Skírnir - 01.08.1913, Page 27
Púkinn og íjósamaðurinn.
219
kóngsins náð hefði sett hann í. Á þann hátt slægi tign-
inni inn, alla leið inn í sálina.
En eg býst ekki við að þessir tveir flokkar verði
nokkurn tíma sáttir, eða séu komnir í heiminn til að láta
sannfærast. Mennirnir eru svo misjafnir, þess vegna geta
ekki allir verið í sama skoðanaflokki, og ef til vill er það
bending um það, að forsjónin hafi ætlast til að mennirnir
skiftust í ýmsa flokka, og þvi þá ekki líka í metorðaflokka.
Eg fyrir mitt leyti tel mig ekki bæran að dæma um það,
hvort mannkynið græðir eða tapar á orðum og titlum. En
meðan slíkt er til, býst eg við að alt af verði nógir til að
taka sinn kross og bera hann möglunarlaust, hvenær sem
kóngurinn fer þess á leit, og eg get ekki endað þessi orð
betur en með þeirri ósk, að sem flestir mættu reynast
v e r ð i r sem hæstrar orðu eða titils; og fái einhver slíkt
dverðugur, þá óska eg að tigninni slái inn.
Guðm. Finnbogason.