Skírnir - 01.01.1893, Side 38
Mannalát.
Hann var og vel heima í fleiri vísindagreinum. Hann var manna gestrisn-
aatur og vandaður til orða og gerða, enda var hann mjög vinsæll.
Kristinn Magnússon, bðndi i Engcy andaðist 31. júlí (f. í Brautar-
holti á Kjalarnesi 2. marz 1827). Foreldrar hans voru Magnús bðndi
Sigurðsson og Solveig Kortsdóttir. Kona hans var Guðrún Pétursdðttir,
bðnda í Engey Guðmundssonar. Kristinn bjð í Engey 40 ár og bætti
hana mjög, sléttaði um 20 dagsláttur í túni og mjög jókst seðarvarp á
eynni á búskaparárum hans. Hann lét sér og mjög annt um að bæta lag
á skipum, seglbúnað og sjávarútveg allan og varð allmikið ágengt í því
efni, enda smíðaði hann á 3. hundrað af rððrarskipum. Hann var og einna
fyrstur manna til að koma á stofn þilskipaútvegi við Faxaflóa. Heiðurs-
gjöf hlaut hann 1882 af styrktaisjóði Kristjáns konnngs IX. „fyrir fram-
úrskarandi starfsemi til eflingar sjávarútveg og fyrir jarðabætur" og heið-
ursviðurkenningu fékk hann fyrir hreinsun á æðardún frá iðnaðarsýning-
unni í Kaupmannahöfn 1872; þótti hann jafnan í flestu vera einhver merk-
astur maður í bændastétt á Suðurlandi.
Niljohnius Zimsen, konsúll Frakka, andaðist í Reykjavík 8. ágúst
nálægt fimmtugur að aldri. Hann hafði lengi verið fyrir verslun P. C.
Knudtzons í Reykjavik og rekið þar síðan verslun fyrir eigin reikning
og ávallt getið sér góðan orðstír fyrir ljúfmennsku, stillingu og kurteisi.
Ballur Einarsson ððalsbðndj) á Rangá í Hrðarstungu andaðist 12.
ágúst á áttræðisaldri. Lík hans var jarðað þar heima Bamkvæmt konungs-
leyfi. Hann þótti vera nýtur bóndi og hjálpsamur.
Þorvaldur Kristján Agúst Jónsson bóndi á Ljótsstöðum í Vopnafirði
andaðist 15. ágúst (f. í Slagelee í Danmörku 1815). Hann var sonur
Jóns, er síðar varð prestur í Grundarþingum, Jónssonar prests lærða.
Hann fékkst mikið við lækningar með smáskammtameðulum og heppnuð-
ust þær mjög vel og sóttu menn opt til hans langar leiðir. Kona hans
var Halldóra Sigríður Magnúsdóttir frá Möðrufelli.
Lauritz H. Jensen gestgjafi á Akureyri andaðist 11. okt (f. 25. júlí
1825 á Jótlandi). Hann kom hingað til lands bláfátækur, en efnaðist vel.
Veitingahús hans var hið mesta og besta á Norðurlandi og veglegast hús
og fegurst í Akureyrarkaupstað. Hann fékkst allmikið við bæjarmál og
lagði mikla stund á jarðrækt og garðyrkju. Hann þótti reglusamur og
hreinskiptinn, heilráður og vii fastur.
Eiríkur Eirílcsson, dannebrogsmaður á Reykjum á Skeiðum, andaðist
9. nóv. (f. á sama bæ 9. jan. 1807). Hann var sonur Eiríks hreppstjóra