Skírnir - 01.08.1913, Blaðsíða 73
Heimur versnandi fer.
265
Geðveiki virðist einnig hér á landi hafa aukist tölu-
vert á síðari árum. Um það vantar oss reyndar áreiðan-
legar skýrslur; en víst er um það, að geðveikralæknirinn
á Kleppi kvartar mjög undan því, að aðsóknin á hælinu
sé miklu meiri en það getur rúmað, og telur hann nauð-
synlegt að það verði stækkað um helming hið bráðasta.
Um fábjánaskap, blindu, heyrnar- og málleysi er eigi
unt að segja með vissu hvort það eykst í landinu, en
tæplega minkar það hér fremur en annarstaðar.
Um krabbamein og langvinna sjúkdóma er eigi
heldur unt að segja, vegna þess að skýrslur vantar, en sú
trú er orðin almenn meðal alþýðu, að krabbamein séu
miklu tíðari en áður.
Um tæringuna er enginn vafi, að á síðasta manns-
aldri hefir hún breiðst um land alt. Flest gamalmenní
minnast hennar að eins mjög lítillega frá æskuárum sín-
um. Tæringin er farsótt, sem grípur meira og minna um
sig ár frá ári — þrátt fyrir vaxandi þekkingu á með-
ferð hennar og sóttvörnum.
Það hefir verið farið hörðum orðum i nýlega útkomn-
um ritlingi um að siðferði íslendinga sé stöðugt að spill-
ast, og sé verra en víðasthvar í útlöndum. Þetta er þó'
hið mesta efamál og á lausum rökum bygt.
Að öllu athuguðu sýnist þá vera ýmislegt, sem bendir
á svipaða hnignun, að minsta kosti líkamlega, og kvart-
að er yfir í útlöndum. Þess vegna ástæða til fyrir okkur
íslendinga að lita í okkar eigin barm og reyna að koma
í veg fyrir frekari spillingu holdsins.
Dr. Kellogg minnist á ýmsar óhollar, daglegar venjur
manna í mennirjgarlöndunum, sem eiga öflugan þátt í
hnignun kynslóðarinnar.
Upprunalega lifðu menn mestan hluta æfinnar undir
beru lofti; síðan fóru menn að búa í hellum, en nú búa
þeir í húsum, og flestir i vondum húsakynnum. En þar
er loftið ilt, og þar geta tæringarbakteríur og ótal aðrar
sóttkveikjur náð tökum á mönnum í loftleysinu og sólar-
leysinu. Áður fyr gengu menn allsnaktir i hlýindum