Skírnir - 01.08.1913, Blaðsíða 65
Heimur versnandi fer.
257
brjósti. Þær eru farnar að stríðgeldast. Yflr þessu sama
kvarta læknar í flestum löndum. í enskum stórbæjum
telst svo til að 8. hver móðir geti mjólkað barni sínu.
Duglegir kaupmenn og verksmiðjueigendur raka saman
fé fyrir barnamjöl og aðra tilbúna ungbarnafæðu, meira
og minna saknæma börnunum.
Kynlausar verur. Prófessor í skordýrafræði við há-
skóla í Kaliforníu telur líkur benda til þess að mannkynið
sé í þann veginn að klekja út hvorugkynsverum, sem
samsvari vinnubýflugum og vinnumaurum, þar sem fleiri
og fleiri konur séu að missa móðurhæfileikann. Hann
spáir því, að eftir nokkrar kynslóðir verði framkomnar
kynlausar kvennpersónur eða kvennviðrini, og telur hann
sennilegt að þeim muni verða algjörlega bannað að gift-
ast, og að ennfremur verði lagðar háar sektir við, ef þær
gjöri nokkrar tilraunir til að samrekkja karlmönnum.
Tœring. Þá er að minnast á tæringuna — hvíta
dnuðann — sem geysar yfir öll menningarlöndin. Tær-
ingin er tíðastur gestur í sólarlitlum og loftillum húsa-
kynnum fátæklinganna. Hún kemur harðast niður á þeim
sem hafa verið veiklaðir frá fæðingu eða á einhvern hátt
úrkynjaðir. Þeim er hættara við henni sem heima sitja,
en þeim sem lifa mestan hluta æflnnar undir beru lofti.
Þeir sem ætíð, bæði nótt og dag, eiga kost á hreinu, tæru
lofti til að anda að sér, mega heita lausir við tæringu, og
þeim batnar venjulega aftur þó þeir fái hana. En af þvi
víðast hvar er loftleysi í húsum, fer eins og fer.
Á hverju ári deyja úr tæringu af hverjum 100000
mönnum:
i París 468,1
- Buda-Pest 394,1
- Wien 359,3
- Moskva 314,2
- Stokkhólmi 308,4
- Kristjaníu 271,9
- Brussel 235,6
- Berlín 219,4
17