Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1913, Page 11

Skírnir - 01.08.1913, Page 11
Gnðrún Ósvifursdóttir og W. Morris. 203 Hjarðarholti og á Laugum eru ramm-fastir í Laxdælu; i kvæðum Morrisar eru þeir mjög léttir i öllum snúningum. Og svo er annað um hetjur Morrisar; þær athuga og kanna sig svo gætilega og vel; þær kunna að segja nákvæm- lega og ítarlega frá öllu sem fer fram í hjarta og heila; þeim er huggun í því að kryfja sál sína og birta upp- götvanirnar í samtölum og jafnvel í eintölum; stundum er það höfur.durinn sem tekur að sér birtinguna. Nú skiljið þið hvernig »Elskhugar Guðrúnar® getur verið 5000 lína langt kvæði, þó það taki ekki nema nokkurn hluta af Lax- dælu og sleppi, þar að auki, möigu. Það eru beinar og berar sálarlýsingar sem muna svo miklu rúmi, lýsingar hetjanna á sjálfum sér, hugsunum og tilíinningum sínum, lýsingar höfundarins á sömu hlutunum. Ettir dráp Kjart- ans, t. a. m., fara Osvífurssynir burt frá staðnum og Bolli verður einsamali eftir; hann talar lengi yfir líki Kjartans og ávarpar hann í himnaríki. Það sem hann segir er reyndar fagurt og áhrifamikið: Hvað eiga þau þrjú að gera þegar þau mætast hjá guði, eftir að hafa fyrirgefið hvort öðru? »Eg get ekki«, sagði Bolli, »ímyndað mér þann fund öðru vísi, en að þú, Kjartan, gefir mér þá Ouðrúnuj því að nú er þín sjón skarpari, og þú skilur að eg ann henni mest«. Og svo er um allar ræðurnar í kvæði Morrisar: þær eru fagrar og vitrar og samdar af aðdáanlegri list. Við sáum áðan hvað hetjur Morrisar þekkja si'g vel; þær hafa mjög sterka og skarpa meðvitund; þær eru hvort- tveggja leikendur og áhorfendur í harmleik æfi sinnar. En svo tvöfaldast raunirnar allar, og loks- ins kemur örvæntingin; hennar er árangurslaust að leita í Laxdælu. Eg skal taka aðeins eitt dæmi: Frum-sagan segir að Bolli stóð lengi afskiftalaus við Hafragil, og að Kjartan mælti loksins til hans: »Bolli frændi, hví fórtu heiman ef þú vildir kyrr standa hjá?« Þetta ávarp verð- ur hjá Morris: »Hugsaðu, Bolli, að Guðrún bíður þín. Kom, og ljóstu mig, því að hádegis-sólin er alt of björt og þreytu- lega þrái eg hvíldar-nóttina«. Morrisar-Kjartani er vor-

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.