Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1906, Page 40

Skírnir - 01.12.1906, Page 40
328 Islenzk höfuðból. Skíniir. söl eða annað þess konar eftir landsvenju, ef einhver skyldi ekki fá nóg af því sem fram væri reitt. Læri- sveinarnir áttu að eta tvímælt, klukkan 10 á morgnana og klukkan 6 síðdegis. Til fatnaðar átti biskupinn að' leggja stærri piltunum 10 ál. af vaðmáli árlega, en hin- um minni 7 ál., og eina rekkjuvoð handa hverjum tveim- ur annaðhvort ár. Fátækum piltum átti biskupinn að leggja til pappír og bækur, og ljós handa piltum til að lesa við. Með skólareglugjörðinni frá 3. maí 1743 var þessu breytt nokkuð og ákveðið ýmislegt nákvæmar. Þannig var ákveðið, að 16 piltar skyldu fá alt frítt, 8 greiða kostnað að hálfu leyti, en 8 greiða kostnað að öllu. Eins og við mátti búast þótti biskupum skólinn ærið kostnaðar- samur fyrir stólinn, og var mikil freisting fyrir þá að reyna að draga úr kostnaðinum með ýmsu móti. Þeir reyndu t. d. að gera skólatímann sem styztan og greiðslan af þeirra hálfu til skólaus þótti oft af skornum skamti. I konungsbréfi 1. apríl 1618 til höfuðsmanns er t. d. kvartað yfir því, að sumarleyfið nái frá páskum til Mar- teinsmessu 11. nóvember, eða að skólinn sé ekki haldinn nema í 5 mánuði á ári. Er þar því ákveðið, að skólinn skuli standa frá Mikaelsmessu 29. september til Þing- maríumessu 2. júlí. Upphaflega var ætlunin sú, að skól- inn stæði alt árið. Brögð þóttu ekki alllítil að því, að sumir kennarar skólans væru ónýtir, og lærisveinar, er skólinn útskrifaði, illa að sér. Skólanum var skift í tvo bekki. Námsgreinar voru latina; gríska; i grísku var einkum lesið Nýja-testamentið, því að aðalmarkmið skólans var, að búa lærisveinana undir preststöðu; íslenzka átti að lærast svo, að lærisvein- arnir væru leiknir í að rita móðurmálið og tala það óbjag- að; dönsku áttu þeir að skilja og kunna að rita. Dálítið í hebreskri tungu áttu þeir að læra, sem færastir voru. Auðvitað var langmest áherzla lögð á latínuna, áttu læri- sveinar eigi að eins að skilja lesna kafia úr latneskum rithöfundum, heldur vera leiknir í að tala hana og rita.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.