Skírnir - 01.01.1893, Qupperneq 85
Spánn.
85
voru innanborðs naargar kistur með sprengikveykjur. Bldur kviknaði í
skipinu og brast það í sundur i ðtal búta, en bfttarnir þeyttust logandi
út um alla borg og kveyktu í henni víðsvegar. Allt fðlk, sem var í grennd
við sprenginguna, hroppti bráðan bana eða örkumsl; er sagt að 600 manna
hafi látizt við þennan voða-viðburð, en yfir 1000 manns fengið sár meiri
eða minni.
Spánverjar hafa átt í allmiklum ófriði við Kabýla í Marokko, vestar-
lega í norðurhluta Suðurálfu. Spánverjar hafa átt þar landeignir nokkrar
um hríð og hafa orðið að reisa þar vígi til varnar gegn áhlaupum Kabýla,
því þeir eru herská þjóð. Þeir eru þegnar soldánsins í Marokko að nafn-
inu til, en hann hefir þð lítinn hemil á þeim. í haust eð var, 2. október,
réðust Kabýlar á vígi eitt, sem Melilla heitir. Yígisstjðrinn tók rösklega
á móti þeim, en var skotinn til bana. Spánverjar voru liðfáir um þessar
stöðvar, en óðara og fréttirnar bárust heim til Spánar, var sent þangað
allmikið lið og hét herforinginn Martinez Campos. Kabýlar sáu sitt ó-
vænna og héldu undan og það því fremur, sem soldáninn af Marokko sendi
her manns gegn þeim um sömu mundir. Spánverjar höfðu kostað of fjár
til ófriðar þessa og heimtuðu því geysimikið fé af Kabýlum i herkostnað —
sum blöðin segja allt að 40 miljónum króna. Yarla geta Kabýlar risið
undir þessu fjárgjaldi og er búizt víð að soldáninn verði að hlaupa undir
bagga með þeim, ef Spánverjar færa ekki gjaldið niður.
8. nóvember kastaði einhver bófi sprengivél í leikhúsi einu i Barcelona
og létust 23 menn, en 50 fengu örkumsl. Ýmsar aðrar sprengingartilraun-
ir hafa verið gerðar á Spáni þetta ár og hafa flestar mistekizt. Sérstak-
lega má geta um tilraun, sem geið var í Barcelona 26. september til að
ráða af dögum Martinez Campos herforingja. Hann var að kanna þar
herlið og var mjög mannmargt i kringum hann. Allt í einu var kastað
tvcimur sprengihnöttum. Þeir sprungu í sundur í þftsund moia og særð-
ust margir menn, þar á meðal Campos sjálfur, en að eins einn maður
lézt. Bófinn náðist og var líflátinn. Hann var óbótamaður, sem opt
hafði komizt undir manna hendur.
Komizt hefir upp, að samband er á milli sprenginganna á Spáni og
þeirra á Frakklandi, sem áður er getið um. Spánverjar fóru að dæmum
Frakka og grófust sem nákvæmast eptir sprengibófum um allt landið.
Flestir náðust, sem unnið höfðu glæpina i Barcelona og margir aðrir, sem
sekir voru í sainskonar tilræðum. Þeir, sem áttu rót sina að rekja til
annara landa, voru reknir vægðarlaust ftt fyrir landamæri Spánar, en þeir,