Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1913, Side 72

Skírnir - 01.08.1913, Side 72
264 Heimur versnandi fer. Erum vér Islendingar lika á hnignunarstigi? Þegar svo mikið hefir verið talað um framfarir Islendinga, eins og vert er, á siðustu hálfri öld, þá kynokar maður sér við að halda að vér séum, þrátt fyrir alt, á sama hnign- unarskeiði og hinar hvítu þjóðirnar. Þó verðum við að viðurkenna, að svipuð hnignunareinkenni má finna hjá okkur eins og þeim, og að einmitt hefir mest farið að bera á þessum einkennum á síðustu hálfri öld — eða sjálfu framfara-tímabilinu. Hvort íslendingar séu að ganga saman að vexti, eins og sagt er um Englendinga hér að framan, það skal látið ósagt, því um það vantar okkur skýrslur, en margir eldri menn vilja reyndar halda því fram, að sterkari og þol- betri hafi t. d. vinnumenn verið í ungdæmi sínu, en ná gjörist. Hvað snertir tannveiki, þá erum vér sömu syndinni seldir og útlendingar. Tannveiki hefir farið vaxandi svo hröðum fetum á síðasta mannsaldri, að það má telja und- antekningu að finna heiltenta menn. Mest sýnist tann- veikin vera í kaupstöðunum, en hún er líka óðum að breiðast út í sveitunum. Atvinna tannlækna vex með ári hverju, og ef svona gengur, líður ekki á löngu þangað til allir fullorðnir þurfa að fá sér tanngerfi, ef þeir vilja eigi japla matinn með gómunum berum. Þá verðum vér ennfremur með sorg að viðurkenna, að fæðingum fækkar árlega hjá oss, eins og í útlöndum. Síðan um 1850 hefir fæðingum fækkað úr 34,9 á hvert 1000' íbúa, niður í 27,2 1909. (Árið 1891 var fæðingartaian 31°/oo)- Eftir skýrslum að dæma, virðist hlutfallstala fæddra vera svipuð hér og á Engiandi, þar sem 26 fæð- ast á hvert 1000; en frjósemi Englendinga er talin minni en í öllum löndum Evrópu, að undanteknu Frakklandi. Og ekki mjólka íslenzkar mæður betur en útlendar, ef trúa má því sem konurnar segja sjálfar, og yfirsetu- konurnar fræða okkur læknana á. En það skal láta ósagt, hvort konum hafi farið mjög aftur í því á síðasta aldarhelming.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.