Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1976, Blaðsíða 166
168
ÁEBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
meðal stúdenta en nokkru sinni fyrr, og var hafinn undirbúningur að
miklu söfnunarátaki um land allt sumarið 1976. Verður nánar greint
frá árangri þeirrar söfnunar í skýrslu þess árs.“
Sýningar og aösókn.
Á árinu komu 32194 skráðir gestir í safnið, en tala gesta er raun-
verulega talsvert hærri, þar sem allmargir koma alltaf utan reglu-
legs sýningartíma, sem ekki eru taldir. Skólanemendur í Reykjavík
og nágrenni heimsóttu safnið eins og verið hefur reglubundið á morgn-
ana fyrri hluta vetrar og stjórnaði Björn Birnir kennari og leiðbeindi
nemendum á vegum Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur. Sýningartími
safnsins var hinn sami og verið hefur, frá miðjum maí til miðs sept-
ember alla daga kl. 13.30—16.00, en á öðrum árstíma sunnudaga,
þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga á sama tíma.
Safnið hafði sjálft eina sérsýningu í Bogasal sem kölluð var „Safn
Sigurðar málara“, og var þar sýnt meginið af þeim gripum sem komu
til safnsins fyrstu tíu árin meðan Sigurður annaðist það. Var sýn-
ingin haldin í tilefni þess að árið áður voru 100 ár liðin frá andláti
Sigurðar. Hjálmtýr Heiðdal auglýsingateiknari setti sýninguna upp,
en aðgangur var ókeypis og mæltist hún vel fyrir. Hana sóttu 1718
manns.
Aðrar sýningar í Bogasal á árinu voru þessar:
Leifur Þorsteinsson, ljósmyndasýning, 5.—13. apríl.
Listiöja í dagsins önn. Kvennavinna. Norræn farandsýning á veg-
um Kvenfélagasambands Islands, 13.—26. júní.
Alfreð Flóki, teikningar, 23.—31. ágúst.
Hringur Jóhannesson, málverkasýning, 6.—14. sept.
Rigge Gorm Holten, teikningar, 20.—28. sept.
Sýning á myndum Drífu Viðar, 18.—26. okt.
Katrín Ágústsdóttir, batik, 15.—23. nóv.
Dagur Siguröarson, málverkasýning, 6.—14. des.
Safnaulci.
1 aðfangabók safnsins voru færðar 103 færslur, oft margir gripir
í hverri færslu eins og venja er til. Helstu gripir sem safninu bárust
eru sem hér segir:
Teilcningar frá Reykjavík frá árinu 1859, eftir Victor Hansen, gef.
Preben Hansen læknir, Kaupmannahöfn; biti úr húsi með höfðaletri,