Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1909, Page 8

Skírnir - 01.08.1909, Page 8
200 Prestarnir og játningarritin. frá því í lok 17. aldar til ársins 1888, er presta-eiðurinn var með konungsúrskurði numinn úr gildi og presta-h e i t i ð sett í staðinn. Samkvæmt því eru prestar vorir á vígslu- degi sínum látnir »lofa því, í augsýn allsvitanda guðs að kappkosta að boða guðsorð hreint og óblandið eins og það er kent í heilagri ritningu og trúarjátningabókum vorrar kirkju« eins og 1. gr. prestaheitisins hljóðar. Heitið tekur að vísu ekki eins djúpt í árinni eins og eiðurinrt gamli, en munurinn verður minni en búast hefði mátt við, þar sem heit unnið »í augsýn allsvitanda guðs« nálgast óneitanlega allmjög það sem venjulega er kallað eiður. Og hvað sjálfa játningaskuldbindinguna snertir, þá er hún að því leyti ónákvæmari í heitinu en eiðnum, að eiðurinn nefnir »játningarrit hinna dönsku kirkna«, sem vér vitum áreiðanlega hver eru (sbr. Dönsku lög Kr. V. 2. bók 1. kap.), en heitið aðeins »trúarjátningabækur vorrar kirkju« sem óvíst er hvernig ber að skilja, sér- staklega þó ef svo skyldi reynast, að enginn lagastafur væri fyrir því, h v a ð a játningar giltu hér, svo að vér eftir altsaman værum bundnir við allar þær játningar lútersku kirkjunnar, sem út voru komnar þá er kirkjuordín- antían var gefin út 1537. — En hvað sem þessu líður, þá gjörir bæði eiðurinn og heitið játningarnar að einskonar kirkjulegum lagabálkum, sem prestunum er gjört að skyldu að kenna samkvæmt og öll frávikning frá varðar við lög. En hvað er við þetta að athuga? Frá því er þetta kenningarfrelsismál komst fyrst á dagskrá hefir það sérstaklega verið tvent, sem menn hafa fundið þessari skuldbindingu við játningarritin til foráttu. Annað er þetta: Slík skuldbinding er ótilhlýðilegt band á persónulegu frelsi kennimannsins, hlýtur að draga úr andlegum vexti hans og framþróun, og getur jafnvel leitt til yfirdrepskapar og hræsni í boðun fagnaðarerindisins. Hitt er þetta: Sú trygging, sem slík skuldbinding veitir söfnuðinum fyrir sannleika vitnisburðarins, sem fram er

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.