Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.12.1906, Síða 22

Skírnir - 01.12.1906, Síða 22
210 í’erðaþættir frá Bretlandi. Skírnir. aftur, sumir með sindrandi járnteina i höndum, aðrir stýra þungum sleggjum og reka járn eða hella glóandi málmi ker úr keri; flestir eru verkmennirnir berir niður að mitti og þó bogar af þeim svitinn. Manni kemur ósjálfrátt í hug sálmversið í Flokkabókinni gömlu: Myrkur og svæla sifeldleg sorg og djöflamynd ófrýn mjög, óp og ýlfranir eilífs veins, andstyggileg lykt brennisteins o. s. frv. Einkennilegt er að sjá á hinni löngu leið norður Eng- land hve sveitirnar eru tómar; fólkið alt hefir hniprað sig saman í bæina, flúið sólskinið og hreina loftið og sezt að í svælu og myrkri. Akrar sjást varla í þessu frjóa landi, í stað þeirra eru komin beitarlönd og bezta land er víða orðið að harðvelli með skúfum af hrossapunti; sveit- unum heflr farið stórkostlega aftur og enginn samjöfnuður er hvað Danmörk er betur ræktuð; í Englandi snýst alt um iðnað og verzlun. Meðan Englendingar geta selt af- urðir iðnaðar síns er þeim óhætt, en komi sá tími, að það verði örðugt af samkepni, ófriði eða öðrum orsökum geta orðið mikil vandræði í iðnaðarhéruðunum, því matvæli sín mega Englendingar nú kaupa frá öðruui löndum. Enskur hagfræðingur hefir reiknað, að enskur verkalýður yrði að svelta miljónum saman, ef þeir vegna ófriðar eða af öðrum orsökum yrðu að borga fyrir nef hvert 25 aur- um meira fyrir mat á degi hverjum. Ekki þarf nú mik- ið út af að bregða til þess illa fari. Þegar kemur norður fyrir L e e d s fer landið mjög að fríkka með hálsum, dölum og ám. Við Hellifield fórum við af aðallestinni til þess að komast vestur í Vatna- land. Við botninn á Morcombe Bay eru víðáttumiklar fjörur og leirur úr ánni Kent og við Ulverston beygir járnbrautin upp í fjöllin að suðurendanum á W i n d e r- m e r e, það er langt vatn og mjótt, eigi ósvipað Skorra- dalsvatni og skógivaxnir 6—800 feta háir hálsar á bæði borð. Við settumst að í Lake Side, það er lítið þorp,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.