Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1913, Side 6

Skírnir - 01.08.1913, Side 6
198 Gruðrún Ósvífursdóttir og W. Morris. Hallbjörn slíkisteinsauga og Stígandi eru skemtileg og fjöl- kunnug illmenni, sem valda druknun Þórðar; þau voru öll drepin, og ekki er sá kafli stuttur né óauðugur að smáatvikum sem segir frá sökum þeirra við aðra héraðs- menn, dauða þeirra fjögra, og loksins afturgöngum Hall- bjarnar. Kvæði Morrisar tímir ekki að fara út í slíkt. Mörg eru svipuð dæmi. Og nú sjáum við greinilega í hverju getur falist innri munurinn á báðum frásögnunum. Laxdæla er viðburðasaga, sem vill helzt fylgja hverjum manni og hverri atvika-keðju úr sögunni, innan sæmilegra takmarka. Hennar umgerð er eins víð og hverdagslífið. »Elskhugar Guðrúnar« er hugsana- og tilfinningasaga sem kann alls ekki við sig fyrir utan það svæði, þar sem aðal- persónurnar, vilji þeirra og eðlishvatir, verka hvað á annað. Og þetta svæði er riki heimspekilegra og sálfræðilegra hug- leiðinga: margar aðrar sögur eiga þar heima, og búa í allsnægtum; en þar er Laxdæla eins og fiskur á þurru landi. Morris hefir flutt hana þangað og haldið henni lifandi af mikilli list, ekki henni allri þó: margt af því líkamlega hefir dáið burt um leið, og mér liggur við að segja að hún sé þar orðin að holdlausum anda. Enn meiri eru breytingarnar stundum. I slíkri sögu sem »Elskhugar Ouðrúnar« er, verður ástiu aðalaflið og óháður drottinn. Það er hún ekki í Laxdælu. I sál Kjartans til að mynda, eru framkvæmdarsemi og ef til vill eintóm lífsgleði fult eins ríkar. Sé ástin nú sett í há- sæti, þá verður margt í sögunni að þoka fyrir henni. I frumsögunni t. d., nefnir Kjartan 'alls ekki Ouðrúnu að skilnaði við Bolla í Noregi: »Bera skaltu frændum várum kveðju mína, ok svá vinum*. I kvæði Morrisar hlýtur hann að vera berorðari: »Segðu Guðrúnu frá sóma mínum og velgengni, segðu við sjáumst aftur!« Bolli heyrir það, fer til Islands, og fær Guðrúnar handa sjálfum sér. Heldur verða þá svikin ljótari og Bolli verri maður. Guðrún heyrir lika þessi orð af vörum Bolla og setur þvert nei fyrir, eins og við var að búast, þegar Bolli biður hennar. Þá fer hann að hafa vífilengjur við hana:

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.