Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1913, Side 83

Skírnir - 01.08.1913, Side 83
Griordano Bruno. 275’ og án blóSsúthellingar. En þetta var venjulegur formáli, er mönn- um var ætlað að verða brendir á báli. Þá er Giordano Bruno' var birtur dómurinn, mælti hann þessum orðum: »Það ætla eg, að eigi munuð þór skjálfa minuur en eg, er þór birtið mór dóm þennan, en eg verð að hlýða«. 17. dag í febrúarmánuði árið 1600 var hann leiddur á bál og brendur á torgi því í Rómaborg, er Campo di fiore heitir. Með mestu hugarrósemi og frábærum hugar- styrk steig haiin á bálið. Eigi heyrðist kvein né kvörtun af munni honum. Hann, sem talinn var guðníðingur, trúvillingur, og fyrir þá sök brendur á báli, dó hugrakkur í trúnni á guð sinn. Slík var æfi þessa manns og svo lót hann líf sitt. Hver var þá kenning hans, er hann varð fyrir að láta líf sitt? Hór verða að eins greind nokkur atriði. Hann kendi, eins og Kopernikus, að jörðin, er vér byggjum, stæði eigi kyr í miðju alheimsins, heldur snerist um sjálfa sig og gengi í kring um sólina, svo sem hinar reikistjörnurnar. Hann keudi enn fremur, að fastastjörnurnar væru sólir og kring um þær gengju reikistjörnur. Það hafði Kopernikus ekki kent. Þessar kenuingar þóttu á þeim dögum endileysa ein og ganga guðlasti næst; nú veit hvert barnið, að þetta eitt er rótt. Hann kendi og, að heimurinn væri takmarkalaus. Röksemdir hans voru á þessa leið: »Þetta geturðu ályktað út frá þér sjálfum. Hvert sem þú fer, þótt þú farir í norðurátt, svo langt sem verða má, eða í suðurátt, eða hvert sem vera skal, þá flyzt sjóndeildar- hringurinn með þér, en þú verður sjálfur hvarvetna miðdepillinn. Þú getur eigi nefnt neinn stað svo fjarri, að eigi getir þú hugsað þór stað fyrir utan þann stað. Þú getur eigi nefnt neina tölu svo háa, að eigi getir þú hugsað þór aðra tölu hærri. En getir þú ekki fundið, sett nó hugsað heiminum takmörk, þá hlýtur hann að vera takmarkalaus. Þetta geturðu ályktað út frá guði. Hann er óendanlegur. Af óendanlegri orsök verður að stafa óendanleg af- leiðing. Og frá hugmynd vorri um óendanlegan guð, höfund alls, verðum vér 'að leiða það, að til sé óendanlegur fjöldi af heimum og verum. Hvað er guð? Guð er eitt og alt. Hann er frumorsök alls. Hann er síverandín í allri breytingu. Hann er sál sálnanna og eðli allra hluta. Því er það hvorttveggja, að guð er hægt að skyuja og eigi auðið að skilja. En því er hægt að skynja guð, að hann er að öllu leyti alstaðar, í náttúrunni og í sjálfum þór. Náttúran er auglýsing guðs. Þekking á náttúrunni er þekking á guði. Líf náttúrunnar er hreyfing, sífeld breyting úr einni mynd í aðra, sí- 18*

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.