Skírnir - 01.12.1906, Qupperneq 41
Skírnir.
Hólar í Hjaltadal og Hólabiskupsdæmi.
329-
Skólasveinar gerðu því ekki að eins latneska stíla, heldur
voru æfðir í því að lialda tölur á latínu, og við öll hátíð-
leg tækifæri, t. d. skólasetningu og skólauppsögn, hélt
rektor skólans ræðu á latínu. Auk málanna var lesið við
skólann trúfræði, siðfræði, saga og dálítið í söngfræði.
Daglegt eftirlit með nemendum átti rektor og konrektor
að hafa. Aginn var strangur og mest fólginn í líkam-
legri refsingu, höggum; bannað var þó að slá pilta í höf-
uðið. Einu sinni í hverjum hálfum mánuði átti biskup að
vísitera skólann og líta eftir siðferði pilta og framförum.
Prestur staðarins átti við og við að reyna efribekkinga í
guðfræði.
A hverjum degi, áður en kensla byrjaði og að henni
lokinni, söfnuðust piltar og kennarar saman til bænagerð-
ar. Lásu piltar til skiftis bæn á íslenzku, og var sung-
inn bænarsálmur fyrir og eftir. Borðhaldið var sameigin-
legt, og reglugerðin frá 3. maí 1743 mælir svo fyrir, að
rektor og konrektor borði með, til þess að hat'a eftirlit
með að alt fari siðsamlega fram. A undan borðhaldinu
las einn piltanna valinn vísindalegan kafla úr einhverrl
bók, helzt sögulegs efnis, sem var svo tekinn til umræðu
meðan á borðhaldinu stóð. Að loknum umræðum átti svo
kennarinn að halda stuttan fyrirlestur um umræðuefnið
og skýra það fyrir lærisveinunum. Borðhaldið endaði
með bænagerð.
Eins og kunnugt er, kom Jón biskup Arason fyrstur
á fót prentsmiðju hér á landi. En sökum óeirðanna, sem
hann átti í, gat hann litt sint prentverkinu, og ekki var
prentsmiðjan á Hólum á hans dögum. Guðbrandur biskup
Þorláksson lagði grundvöllinn til Hólaprentsmiðju og frá
hans dögum var hún nærfelt alt af á Hólum, þar til hún
var flutt suður um aldamótin 1800. í hér um bil tvær
aldir voru því nálega allar bækur, sem á íslenzka tungu
voru ritaðar, prentaðar á Hólum. Það lítur því svo út
sein Hólar hafi verið miödepill a 11 r a íslenzkra bókmenta
á þessu thnabili, en þó væri of mikið sagt, að staðhæfa
slíkt, en enginn efl er á því, að það hefir haft mikil áhrif