni eins og sé verið að bera í bakkafullan lækinn „Margrét hefur vit á að ganga troðna slóð með undarlegum formerkjum og sýnir með því bæði dug og þor,“ segir Araar Eggert um tökulagaplötu söng- konunnar Margrétar Eirar. með útgáfu á plötum þar sem öll lög- in eru fengin annars staðar frá en úr smiðju sjálfs „listamannsins". Kald- hæðnar tungur hafa nefnt svona út- gáfur „karaoke“-diska, og það ekki að ósekju. Margrét Eir ræðst á háa, lága og óþekkta garða hér og fer sannarlega um víðan völl. Tema plötunnar er ástin með áherslu á hryggbrotin sem henni geta fylgt og til að gefa mynd af flórunni er hér t.d. útgáfa af „God Only Knows“ Beach Boys, af mörg- um talið besta popplag allra tíma, og einnig er að finna jafn ólík lög og sýruþjóðsönginn „Nights In White Satin“ (Moody Blues) og fremur óþekkt og nýlegt lag eftir Paul Well- er, „You Do Something To Me“, sem er að finna á plötu hans Stanley Road frá 1995. Hið angurværa meistara- verk Neils Youngs „Only Love Can Break Your Heart“ er hér einnig svo og lagið „True Col- ors“, sem er hvað þekktast í flutn- ingi sönghnát- unnar knáu Cyndi Lauper. Plata Margrétar er um margt undarlegt tökulaga- verk. Margir gera þá kröfu að úr því að endilega þurfi að krukka í gömul meistarastykki þá verði a.m.k. gerð tilraun til túlkunar, að búa til eitt- hvað nýtt. Margrét og félagar eru greinilega fylgjandi þessu og um- breyta og snúa upprunalegu útgáf- unum á ýmsa lund, í flestum tilfellum með fínum árangri. Lögin eru mörg hver vel svöl og einkanlega eru spilamennska og út- setningarnar sem að henni lýtur flott. Hljóðfæraleikurinn er hæfilega hrár og mjög lifandi, hér er hvorki gerilsneytt né dauðhreinsað. Platan er heilsteypt, lágstemmd og naum- hyggjuleg, líður þægilega áfram og það er stíll yfir hljómnum, sem er hlýr og góður. Margrét heldur nokkuð aftur af sér í söngnum. í Ijósi sönghæfileika þeirra sem hún býr yfir hefði alveg eins verið líklegt að hún myndi þenja röddina eins og henni væri unnt. Hér er ekki um nein slík tónstigahlaup að ræða enda kallar eðli plötunnar ekki á það. Röddin er róleg og Ijúf, líður varlega áfram í takt við tónlistina. Smekklega af hendi leyst en þó er röddin fullsviplaus á stundum og oft- ast bætir hún litlu við í túlkun, ólíkt hljómsveitinni. Ramminn sem Margrét og félagar settu sér við gerð plötunnar er það sem er best heppnað hér. Helsti gallinn er að einstök lög takast afar mis- munandi vel. „Your Ghost“ (Kristin Hersh), „Live To Tell“ (Madonna) og „True Colors" eru til dæmis frábær en „God Only Knows“, „Only Love Can Break Your Heart“ og „You Do Something To Me“ virka alls ekki. Þótt hugmyndafræðin hér sé, eins og áður segir, vafasöm er platan sem slík vel heppnuð. Margrét hefur vit á að ganga troðna slóð með undarleg- um formerkjum og sýnir með því bæði dug og þor; það hefði léttilega verið hægt að spila lögin óbreytt inn, aðferð sem hefði líkast til verið markaðsvænni. Það má því segja að Margréti „takist" ágæta vel upp með þessari tökuplötu sinni. Arnar Eggert Thoroddsen MYNDBOND • • Oskrað á nýjan leik Klippa (Cut) Hryllingsmynd ★★ Leikstjóri: Kimble Rendall. Hand- rit: Dave Waraer. Aðalhlutverk--r Molly Ringwald, JessicaNapier, Simon Bossell. (90 mín) Ástralía, 2000. Góðar stundir. Bönnuð innan 16 ára. BÖLVUN virðist hvfla yfir hryll- ingsmyndinni „Hot Blooded". Upp- haflegt tökulið var myrt með hroða- legum hætti og í hvert sinn sem reynt er að halda framleiðslunni áfram byrja voða- verkin á nýjan leik. Framsækinn hóp- ur ungra kvik- myndaskólanema kynnist þessari flökkusögu og í~ anda allra góðra hryllingsmynda ákveða þau að gera hina ókláruðu mynd að prófverkefninu sínu. Kem- ur það einhverjum á óvart þegar þau taka að hverfa eitt af öðru? Að sjálf- sögðu ekki, en þessi ástralska útgáfa af „Scream" heldur sæmilega um taumana og fullnægir öllum lág- markskröfum sem hryllingsmynda- aðdáendur gera til sinna kviðristu- mynda. Heiða Jóhannsdóttir GEFÐU GÓÐA GJÖF - GJAFAKORT SNYRTISTOFU ÁGÚSTU INVBTiSIGFAN■ H»f nsrstræti Heykjavík simí: S5a 90?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.