Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1913, Side 24

Skírnir - 01.08.1913, Side 24
216 Púkinn og fjúsamaðurinn. lagstign fylgdu merki: krossar, stjörnur, bönd o. s. frv. En brátt hvarf félagsbragurinn af þessum orðum, og merk- in ein voru eftir. Vér sjáum þá að orður og titlar eru af sama bergi brotin. Hvorttveggja eru ytri tákn. Orðurnar tala til augans, titlarnir til eyrans. Hvorttveggja er auglýsing um það, hvers virði maðurinn sé, eftir verðlagsskrá æðsta ríkisvaldsins, eða eins og eg sagði áður, konunglegur leið- arvísir um það, hvernig vér eigum að haga oss við til- tekna menn, því vér högum oss ósjálfrátt við aðra menn eftir þeim mælikvarða er vér leggjum á þá. Það mætti líka kveða svo að orði, að hver orða eða titill væri kon- ungleg ávísun á svo eða svo mikla virðingu eigandanum' til liauda. Eg skal þá að endingu drepa á hið helzta, er mér virðist mæla með og móti orðum og titlum. Gildi þeirra verður ekki metið nema í sambandi við gildi metorða- stigans sjálfs, því þau eru að eins tákn sérstakra trappa í honum. Spurningin er þá, hvort það sé þjóðfélaginu gagnlegt, [að nokkurum hluta þegnanna sé skift niður í fiokka eftir því, hvers þeir eru metnir af hálfu ríkisvalds- ins. Sú spurning er skyld annari, sem uppeldisfræðing- arnir hafa löngum deilt um, sem sé, hvort hentugt sé að gefa einkunnir í skólum og raða nemendum eftir því hvernig þeir standa sig. Eg geri ráð fyrir, að þeir sem eru með skólaröð og skólaeinkunnum, þeir vilji líka hafa metorðastigann og ,orður og titla. Astæðurnar verða þá eitthvað á þessa leið: Hvort heldur er í sérstökum skól- um eða í hinum almenna skóla lífsins, þá er það holt, að hver og einn fái opinberan vitnisburð um það, hvernig hann stendur sig í samanburði við félaga sína. Það er rétt að þess sé getið sem gert er, svo að það verði öðr- um til hvatningar eða varnaðar. Metnaðargirndin er ein af helztu hvötum margra manna. Hún knýr þá til að leggja fram kraíta, er að öðrum kosti yrðu ónotaðir, og þó sumir séu svo gerðir, að áhuginn á starflnu sé þeim nóg hvöt og dómur samvizkunnar nóg laun, þá eru þeir

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.