Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1906, Side 60

Skírnir - 01.12.1906, Side 60
348 Nokkur orð um bókmentir vorar. Skirnir, hann, ekki verður annað sagt! Einu sinni kom saga út í »Kla ustupóstinum«, sem nefndist »Ottalegt sakamál«, og er sú fyrirsögn talsvert betri en þessi. Þykir þó »Klaust- urp.« aldrei fyrirmynd að því er snertir meðferð íslenzk- rar tungu. Annað er svo eftir þessu. Sagan er hrakleg- asta endemisbull frá upphafi til enda, og þýðingin ill og óvönduð eins og fyrirsögnin bendir á. Hún er svo alls ekki verð nánari lýsingar. Hörmulegt er það nú, ef íslenzk alþýða væri svO' mjög horfln sönnum bókmentasmekk, að hún léti slíkan þvætting þrífast með því að kaupa hann og lesa. En fagnaðarefni hlýtur það að vera hverjum manni, sem ann þjóðmenningarframförum vorum, ef hann sér, að þjóðin kann að hafna því, sem fánýtt er og verra en fánýtt i bókmentunum, en safna því, sem gott er, eins og i starf- andi sjóð. Þjóðin má ekki daufheyrast við þessu. Hér er um svo alvarlega þjóðmenningarnauðsyn að ræða, að enginn, sem finnur þessa nauðsyn, má liggja á liði sínu til að fullnægja henni. Þjóðin er ískyggilega sólgin í all- an þennan bókmentahroða, og ef hún elur hann framvegis með því að kaupa hann og lesa, þá lízt mér ekki á fram- tíð þjóðlegra bókmenta hjá oss. Og eignist hún einhvern tíma andleg mikilmenni í þessum greinum, þá mun það sannast, að hún skilur þau ekki, neina hún hafi áttað sig í tíma. Og væri þá illa farið. Menn segja nú ef til vill, að þetta sé hægra sagt en gert, enda sé þannig í öllum bókmentalönduin, að ómerki- legar bækur og rusl fljóti með, sem er við hæfi lægstu stéttanna. En slíkt er mjög fjarri sanni, að því er oss snertir. Alþýða manna hér á landi er svo vel viti borin og upplýst, að útlendar skrílbækur eru alls ekki við henn- ar hæfi; ætti hún líka að sýna það svo áþreifanlega, að ekki verði um vilst. Væru þá maklegar þakkir goldnar þeim óþarfamönnum, sem spilla bókmentum vorum með rusli þessu. Vér sjáum nú, að oss er hætta búin í þessum efnurri, ef ekki verður að gert, og það því fremur, sem frumsamdar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.