Skírnir - 01.12.1906, Qupperneq 27
Skírnir.
Ferðaþættir frá Bretlandi.
315
stórbæjunum á Bretlandi og svo allmargir frá Ameríku,
en engir útlendingar aðrir. Urmull er hér af ökumönn-
um, sem eru mjög áfjáðir að ná í ferðafólk; þó hestar
þeirra séu stórir og sterklegir, eru þeir mjög magrir,
-enda hlýtur það að vera mikill þrældómur fyrir þá að
draga vagna fulla af fólki á svo bröttum vegum. Það
minti mjög á Reykjavík, að sjá stráka kvöld og
morgna sækja og flytja hesta og svo að sjá beljurnar
kvöld og morgna labba um aðalgötur bæjarins. Húsin í
Keswick eru flest bygð úr grænleitum eða gráleitum
hellum, kalklaust að utan, en að innan eru veggirnir
hlaðnir upp með steinlímdum tigulsteini. Furða í svo
vætusömu loftslagi, að menn skuli geta haft veggi með
ótal rifum, því hellusteinarnir falla óvíða vel. Fólkið
er gervilegt og viðkunnanlegt og óvíða hefi eg séð jafn-
margar laglegar stúlkur eins og í Keswick. I búða-
gluggum er fult af menjagripum og myndum úr Vatna-
landi, sérstaklega sjást margs konar smíðisgripir úr
þarlendum steintegundum. I kringum bæinn eru tún
og beitilönd, en akrar því nær engir; nú stóð sláttur
sem hæst og karlmenn voru að rifja og fanga heyið,
kvennfólk kom þar hvergi nærri. I Keswick er
blýantsverksmiðja og skoðuðum við hana; blýantsteininn
er mulinn og gerður að deigi, síðan steyptur í langa
sívala og ferstrenda dröngla, sem eru hertir og síðan
sagaðir og kliptir niður í örmjóar ræmur, sem svo
eru greyptar inn í tréð. Mátti þar sjá margar vélar
og alla stigbreytingu á verknaðinum uns blýantarnir
voru fullgerðir, settir í umbúðir, pakkaðir og merktir.
Landslagið við Keswick er yndisfagurt, þaðan sjást
milli 20 og 30 hnúkar á allar hliðar og er Skiddaw
þeirra næstur og hæstur, 3058 fet á hæð; þaðan er fögur
útsjón yfir mikinn hluta af Vatnalandi og má komast
þangað ríðandi; götuslóðar liggja alveg upp á efsta tind.
Mest prýði er hér að vatninu, sem liggur rétt hjá bæn-
um. Derwentwater er 3 enskar milur á lengd og