Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1976, Blaðsíða 175
FRÁ FORNLEIFAFÉLAGINU
AÐALFUNDUR 1975
Aðalfundur Hins íslenska fornleifafélags var haldinn mánudaginn hinn 15.
desember 1975 í Fornaldarsal Þjóðminjasafns og hófst kl. 8.30. Fundinn sóttu
um 60 félagar og gestir.
Formaður Jón Steffensen setti fundinn og minntist síðan þeirra félagsmanna
sem spurst hefur að látist hafi síðan síðasti aðalfundur var haldinn. Þeir eru:
Benedikt Stefánsson fulltrúi, Reykjavík.
Guðmundur R. Jónatansson, Reykjavík.
Gunnar Gunnarsson rithöfundur, Reykjavík.
Jón Guðnason skjalavörður, Reykjavík.
Ósvaldur Knudsen málarameistari, Reykjavík.
Sigurður Grímsson lögfræðingur, Reykjavík.
Steingrímur Jónsson rafmagnsstjóri, Reykjavík.
Steinn Emilsson kennari, Reykjavík.
Þórður Eyjólfsson hæstaréttardómari, Reykjavík.
Þorvaldur Þórarinsson lögfræðingur, Reykjavík.
Risu fundarmenn úr sætum í virðingarskyni við minningu þessara látnu félaga.
Formaður skýrði þessu næst frá félagafjölda, sem nú er samtals 794. Heldur
fjölgar í félaginu, þótt hægt fari.
Árbók kvað formaður að væri heldur í fyrra lagi að þessu sinni og mundi
Árbók 1975 koma út um mánaðamót janúar-febrúar 1976. Skýrði formaður frá
að búast mætti við einhverri hækkun félagsgjalda til að standa straum af aukn-
um kostnaði, en þó mundi sú hækkun varla verða tilfinnanleg fyrir félagana.
Þessu næst las féhirðir reikning félagsins fyrir árið 1974. Reikningurinn er
óendurskoðaður vegna þess að annar endurskoðunarmaður félagsins lést á árinu
en hinn er veikur. Mun því reikningurinn verða endurskoðaður síðar.
Þá var gengið til stjórnarkosningar. Endurkosinn var formaður Jón Steffen-
sen, skrifari Kristján Eldjárn, féhirðir Gísli Gestsson, varaformaður Magnús
Már Lárusson, varaskrifari Þórhallur Vilmundarson og varaféhirðir Þór Magn-
ússon. Kosnir voru þrír fulltrúar til aðalfundar 1979, Björn Þorsteinsson, Gils
Guðmundsson og Halldór J. Jónsson, allir endurkjörnir.
Endurskoðunarmenn voru kosnir Höskuldur Jónsson ráðuneytisstjóri og Páll
Líndal borgarlögmaður.
Þá gaf formaður ræðumanni kvöldsins orðið. Hörður Ágústsson skólastjóri
flutti erindi með skuggamyndum: Stafsmíð á Stóru-Ökrum. Fjallaði erindið um
12