Skírnir - 01.01.1893, Side 16
16
Kirkjumál.
í helgidagalöggjöfmni, sem gæti orðið hættuleg fyrir kristilegt siðferði og
sérstaklega að rýmka ekki um opinberar yínveitingar og vínsölu á helg-
um dögum. En mörgum þðtti frumvarp þetta í ýmsum greinum verða til
skerðingar hvíldardagshelginni, ef það yrði að lögum, svo sem með því, að
gera fleiri vinnubrögð frjáls á helgidögum, en lög hafa áður leyft, og með
því að hindra eigi áfengisveitingar þá daga, eins og gert er í helgidaga-
Iögum þeim, er nú gilda hér á landi. Frumvarpið var síðan mikið rætt
á alþingi, en féll þó að lokum í efri deild. Kristniboðsmáli meðal heið-
ingja var og hreyft á prestastefnunni, en fékk þar daufar undirtektir.
Þar var og rætt um samskot til skólastofnwnar kirkjufélags fslendinga í
Vesturheimi; það mál hlaut þar gððan byr. Prestastefnan lýsti yfir því,
að hún teldi prestana sjálfkjörna flytjendur þessa máls í söfnuðum sínum.
Máli sínu til áherslu skutu fundarmenn saman 70 kr. — Séra Ólafur Ólafs-
son í Arnarbæli flutti þar fyrirlestur um húsvitjanir, er fundarmenn gerðu
gððan róm að. Fyrirlestur þessi var siðan prentaður.
Hallgrímur biskup Sveinsson fór að loknu alþingi visitaziuferð um
efri hluta Árnessprófastsdæmis og skoðaði þar 16 kirkjur og kom á miðl-
un í einu prestakalli milii prests og safnaða hans, þar er óánægja var
á milli áður. Af lögum þeim, er þetta ár fengu samþykki konungs, snertu
nokkur kirkjuleg málefni, sem hér skal getið: Lög um breyting á lögum
27. febr. 1880 um stjðrn safnaðarmála og um skipun sóknarnefnda og
héraðsnefnda (staðfest 16. sept) mæla svo fyrir, að safnaðarfundi skuli
halda í maí, en héraðsfundi í júní eða september. Þar sem sðknarmenn
eru yfir 1000, skulu 5 vera í sðknarnefnd. Héraðsfundur er lögmætur, ef
meir en helmingur presta og safnaðarfulltrúa samtals eru á fundi, og þarf
meira en helming greiddra atkvæða fyrir máli til þess að það sé þar sam-
þykkt. Þá er að nefna lögin um afnám kðngsbænadagsins, og Iög um
breyting á 1. gr. laga 27. febr. 1880 um skipun prestakalla' Hvorttveggja
þau lög voru staðfest 24. nóv. Með hinum síðarnefndu lögum er mælt
svo fyrir, að frá fardögum 1893 skuli ekki greiða nema 200 kr. frá Staðar-
prestakalli áReykjanesi (í stað 400 kr.).
Af öðrum stjórnarathöfnum, er snerta kirkju og kristnihald, skal
þessara getið:
Konungur samþykkti (20. jan.) makaskiptasölu á jörðinni Melum í
Svarfaðardal, tilheyrandi Urðakirkju, fyrir bændaeignina Klaufabrekku í sama
hreppi. Landshöfðingi leyfði (23. ágúst) að reisa kirkju á Djúpavogs-
verzlunarstað í stað kirkjunnar á Hálsi í Hamarsfirði, er fokið hafði árið