Skírnir - 01.01.1893, Blaðsíða 28
28
Menntun.
hefir slíkan getið að líta í íslenskum skáldskap um langa hríð, en sam-
fara því er lipur kveðandi, orðgnðtt og vald yfir málinu á við það, sem
best er annarstaðar. Enn má nefna Dauðastundina, mikið kvæði og vel
ort eptir Bjarna Jðnsson, stud. mag. Mál og kveðandi er mjög vandað
og efni fagurt, en hlandið sorg og heimsádeilu. Barnasálmar komu út eptir
séra Valdimar Briem, er verða munu almenningi kærkomnir, eins og öll
trúarljðð höfundarins, enda hafa þeir hina venjulegu kosti þeirra. Þeir eru
flestir ortir út af ýmsum frásögnum í nýja testamentinu. Málið er lipurt
og létt, samlíkingarnar heppilegar og flestar forkunnar fagrar, lifsskoð-
unin göfug og trúarlífið innilegt. Enn má nefna íslenzk sönglög eptir
Helga Helgason 1. hepti; hefir það inni að halda 20 lög öll með íslenskum
texta; hafa nokkur þeirra áður komið fyrir almenningssjðnir og getið sér
gððan orðstír og svipaðri hylli munu þau þeirra eiga að fagna, sem ekki
hafa áður hirtst almenningi. Eptir Ólaf prest Ólafsson (nú í Arnarbæli)
kom út ritið Hjálpaðu þér sjálfur; eru það bendingar til ungra manna
skýrðar með sönnum dæmum og rökstuddar með æfisögubrotum ágætra
manna; hefir hann að nokkru leyti þýtt það eptir frægu riti eptir Samuel
Smiles um sama efni, en sleppt sumu úr því og aukið það aptur með frásög-
um um ýmsa íslenska menn; gerir það bókina cnn eigulegri fyrir oss ís-
lendinga. Einstöku rit, sem getið hefir verið, eru talin til ársins 1892,
þðtt þau hafi ekki verið alprentuð fyrri en þetta ár.
Nokkrir fyrirlestrar eða tölur um ýms fræðiefni hafa verið haldnir
þetta ár helst í Keykjavík. Fyrirlestur Ólafs prests Ólafssonar hefir áður
verið nefndur. Ritgerð Benedikts Gröndals í Tímariti bókmenntafélagsins
var í upphafi haidin sem fyrirlestur. Sæmundur Eyjðlfsson hélt og fyrir-
lestur um helga menn, einkum hina íslensku og um átrúnað á þeim og
ýmsa helgisiði, er þá snerta. Fyrirlestrar nokkrir voru og haldnir í út-
löndum um ísland og ÍBlensk efni. Þorvaldur Thoroddsen var um vetur-
inn utanlands, lengst af í Kaupmannahöfn og safnaði til landfræðissögu
sinnar og hélt þar fyrirlestra í ýmsum félögum t. a. m. Landfræðingafé-
laginu, Jarðfræðingafélaginu, Náttúrufræðingafélaginu og Skemmtiferðafé-
laginu. í Svíþjðð hélt hann og fyrirlestur í Stokkhólmi og Gautahorg og
ennfremur einn í Landfræðingafélaginu í Berlin. Fyrirlestur um hagi
kvenna á íslandi hélt og Ólafía Jóhannsdðttir í Kvennfélaginu danska og
annan um kosningarrétt kvenna hér á landi í öðru félagi og var gðður
rómur gerður að þeim báðum. Sjðnleikir voru víða leiknir hér á landi
þetta ár. í Reykjavík léku nokkrir Good-Templarar ýmsa stutta gaman-