Skírnir - 01.12.1906, Page 28
316
Ferðaþættir frá Bretlandi.
Skírnir,
ein ensk míla á breidd, liggur 238 fet yfir sjó og er 70
feta djúpt, það er talið með fegurstu vötnum á Englandi..
Stuttan spöl frá bænum gengur klettatangi eða höfði út í
vatnið, sem heitir Friars Crag, þar er minnismerki
yfir rithöfundinn John Ruskin, sem var reist 6.
október 1900. W. G. Collingwood, hinn fyr nefndi,.
hefir ritað æfisögu Kuskins, og er steinninn gjörður eftir
teikning hans og fyrirsögn; á honum er mynd Ruskins
og áletrun, er þykir eiga vel við hinn fagra stað. Þar
stendur öðru megin: »Hinn fyrsti atburður sem eg man
i lífi mínu var það að fóstra mín fór með mig út á brún-
ina á Friars Crag«. Hinu megin: »Andi guðs er í
kringum þig, í loftinu sem þú andar; dýrð hans er í Ijós-
inu, sem þú sérð, í frjósemi jarðar og fögnuði hins skap-
aða; hann hefir á hverjum degi ritað fyrir þig opinberun
sína og á hverjum degi gefið þér daglegt brauð«. A
höfðanum vaxa háar furur og eikitré, enda eru eiki-
skógar mjög algengir í þessum héruðum. Þar eru bekkir
undir trjánum og frá þeim fögur útsjón yfir hinn glitrandi
vatnsflöt, fjallahringinn og um höfða og nes, grænar
grundir og skógivaxnar eyjar og hlíðar. Að austanverðu
er brött hlíð með klettum upp úr en þó öll skógivaxin.
Það er eins og trén hafi í þéttri fvlking ráðist til upp-
göngu á kastalavegginn og fáein hafa þegar komist upp
á brúnir. Til suðurs sést inn í Borrowdale, sem skerst
inn á milli grænna nnila. Norður af vatninu er imdir-
lendi allmikið niður að öðru vatni i sama dalnum, scm
heitir Bassentwaite Lake og er það vatn töluvert lengra;.
milli vatnanna rcnnur River Derwent. Eftir Derwent-
water ganga rafmagnsbátar og fult er þar oft á vatninu
af smáum skemtibátum; á flestum þeirra var eintómt
kvennfólk, virtust þær allar vera æfðar, og góðir ræð-
arar. Oft sátum við út á Friars Crag eða dvöldum upp
á C a s 11 e H e a d , það cr 530 feta hátt fell rétt hjá
bænum, þaðan er ágæt útsjón yfir Keswick og nágrennið.
Þar er eikarskógur uppi á fellinu og var oft gaman að