Skírnir - 01.12.1906, Side 61
Skírnir.
Nokkur orð um bókmentir vorar.
349
Tjókmentir vorar eru snauðar og fábreyttar að þvi er
snertir sagnagerð og sjónleikagerð. Oss vantar þar mikið,
•og eigi bókmentirnar að gerast öflugur aðili menningar
vorar framvegis, þá verður að skapa ný skilyrði i slíkum
■efnum. Liggur þá beinast við að spyrja: Hvað veldur
þessum bókmentaskorti ?
Sumir halda því fram, að þetta komi af því, að ís-
lenzk skáld yfir höfuð hafl ekki fengið enn þá svo mik-
inn þ r o s k a í list sinni, að þau geti verulega fengist við
:annað en ljóðaformið, annars mundu þau skrifa sögur eigi
síður en yrkja kvæði. Líklegt er, að þetta eigi við
nokkur rök að styðjast. En hvað mundi valda slíku
þroskaleysi í raun réttri? Vér eigum alveg vafalaust
allmörg skáld, sem hefðu getað orðið góðir sagnahöfundar
•ef ástæður hefðu leyft. En skilyrðin, sem þau búa við,
gera það að verkum, að þau hafa farið á mis við þann
snemmkvæma æfingarþroska, er sá maður fær, sem getur
valið sér starf þetta frá upphafi eða gefið sig nálega við
því einu. Og það mun því sannast mála, að þessi bók-
mentaskortur hjá oss sé ekki því að kenna að ýms skáld
vor vanti eðlisgáfu í þessa átt, heldur mun hann fremur
vera sprottinn af þvi, að enginn hefir getað 1 i f a. ð a f
þ v í að vera rithöfundur hér á landi. Mér virðist svo
sem dæmin séu deginum ljósari í þessu efni. Hingað til
hefir bókamarkaður vor verið svo þröngur, — sem líka
er eðlilegt að nokkru leyti, — að óhugsandi var, að
nokkur maður gæti lifað af því að rita sögur handa
þjóðinni, en á hinn bóginn hefir fjárveitingarvaldið haft í
mörg horn að líta og ekki tekist að finna þá menn, sem
áttu skilinn styrk og hjálp til þessa nauðsynjaverks. Hvað
hcfir svo orðið um þá menn, sem annars hafa ef til vill
ágæta hæfíleika i þsssum efnum ? Þeir hafa auðvit-
að valið sér einhvern veg, þar sem þeir gátu fengið að
éta, neyðst til að berjast á einhvern gagn-ólíkan hátt
fyrir tilveru sinni, að líkindum oft með andlegri uppgjöf
og afsali þess, sem þeir áttu dýrast og fegurst í eigu
■sinni. Því að það er mikill misskilningur, að eins auðvelt