Morgunblaðið - 13.12.2000, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Atvinnulífíð lamað í Bolungarvfk vegna gjaldþrots Nasco og gæftaleysis
• •
Oryggisleys-
ið er verst
Boiungarvík. Morgiinblaðid.
„ÞETTA er ekki skemmtilegasta
jólagjöfin sem maður gat fengið,“
sagði Sveinn Þórisson, starfsmaður
rækjuvinnslunnar Nasco Bolungar-
vík hf. og sýndi blaðamanni uppsagn-
arbréfið sem hann fékk frá bústjóra
þrotabús Nasco í gær. Vinnslu var
hætt að loknum vinnudegi á föstudag
í kjölfar úrskurðar um gjaldþrota-
skipti félagsins og bústjórinn,
Tryggvi Guðmundsson lögmaður,
sagði starfsfólkinu upp störfum í kjöl-
farið.
Ekki er nóg með að áttatíu starfs-
menn Nasco hafi misst vinnuna,
nokkuð skyndilega, því ekki hefur
gefið á sjó í þrjár vikur og bátamir
liggja því bundnir við bryggju í Bol-
ungarvík og starfsfólk litlu frystihús-
anna er atvinnulaust. Þá hefur ekki
borist hráefni til loðnuverksmiðjunn-
ar og starfsemi hennar liggur einnig
niðri. Atvinnulífið er því algerlega
lamað um þessar mundir og telur for-
maður verkalýðsfélagsins litla von um
að starfsfólk Nasco geti fengið aðra
vinnu á staðnum.
Verkalýðsfélagið
brúar bilið
Opið hús var hjá Verkalýðs- og sjó-
mannafélagi Bolungarvíkur í gær og
nýttu margir starfsmenn Nasco sér
það. Fólkið fékk þar leiðbeiningar og
aðstoð um útfyllingu á fjölmörgum
eyðublöðum sem þvi fylgir að missa
vinnuna, það þarf að sækja um vinnu
hjá vinnumiðluninni, sækja um at-
vinnuleysisbætur og útvega ýmis
vottorð og gefa út yfirlýsingar. Bú-
stjórinn, fulltrúar fyrirtækisins og
verkalýðsfélagsins héldu fund með
starfsfólkinu í fyrradag og kom það
fram hjá mörgum að þar hefðu komið
fram gagnlegar upplýsingar um stöðu
fólks og hefðu þær létt á hluta af
óvissunni.
Eins og manni sé hafnað
Starfsfólkið heldur launum út upp-
sagnarfrestinn, sem er frá einni viku
til þriggja mánaða, en þarf að gera
kröfu til Ábyrgðarsjóðs launa til að fá
þau greidd. Það getur tekið langan
tíma og að sögn Lárusar Benedikts-
sonar, formanns verkalýðsfélagsins,
mun félagið annast kröfugerðina,
leggja út fyrir launum starfsfólks fyr-
ir síðustu viku auk desemberuppbót-
ar, og brúa síðan það bil sem myndast
á milli atvinnuleysisbóta og raunveru-
legra útgreiddra launa fólksins, þar
til greiðsla fæst úr Ábyrgðarsjóði.
Aðstæður eru afar misjafnar hjá
starfsfólki Nasco. Sumir hafa verið
þar stutt en aðrir lengi og jafnvel
gengið alla þrautagönguna með fyr-
irtækinu frá því Einar Guðfinnsson
hf. varð gjaldþrota í febrúar 1993. Síð-
an hefur fyrirtækið verið rekið á átta
kennitölum og vinnsla stöðvast
nokkrum sinnum vegna gjaldþrota og
breytinga á húsnæði og tækjum. Þá
eru dæmi um að hjón hafi unnið sam-
an á þessum vinnustað og jafnvel
fleiri úr fjölskyldunum.
Ingvar Bragason flutti frá Suður-
eyri fyrir fjórum árum vegna þess að
öll útgerð var horfin úr því byggðar-
lagi, hélt að grasið væri grænna hin-
um megin. En útgerðin hvarf einnig
úr Bolungarvík stuttu eftir að hann
kom þangað. Ingvar leigði fyrst í Bol-
ungarvík en hefur nýlega fest kaup á
einbýhshúsi. Ingvar segist ekki vera
farinn að átta sig almennilega á stöð-
inni, vinna hafi verið á föstudaginn, og
uppsagnarbréfið borist í dag. Hann er
þó hræddur um að erfitt verði að
standa undir fjárfestingunni ef ekki
fæstvinna.
„Öryggisleysið er verst. Það er eins
og manni sé hafnað og því hangir
maður í lausu lofti,“ segir Sveinn Þór-
isson. Hann gerir sér ekki vonir um
að fá vinnu í bráð vegna gæftaleysis
smábátanna. „En maður verður að
líta fram á veginn og vona að einhver
taki við rækjuverksmiðjunni, það er
okkar eina von,“ segir Sveinn.
„Ég sé ekki annað en að þetta leiði
til þess að fólk hugsi sér til hreyf-
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Starfsmenn Nasco, Katrín Markusdóttir, Sveinn Þórisson og Gunnar
Þorgilsson, fylla út eyðublöð vegna atvinnuleysisskráningar.
Ingvar Bragason (t.v.) ræðir málin við Lárus Benediktsson, formann
Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur.
ings,“ segir Gunnar Þorgilsson. Hann
segist eiga hús á staðnum og vilja búa
þar en ef fólk hafi ekki vinnu sitji það
ekki fyrir fólki, það verði að skilja
eignimar eftir og fara þangað sem
vinnu er að hafa. „Það er ekki versta
tjónið að fyrirtækið skyldi verða
gjaldþrota heldur öll sú þekking og
þjálfun sem fer forgörðum ef ekki
verður hægt að koma því af stað aft-
ur,“ segir Gunnar.
„Það jer von min að einhver héma
kaupi verksmiðjuna af veðhöfum og
starfsemin hefjist aftur áður en upp-
sagnarfresturinn rennur út, þannig
að ekki verði klippt á þennan þráð,“
segir Láms Benediktsson en segist
jafnframt gera sér grein fyrir að það
gæti tekið nokkum tíma fyrir nýja að-
ila að koma rekstrinum af stað vegna
þess að um þessar mundir sé erfitt að
ná í hráefni og salan í lágmarki.
Hugvits- og hönnunarkeppni Hagaskóla og Réttarholtsskóla lauk í gær
Sekúndur skildu að
í spennandi keppni
NEMENDUR í Hagaskóla og Rétt-
arholtsskóla öttu kappi í gærkvöldi í
sal Réttarholtsskóla í Hugvits- og
hönnunarkeppni skólanna. Ellefu
tæki voru skráð til þátttöku, sex
gerð af nemendum Hagaskóla,
fimm af nemendum Réttarholts-
skóla. Keppnin hófst í raun snemma
í haust þegar nemendum voru
kynntar keppnisreglur. Þátttak-
endur þurftu að að hanna og smíða
farartæki sem gæti sprengt blöðru,
tekið upp bolta, því næst þurfti tæk-
ið að aka yfir vatn og upp brekku
sem lögð var gleri og skila loks bolt-
anum í endimark. Þá var sá tími sem
tók að leysa þrautina mældur en
vegalengdin sem tækin þurftu að
aka var 380 cm. Stig voru gefin fyrir
hvem lið keppninnar.
Reglur keppninnar kváðu á um að
útlagður kostnaður vegna tækjanna
mætti ekki vera meiri en 2.000 krón-
um og þau urðu að vera smíðuð frá
granni. Teikningum af tækjunum
þurfti að skila um miðjan október.
Brynjar M. Ólafsson, eðlis-
fræðikennari í Hagaskóla, og Jón
Pétur Zimsen, náttúrufræðikennari
í Réttarholtsskóla, skipulögðu
keppnina.
Brynjar segir hugmyndina
fengna frá hönnunarkeppni í verk-
fræðideild Háskóla fslands. Hann
Ný ensk orðabók
með hraðvirku uppflettikerf!
S5*
•gf
M'W'Z,.*-* á
Ný og endurbætt ensk-islensk/
íslensk-ensk orftobók meö hroðvirku
uppflettikerfi er komin út.
Bókin hefur a& geyma 72.000 uppfleltiorð
og var sérstaklega hugað að fjölgun orða
I tengslum við tækni, vísindi, tölvur, viðskipti
og ferðalög.
Hún spannar því fjöldamörg svið og nýtist
vel hvort sem er á heimili, vinnustað, I skóla
eða bara hvar sem er.
Orðabókin er 932 bls. I stóru broli og inn-
bundin í sterkt band.
Kynningarverb: 6.800 kr.
ORÐABÓKAÚTGÁFAN
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Araar Ólafur Hvanndal, Hagskælingur og sigurveg-
ari keppninnar, stillir hér upp tæki sínu á brautina.
Hann smíðaði tækið á verkstæði fósturfoður síns,
Gulleik Lovskar. Tækið er knúið borvélarmótor.
Hilmar Jónsson reynir hér að slökkva eld á tækinu
en eldingum var ætlað að sprengja blöðruna, sem
tókst. Tækið hannaði hann ásamt bekkjarfélaga sín-
um, Guðna Snæ Jónssyni. Þeir vildu þakka Hilmari
Sigurðssyni, afa Hilmars, fyrir veitta aðstoð.
segir keppnina hafa ótvírætt gildi,
jafnt fyrir þá nemendur sem eiga
auðvelt með bóknám og eins hina
sem þurfa að hafa meira fyrir því.
„Það er mikið verk að hanna tækin,
smiða þau og fá þau til að virka. Það
eru miklar pælingar á bak við þetta
og nemendumir læra heilmikið á
þessu,“ segir Bryiyar.
Þátttakendur notuðu ýmis efni í
tækin s.s. rúðuþurrkumótara, nála-
púða, kerti, dósir, skurðbretti,
teygjur, títupijóna, borvélar og
herðatré. Sigurvegari keppninnar
varð Araar Olafur Hvanndal, nem-
andi í Hagaskóla, en tæki hans lauk
þrautinni á 4,07 sekúndum. í öðru
sæti á 4,47 sekúndum urðu þeir _
Andri Guðmundsson og Birgir Ás-
Óttar Hillers hitar hér nál en slíkt
þótti gefast vel við að sprengja blöðr-
una. Júh'us Pétur Guðjohnsen og
Tryggvi Stefánsson gera tækið klárt.
geirsson, nemendur í Rétt-
arholtsskóla. Skólafélagar
þeirra, þeir Júlíus Pétur Guð-
johnsen, Óttar Hillers og
Tryggvi Stefánsson vermdu
þriðja sætið en tæki þeirra
komst í mark á 5,04 sekúnd-
um. Öllum tókst að leysa
þrautina í heild sinni.
Verðlaun fyrir frumlegustu
hönnunina hlutu þeir Guðni
Snær Jónsson og Hilmar Jóns-
son einnig úr Réttarholts-
skóla.
Kaupþing hf. og Securitas
styrktu keppnina og Karate-
félagið Þórshamar, Opin kerfi
hf., Mál og menning, og Aust-
urbakki hf. gáfu verðlaun.