Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1974, Blaðsíða 17
RÓÐUKROSSINN í FANNARDAL
23
þess t. d. að önnur hönd Kristslíkneskisins var eitthvað laus í axlar-
liðnum en hin alveg fallin frá og bundin við líkneskið með spotta.
Skömmu eftir að Guðmundur tók við búsforráðum í Sigfúsarhúsi (um
1936) fékk hann Eirík Elísson trésmið til að lagfæra róðukrossinn,
hreinsa hann, festa hendurnar á líkneskið og lakkbera hann.42 Var
krossinum síðan komið fyrir á veglegum stað fyrir miðjum vegg í
borðstofu í Sigfúsarhúsi þar sem hann var þangað til þau hjónin,
Sigríður Jónsdóttir og Guðmundur, fluttust í nýtt hús að Þiljuvöll-
um 6 í Neskaupstað, í október 1968. Er þar virðulega um hann búið.
Hefur það jafnan verið siður á heimili þeirra hjóna að skreyta hann
með grenigreinum og öðru jólaskrauti um hver jól.
Lýsing Fannardalskrossins.
Fyrir um það bil 15—20 árum skoðaði ég Fannardalskrossinn í
Sigfúsarhúsi og fékk góðfúslegt leyfi Guðmundar til að fá Björn
Björnsson kaupmann, hinn kunna ljósmyndara, áður á Bakka í Nes-
kaupstað, nú í Reykjavík, til að gera fyrir mig og Þjóðminjasafnið
mynd þá af krossinum sem fylgir þessari ritgerð. Sumarið 1970
skoðaði ég krossinn svo aftur á heimili þeirra Sigríðar og Guðmundar,
mældi hann og gerði drög að eftirfarandi lýsingu á honum:
Viður í krossinum og Kristslíkneskinu virðist mér vera valin
fura eða lerki. 1 frásögnum, sem standa síðar í þessari ritgerð, kemur
að vísu fram önnur skoðun á efniviðnum.
Hæð langtrés krossins sjálfs er 56 sm en breidd þvertrésins 41%
sm. Róðan eða Kristslíkneskið sjálft er 44% sm á hæð en faðmlengd
þess 41 sm. Vinstri armur43 stendur lítið eitt út af krosstrénu
(hægra megin). Langfjöl krossins er 10 sm að breidd nema efst þar
sem hún breikkar mjög ört upp í 11% sm. Þverfjöl krossins er 11%
sm á breidd á endunum en tæpir 10 sm um miðjuna. Til allra enda
krossins er gat í miðju, nema að neðan þar sem gatið er mikið til
vinstri handar. Neðan á langfjölinni miðri er boglaga skora sem gæti
42 Þorvaldur Eiríkur Elísson fæddist á Skorrastað 29. október 1876, sonur
hjónanna Elísar Eiríkssonar og Lilju Sigurðardóttur, dáinn í Neskaupstað
27. maí 1962. Eiríkur var faðir Önnu, konu Bjarna Þórðarsonar fyrrverandi
bæjarstjóra sem skrifað hefur um krossinn og vitnað verður til síðar.
43 Þegar talað er um hægri og vinstri á Iíristslíkneskinu hér í ritgerðinni, er
miðað við líkneskið eins og maður væri (skjaldmerkjaleg táknun), en hægri
og vinstri á krossinum sjálfum er miðað við hann eins og hann eða mynd af
honum horfir við manni.