Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1976, Blaðsíða 41
SÁMSSTADIR f ÞJÓRSÁRDAL
45
stað“ og innlagt bréf frá Brynjúlfi til Jóns Árnasonar, dagsett „þann
21 September 1862“. I bréfinu segir m. a.: „Herra Sigurður getur
víst fengið að sjá hjá yður rústa uppdrættina sem eru á öptustu bls.
lýsingarinnar, en því er miður þeir eru ekki nærri góðir því fyrst
skoðaði eg rústirnar í mesta flýti, (því eg hálfstalst þángað). og
steig eg faðmatalið en fetaði ekki dró svo upp á blað strax og var
það betra en ekki neitt ef mer hefði ekki viljað það óhapp til að
tína blaðinu svo eg varð að tefla upp á minnið, og er það nokkurn-
veginn áreiðanlegt hvað lögunina snertir en um faðmatalið er eg
hræddari. Á Sámstaða uppdráttinn setti eg eingar tölur, því eg
mundi það ekki, en herra Sigurður mun eiga fetatalið og hafiiði þér
víst aðgáng að því, og í því tilliti ritaði eg þar við að rústinni væri
áður lyst (eg meina til uppdráttarins sem eg sendi honum í fyrra).—“
Ljóst er af þessu að Þjórsárdalsritgerð Brynjúlfs í Lbs. 578, 4to
frá 1862 er enn ein gerð Þjórsárdalsritgerða hans og eldri en þær
tvær sem áður hefur verið minnst á. Það kemur fram í bréfinu sem
fylgir Þjórsárdalsritgerðinni 1862 til Jóns Árnasonar að Brynjúlfur
hefur gert eitthvert rit um Þjórsárdalsrústir áður og sent það Sig-
urði Guðmundssyni 1861. Hlýtur sú spurning að vakna hvort þar
hafi verið frumgerð Þjórsárdalslýsinga Brynjúlfs. Því miður hef ég
ekki haft upp á neinu varðandi þetta í persónalíum Sigurðar Guð-
mundssonar málara sem geymdar eru óskrásettar í Þjóðminjasafni Is-
lands. Engu að síður eru nógar heimildir um hvað Brynjúlfur sendi
Sigurði 1861. Varðveitt er bréf frá Brynjúlfi til Jóns Árnasonar,
dagsett 22. september 1861. Þar segir m.a.: „Blaðið, sem ég legg hér
innan í, bið eg yður að gjöra svo vel og afhenda herra Sigurði málara.
Fylgir því virðingarfuil kveðja mín með þeim ummælum, að ég vona
hann virði vel viðleitni mína og taki viljann fyrir verkið.“26
1 svarbréfi sínu til Brynjúlfs, dagsettu 2. október 1861, greinir
Jón Árnason frá því sem var á þessu blaði handa Sigurði: „Eg hefi
afhent Sigurði málara uppdrátt yðar af Sámstöðum eða bæjarhúsum
þar, og biður hann mig skila til yðar kærri kveðju með þakklæti
fyrir yðar greinilegu og vel sömdu upplýsingu ásamt uppdrættinum,
sem honum líkar mætavel.“27 Af þessu er ljóst að Brynjúlfur hefur
gert uppdrátt og stutta lýsingu á rústum Sámsstaða í Þjórsárdal á
einu blaði árið 1861 og sent Sigurði málara. Þessi Sámsstaðaupp-
2« Brynjúlfur Jónsson (1953), bls. X.
27 Úr fórum Jóns Árnasonar I (1950), bls. 341—342.