Skírnir - 01.08.1913, Síða 61
Heimur versnandi fer.
(Fyrirlestur um hnignun og úrkynjun hvítra manna,
fluttur d Akureyri í jan. 1913).
Meðan eg dvaldi í Edinaborg í fyrravetur var það eitt
sinn, er eg var staddur við uppskurð á oinu sjúkrahúsinu
þar, að þangað bar að ókunnugan mann, sem snéri sér til
mín, og bað mig um að koma sér á framfæri við yfir-
læknirinn. Þetta voru fyrstu tildrögin til þess að eg
kyntist dr. Kellogg, sem er frægur vísindamaður í Ame-
ríku, og nafnkendastur allra lækna, sem eru »vegetaríanar«
og berjast fyrir því að menn leggi niður að neyta kjöts
og fiskjar, en lifi mestmegnis á jurtafæðu.
Eg hefi skrifast á við þennan mann síðan, og haft
mikla ánægju af bréfum hans, en auk þess hefir hann
sent mér mörg af ritum sínum, og hefi eg lært margt gott
af þeim.
Kellogg hefir spurt mig mikið um lifnaðarháttu Islend-
inga. Það hefir verið honum mikið undrunarefni að vér
mörlandarnir skulum ekki vera búnir að hálfdrepa okkur
á öllu voru kjöt- og fiskáti gegnum aldaraðir. En eg hefi
huggað hann með því að við höfum haft grasagrauta og
rojólk og seinast en ekki sízt, skyrið okkar góða, sem ef
til vill hefir haldið heilsu okkar við — það sem hún er —
fram á þennan dag. Samkvæmt ósk hans, hefi eg sent
honum dálítið af súru skyri, sem hann ætlar að láta rann-
saka fyrir mig vísindalega, og sem hann þar að auki ætl-
ar að nota sem þétta til að geta búið sér til skyrslettu
sjálfur.