Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1906, Side 28

Skírnir - 01.12.1906, Side 28
316 Ferðaþættir frá Bretlandi. Skírnir, ein ensk míla á breidd, liggur 238 fet yfir sjó og er 70 feta djúpt, það er talið með fegurstu vötnum á Englandi.. Stuttan spöl frá bænum gengur klettatangi eða höfði út í vatnið, sem heitir Friars Crag, þar er minnismerki yfir rithöfundinn John Ruskin, sem var reist 6. október 1900. W. G. Collingwood, hinn fyr nefndi,. hefir ritað æfisögu Kuskins, og er steinninn gjörður eftir teikning hans og fyrirsögn; á honum er mynd Ruskins og áletrun, er þykir eiga vel við hinn fagra stað. Þar stendur öðru megin: »Hinn fyrsti atburður sem eg man i lífi mínu var það að fóstra mín fór með mig út á brún- ina á Friars Crag«. Hinu megin: »Andi guðs er í kringum þig, í loftinu sem þú andar; dýrð hans er í Ijós- inu, sem þú sérð, í frjósemi jarðar og fögnuði hins skap- aða; hann hefir á hverjum degi ritað fyrir þig opinberun sína og á hverjum degi gefið þér daglegt brauð«. A höfðanum vaxa háar furur og eikitré, enda eru eiki- skógar mjög algengir í þessum héruðum. Þar eru bekkir undir trjánum og frá þeim fögur útsjón yfir hinn glitrandi vatnsflöt, fjallahringinn og um höfða og nes, grænar grundir og skógivaxnar eyjar og hlíðar. Að austanverðu er brött hlíð með klettum upp úr en þó öll skógivaxin. Það er eins og trén hafi í þéttri fvlking ráðist til upp- göngu á kastalavegginn og fáein hafa þegar komist upp á brúnir. Til suðurs sést inn í Borrowdale, sem skerst inn á milli grænna nnila. Norður af vatninu er imdir- lendi allmikið niður að öðru vatni i sama dalnum, scm heitir Bassentwaite Lake og er það vatn töluvert lengra;. milli vatnanna rcnnur River Derwent. Eftir Derwent- water ganga rafmagnsbátar og fult er þar oft á vatninu af smáum skemtibátum; á flestum þeirra var eintómt kvennfólk, virtust þær allar vera æfðar, og góðir ræð- arar. Oft sátum við út á Friars Crag eða dvöldum upp á C a s 11 e H e a d , það cr 530 feta hátt fell rétt hjá bænum, þaðan er ágæt útsjón yfir Keswick og nágrennið. Þar er eikarskógur uppi á fellinu og var oft gaman að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.