Skírnir - 01.01.1893, Qupperneq 41
Frá íslendingum í Vesturheimi.
41
verða þar var svo mikillar menningar hjá þeim, sem framast mátti vænta.
Að síðustu hefir hann þýtt í bók sinni kvæði, er ort voru við vígslu sýn-
ingarinnar. í bók þessari kennir viða skáldlegra og andríkra tilþrifa og
öll er hún rituð með miklu fjöri og bjartri lífsskoðun.
Hér verður að geta frumvarps eins, er kom fram á alþingi þetta ár,
sem mikið hefir verið rætt um og ritað. Það var frumvarp til nýrra
útflutningalaga eða til viðauka við eldri lög um sama efni. Gengust
þeir mest fyrir því þingmenn Norðmýlinga, en þaðan voru útflutningar til
Vesturheims einna mestir um sumarið og mun frumvarpið hafa stafað af
þeim orsökum. 1 frumvarpi þessu var meðal annars tekið fram, að ef inn-
lendur eða útlendur maður gerðist til þess að æsa menn af landi með
ginnandi fortölum eða með því að halda ræður eða fyrirlestra í þá átt að
gera menn óánægða með þetta land skyldi það varða soktum allt að 2000
krónum. Frumvarpið nefndu sumir í gamni „frumvarpið um að lasta
ekki landið" og var það eitt af málum þeim, er dagaði upp á þinginu;
mun og mörgum hafa fundist það ekki frjálslegt eða við eiga að hinda
svo mjög hendur útflutningastjóra, eins og fá mátti út úr frumvarpinu,
hefði það orðið að lögum.
IJppskeran hjá íslendingum varð allgóð og eigi fyrir neinum sérleg-
um óhöppum, en hveitiverðið var lágt mjög. Fiskiveiðar gengu og sæmi-
lega fyrir þeim, er þær stunduðu. En aptur var mjög kvartað um at-
vinnuskort fyrir þá, sem búa í borgunum; mun það einkum hafa orðið
tilfinnanlegt þeim, er nýkomnir voru.
Af kirkjumálum landa vorra í Vesturheimi er það að segja, er nú
skal greina: Hið níunda ársþing kirkjufélagsins var haldið í Winnipeg
23.—26. júní. Prestarnir voru þeir Bömu og árið áður og söfcuðir i kirkju-
félaginu 22, eins og þá. Einn söfnuður hafði sagt sig úr lögum við kirkju-
félagið, en annar bættist við í stað hans. Forseti kirkjufélagsins séra
Jón Bjarnason hefir verið mjög heilsulítill síðustu ár, og hefir því séra
Hafsteinn Pétursson gerst prestur í Winnipeg, honum til aðstoðar. Sú bót
varð ráðin á prestlcysi safnaðarins þar vestra á þessu kirkjuþingi, að 2 is-
lenskir guðfræðiskandídatar, Björn B. Jónsson og Jónas A. SigurÖBSon, er
báðir hafa numið guðfræði í Vesturheimi, tóku prestvigslu. — Séra Jón
Bjarnason var hvattur til að gefa út safn af prédikunum og lofuðu kirkju-
þingsmenn að styðja að því að útvega því riti sem íiesta kaupendur. Sú á-
lyktun var og gerð að kaupa bókasafn séra Eggerts heitins Bríms til
handa hjnum fyrirhugaða skóla kirkjufélagsins. Skólasjóður kirkjufélags-