Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1913, Page 55

Skírnir - 01.08.1913, Page 55
Nútima hugmyndir um barnseðlið. 247 er næmara og fastheldnara en í öðrum efnum. Margir, einkum konur, muna vel liti, lögun klæða, yfirleitt alt ytra útlit. Að sama skapi muna stjórnmálamenn ræður og atkvæðagreiðslur, íþróttamenn nöfn og afrek stéttar- bræðra sinna, ættfræðingar óralangar kynþáttaraðir o. s. frv. Menn muna það sem er þeim áhugamál. Hugljúf endurminning festir rætur. Ný og skyld atriði bætast við daglega og tengjast eldri reynsluforða. Þannig myndast ur áhugamálunum yfirgripsmikið kerfi, þar sem hvert at- riði styður annað eins og hermenn í þéttri og vel æfðri fylkingu. En af því að mörgum kemur illa að vera gleymnir á surnt sem leiðinlegt er, hafa komið upp ýmsir meistarar, sem þóttust geta læknað dauft minni með leynd- ardómsfullum aðgerðum. En engum munu kynjalyf þau hafa hjálpað, nema höfundunum sjálfum, sem gerðu þau sér að féþúfu. Hinsvegar hafa nútímarannsóknir leitt í ljós nokkur atriði um eðli minnishæfileikans, og ráð til að muna vel. En ekkert er leyndardómsfult við þau ráð; þau eru lítið annað en það sem heilbrigð skynsemi hefði átt að geta kent, ef fylgt hefði verið boðum hennar. Fyrst er að athuga hvenær á deginum flestum er létt- ast að læra, því að það skiftir miklu. Astand mannsins, líkamlegt og sálarlegt er sífelt að breytast, gengur í öld- um eftir innri og ytri ástæðum. Þreyta, svefnleysi, hung- ur, lasleiki, gremja, hrygð hafa djúp áhrif á námshæfileik- ann, eru öfl sem kennarar verða að gera ráð fyrir engu síður en skipstjórar ætlast á um áhrif hafstrauma og vinda. Þegar þess er ekki gætt er meir og minna unnið fyrir gýg, eins og stundum verður með undirbúning námsmanna fyrir próf. Þeir leggja oft á sig eins og ættu þeir lifið að leysa, vinna dag og nótt, svefnlitlir þreyttir, æstir, og reyna að gleypa í sig sem mestan fróðleik á sem styztum tíma, en sú þekking á sér venjulega skamman aldur. Veldur því fyrst og fremst þreytan, og það að meira berst að en melt verður. Til að geyma varanlega fengna end- urminning verður nýmyndun að fara fram, sambönd að leysast, og tengjast með nýjum hætti, en til þess þarf

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.