Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1976, Blaðsíða 172
174
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Pi’óf. Jón Steffensen afhenti safninu á árinu eina milljón króna
til viðgerðar Nesstofu, en jafnháa upphæð hefur hann gefið áður.
Ekki var enn gengið frá kaupum hússins á þessu ári.
ByggSasöfn.
Á árinu voru veittar á fjárlögum kr. 5000 þús. til sveitarfélaga
sem skiptast í byggingarstyrk eða aðra styrki annars vegar og gæslu-
styrk hins vegar. Skiptist féð sem hér segir:
Byggðasafn Akraness og nærsveita, kr. 300 þús., byggingarstyrkur
og að auki kr. 700 þús. til viðgerðar kútters Sigurfara; Byggðasafn
Borgarfjarðar, kr. 150 þús., byggingarstyrkur; Byggðasafn Snæfell-
inga, til viðgerðar Norska hússins, kr. 300 þús.; safn Egils Ólafsson-
ar, Hnjóti, kr. 50 þús.; Þingeyrakirkja, viðgerðarstyrkur, kr. 300
þús.; Minjasafnið, Akureyri, kr. 600 þús., byggingarstyrkur; Byggða-
safn Þingeyinga, kr. 300 þús., byggingarstyrkur; Safnastofnun Aust-
urlands, rekstrarstyrkur, kr. 300 þús.; Byggðasafn Rangæinga, kr.
300 þús., byggingarstyrkur; Byggðasafn Vestmannaeyja, kr. 300 þús.;
Byggðasafn Árnessýslu v. sjóminjasafns, kr. 100 þús., byggingar-
styrkur; Gamlabúð, Eskifirði, kr. 200 þús., byggingarstyrkur; til
Sjóminjafélags, Hafnarfirði, kr. 200 þús. Alls eru þetta kr. 4100 þús.,
en afgangurinn var gæslustyrkir, og munu þeir þó hafa orðið nokkru
hærri en þeirri upphæð nemur.
Fá meiri háttar tíðindi gerðust í byggðasöfnunum á árinu, en þó
má nefna að á Akranesi var kútter Sigurfari fluttur að safninu og
komið fyrir þar til frambúðar. Viðgerð skipsins er hins vegar öll
eftir.
Hafist var handa um viðbyggingu við Kirkjuhvol, hús Minjasafns-
ins á Akureyri, en sú bygging náði rétt að komast undir þak um
haustið.
Sjóminjasafn.
Sjóminjasafnsnefnd, sem menntamálaráðherra skipaði til að gera
tillögur um væntanlegt sjóminjasafn og skýrt var frá í síðustu skýrslu,
skilaði áliti sínu. Var álitsgerðin fjölprentuð og dreift til allmargra
aðila, en ekki náði það mál lengra. Hins vegar var talsvert unnið að
söfnun sjóminja til væntanlegs safns, og hefur verið getið söfnunar-
ferðar um Strandir. Um vorið kom til safnsins gamall bátur með
færeysku lagi frá Nýjabæ undir Eyjafjöllum, smíðaður af Ólafi Ást-