Skírnir - 01.01.1867, Síða 137
Tyrkjaveldi.
FEJETTIR.
137
verri vandræSum, og því. verSa heilræSi og boS hjer optastnær
hiS sama. Stórveldin hafa og mælt kristnum þegnum Soldáns til liSs, og
eptir stríSiS viS Rússa var mart til skiliS um rjettarbætur. Efnd-
anna hefir orSiS vant í mörgum greinum, og opt hefir brydt á
uppreistum, en hjer hafa en kristnu stórveldi þó ekki orSiS svo
hörundsár, þó Soldán hafi bariS allt niSur meS vopnum, því þeim
var í rauninni ekkert kærara, en aS aginn hætti sem fyrst. MeS
líkum huga hafa þau flest setiS lengi hjá illum og herfilegum viS-
skiptum Tyrkja og kristinDa þegna Soldáns á Krítarey. Vjer
skulum nú reyna aS segja nokkuS ítarlegar af þessum tíSindum.
Tala allra eyjarbúa mun vera 250—300 þúsundir, og þó
allir mæli á gríska tungu, eru þó vart meira en */3 kristinnar
trúar. Helztu borgir á eyjunni eru Kandia, aSsetur landstjórans,
Rettimo (eSa Retbymno) og Kanea. Kandia var fyrrum öflug borg
og fjölbyggS, og varSistfyrir Tyrkjum í 13 ár, áSur en þeir unnu
hana 1669, en í þeirri vörn Ijetust 150,000 manna. Krítarbúar
tóku þátt í frelsisstríSi Grikkja, en losnuSu eigi undan valdi
Soldáns. 1841 reyndu þeir aS btmjast til frelsis, en þaS tókst
eigi. Soldán hjet þeim þá ýmsum vilkjörum og fór allvel um
samlyndiS í fyrstu. A seinustu árum hefir sá haft landstjórn, er
Ismail Pascha heitir, af grísku ætterni. þaS sem hjer, sem víSar
í skattlöndum Soldáns, vakti óhug manna, voru skattkvaSir og
vaxandi álögur. í fyrra vor tóku eyjarskeggjar aS halda fundi, og
á fundi hjá Kanea var 25 mönnum faliS á hendur aS semja
bænarskrá til Soldáns, tjá honum vanhagina og biSja hann ráSa
úr til fullra umbóta. Bænarskráin var samin og þar fariS fram
á skattaljetti, fullt jafnrjetti kristinna viS hina, betri skipan um
sveitastjórn og hreppa, og fl. Fundunum hjelt nú áfram, en
landstjórinn lagSi bann fyrir þá og hótaSi hörSu. ViS þetta varS
hinum verra í skapi, en 19. júlí fengu þeir full afsvör þess er
þeir beiddust. Eptir þaS tóku kristnir menn aS vopnast og
dragast saman i sveitir, en settu stjórnarnefnd eSa þjóSarþing til
aS skipa til um mál sín og varnir. þeir gerSu sjer merkifána
meS mynd frelsarans á, og báru jafnframt merki Grikkja fyrir sjer
í atvígum og bardögum, er þegar urSu. OrStak þeirra eSur kall
i bardögunum var: „sameining (o: viS Grikkland) eSa dauSi!“