Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1933, Page 112

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1933, Page 112
112 virðist ekki hafa gerst fyr en seint á öldum. Stífla er aldrei nefnd í fornritunum, nema á þeim stöðum í Landnámu og Grettissögu, sem til var vitnað að framan, og þar er orðið, eins og áður er sýnt, nafn á hólunum en ekki á dalnum. Nafnið mun heldur ekki koma fyrir í öðrum heimildum, sem eldri eru en siðaskiptin. Margar af jörðunum í dalnum eru nefndar í bréfum fyrir siðaskipti, en aldrei er nein þeirra sögð vera í Stíflu, heldur annaðhvort í Fljótum, eða í Eystrum Fljótum, eða i Knappstaðasókn. Nafnið Stífla hefi ég hvergi séð í bréfum fyr en í bréfi frá 1563. Þar er talað um jarðirnar Lund og Þrasastaði, »liggjandi báðar fyrir framan Stíflu í Fljótum*.1) Þá er Stífla því enn eins og í fornöld aðeins heiti á hólunum, en ekki á dalnum, því Lundur og Þrasastaðir eru báðir í dalnum fyrir ofan hólana, þ. e. í Stíflu, sem nú heitir. í jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns, (1709), þar sem annars byggðanöfn venjulega sýnast vera tilgreind, er Stífla ekki nefnd, sem sérstök byggð með því nafni, en hinsvegar hefir dalurinn verið búinn að fá Stíflu-nafnið eptir miðja 18. öld, því Ólafur Ólafsson talar um Knappstaðasókn »eller, som det med et andet Navn kaldes, Stiflen«.2) Að svo stöddu verður ekki um það sagt, hvenær nafn hólanna hefir færst yfir á dalinn, en í manntalinu frá 1703 er upplýsingu að finna, sem ef til vill skýrir það, hvernig á nafnbreytingu þessari stóð. Samkvæmt Grágás mátti skipta hreppum »í fjórðunga eða þriðjunga eða sem þeir vilja skipt hafa til matgjafa eða tíundaskiptis«.3) Var ákvæði þetta seinna tekið upp í Jónsbók, Kvg. 31 (Frfb. 9). Þessi heimild hefir sjálfsagt stundum verið notuð, þar sem hreppar voru mjög stórir. Nú voru Fljótin öll einn hreppur langt fram eftir öldum, og svo var enn 1703. Hefir það verið bæði fjölmennur og víðlendur hreppur, og mun honum líka frá fornu fari hafa verið skipt i smærri hluta. Hélst sú skipting enn 1703 og segir í manntalinu, að hreppurinn skiptist þá í sex fimmtunga Af þessu má sjá, að hreppnum hefir fyrst verið skipt i fimm hluta. Sú skipting hefir líklega haldist lengi en síðar var sjötta hlutanum bætt við, en þá var það orðin svo rótgróin venja, að tala um fimtungana, að þeirri málvenju var haldið, þótt partarnir yrðu sex. Þessir hreppshlutar hétu hver sinu nafni: Hraunafimtungur, Holtsfimtungur, Stíflufimt- ungur, Brekkufimtungur, Flókadalsfimtungur og Bakkafimtungur4). 1) Jarðabókarskjöl Skagafjarðarsýslu 9, i Þjskjs. 2) Oeconomisk Rejse. I. bls. 260. 3) Grg. I. b. 171, II. 249. 4) Manntal á íslandi árið 1703 bls. 307—312.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.