Skírnir - 01.08.1913, Blaðsíða 96
288
Útlendar fréttir.
Heraukning stórveldanna. Aldrei hafa stórveldin aukið jafn
kappsamlega herbúnað sinn og nú á síðkastið. Englendingar byggja
herskip fyrir stórfó, og nvlendur þeirra, Kanada og Astralía, og jafnvel
Indland, leggja fé og herskip til aukniugar flotans. Rússar eru í
óða önn að koma upp n/jum flota í stað þess, sem Japansmenn
eyðilögðu fyrir nokkrum árum. Þjóðverjar eruað auka gífurlega fjár-
veitingar til herbúnaðar, og Frakkar tala um að lengja hjá sér herþjón-
ustuskyldu í þriggja ára tíma. 011 stórveldin eru nú að koma upp
hjá sér lofthernaðartækjum, og er allur sá kostnaður bein viðbót,
án þess að úr dragi hennar vegna herbúnaðinum á öðrum sviðum.
Uppreisn í Mexikó. Þar varð enn uppreisn í febrúar í vetur
og fyrir henni gekst Diaz hershöfðingi, bróðursonar Diazar gamla
fyrv. forseta. Takmarkið var, að steypa frá völdum Madero forseta.
Einn af hershöfðingjum stjórnarinr.ar, er forsetinn trúði, varð til
þess að ráðast á hann í stjórnarhöllinni kvöldið 17. febrúar og taka
hann fastan. Maderó var síðan drepinn, og fer tvennum sögum
um, hvort það hafi verið gert heima í stjórnarhöllinni eða á leið
þaðan til fangelsis. Eftirmaður hans í forsetaembættinu varð til
bráðabyrgða Huerta hershöfðingi, en forsetakosning fer fram í haust.
Miklar róstur urðu út af þessu í höfuðborginni, og ýms hryðjuverk
voru framin. Nánustu ættingjar Maderos flúðu úr landi.
R. Scott suðurfari. Fréttir af för hans til suðurheimskauts-
ins komu í febrúar í vetur. Þá kom skip hans »Terra nova« til
Nyja-Zeelands frá suðurheimskautslöndum. Scott hafði komið á
suðurheimskautið 18. jan. 1912, en fórst á heimleiðinni, í miðjum
marz, ásamt 4 samt'erðamönnum sínum, úr kulda og neyð. Lík
þeirra fundust í nóv. 1912, 17 kílómetra frá eiuum aðalvista-
geymslustaðnum.
Þ. G.