Skírnir - 01.08.1913, Blaðsíða 25
Púkinn og fjósamaðnrinn.
217
menn fágætir. Flestum verður að bera sig saman við
aðra og vilja fá staðfestingu þeirra á sjálfsáliti sínu. Eng-
inn getur í alvöru látið sér álit annara manna algerlega
á sama standa, því alt viðmót þeirra og breytni fer eftir
því áliti, og engum getur verið sama um það, hvernig
aðrir eru við hann. Hins vegar eru mörg þau störf, ekki
sízt í þjónustu ríkisins, sem unnin eru fjarri augum al-
mennings og yíirboðararnir einir vita hvernig eru af hendi
leyst, og sú trúmenska. og atorka, sem sýnd er í slíkum
störfum, verður því oft hulin almenningi, ef hún er ekki
á einhvern hátt auglýst af ríkisvaldinu. En verður er
verkamaðurinn launanna, og það er rétt, að af tveim
mönnum í samskonar embætti njóti sá meiri virðinga,
er betur vinnur verk sítt, því ekki er altaf unt að launa
honum undir eins með því að hefja hann í hærri stöðu.
En viðurkenningin, sem honum veitist af hálfu ríkisvalds-
ins, er ávísun á almenning, sem oft verður notadrýgri en
beinharðir peningar. Eins er um þá menn utan embættis-
stéttanna, er á einhvern hátt leggja stóran skerf til al-
menningsheilla. Það er vandséð hvernig ríkisvaldið á að
launa þeim og hvetja þannig aðra til eftirbreytni, ef það
má ekki gefa þeim einhvern sýnilegan eða heyranlegan
vott virðingar sinnar fyrir tiltækið. Svo eru þeir er á
einhvern hátt vinna erlendum ríkjum gagn. Þeim mundi
þykja sér óvirðing gjör, ef útlend stjórn færi að senda
þeim nokkrar krónur. Hins vegar getur stjórnin sjaldan
valið slíkum mönnum gjafir, því hún þekkir ekki heirn-
ilisþarfir þeirra. Hitt er henni auðvelt, að votta þeim
virðingu sina og senda þeim sýnilegt tákn þess hvar þeir
yrðu settir við borð þjóðhöfðingjans, ef þá bæri að garði.
Og flestum þykir gaman að eiga innhlaup á slíkum stöð-
um. Metorðastiginn er ef til vill ófullkominn, tröppunum
ekki raðað rétt eftir því gildi sem hver flokkurinn hefir
fyrir mannfélagið, en þetta mætti laga og ætti að laga,
því fátt er betri hreyfing og hollari en að feta sig upp
eftir metorðastiganum og komast í fínni og fínni félagsskap.
Eitthvað á þessa leið mundu þeir mæla, er halda vilja