Skírnir - 01.01.1905, Blaðsíða 29
Um lieimavistarskólahús handa börnum.
29
lega, einn einasti húsasmiður að koma henni fyrir því
miður. Miðstöðvarhitun með heitri vatnsgufu, sem veitt
er i járnpípum um húsið úr gufukatli í kjallara, er komin
í fáein hús hér á landi; útbúnaðurinn er miklu dýrari en
ofnar og ber sig ekki nema í stórum húsum.
fferbergjaskip- Hvernig verður öllum þeim herbergjum,
nn og bygg- sem nefnd hafa verið, bezt komið fyrir i
ingarlag. einu húsi? A húsið að vera einlyft eða
tvílyft; stór kjallari eða lítill?
Skólastofa má ekki vera í kjallara, þar verður birtan
of lítil; bezt að hún sé i stofunni (á 1. lofti), til þess að
börnin hafi sem greiðastan gang út og inn milli stunda.
F j ö r u t í u börn má ekki láta sofa á öðru lofti vegna
eldshættu, nema því að eins, að þau hafi öll greiðan gang
að 2 breiðum stigum sínum hvoru megin í húsinu. Tveir
breiðir stigar stela miklu rúmi úr húsi, þess vegna hagn-
aður að hafa svefnsalina á fyrsta lofti. íbúð kennara
gæti vel verið á öðru lofti.
Alt snýst um það, að húsið verði sem hentast og þó
sem ódýrast.
Vanir húsasmiðir segja mér, að hver rúmalin í kjall-
ara, þótt hann sé vel vandaður, verði að jafnaði nokkru
ódýrari en rúmalin í timburhúsinu ofan á. I kjallara er
efnið að mestu leyti innlent, kostnaðurinn felst þar meira
í vinnunni; bein peningaútgjöld geta orðið miklu minni.
Sjái rnenn sér ekki fært að gera húsið að öllu leyti
úr steini eða steypu, þá mun vafalaust hentast og ódýr-
ast að hafa húsið einlyft, stórt um sig og stóran kjallara.
í vönduðum kjallara má hafa eldhús, geymslu, þvottahús,
baðhús, borðstofu barnanna og alla íbúð skólakennara.
En þó má kjallarinn ekki ganga meir en í mesta lagi 3
fet niður í jörð, og ekki vera lægri undir loft en nemi 9
fetum. Ef þessi kostur er tekinn, þá verður nóg rúm uppi
í húsinu fyrir forstofu, skólastofu, svefnherbergi barnanna,
bústýru- og aðstoðarkonuherbergi. Þá má þakið vera
lágt og fiatt, t. d. 3 álnir af miðjum bita í mæni, og þá