Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1976, Blaðsíða 169
SKÝRSLA UM ÞJÓDMINJASAFNIÐ 1975
171
verslunarstaður á miðöldum, og Blöndusteinn á Hrútafelli undir
Eyjafjöllum.
Ferðir safnmanna.
Ekki er ástæða til að fjölyrða sérstaklega um ferðir safnmanna
innanlands, sem eru að vonum margar og margvíslegar í þágu forn-
leifarannsókna og fornleifavörslu og margs annars sem safninu við-
víkur. Er þó rétt að nefna ferð þj óðminj avarðar um Strandir í júlí,
sem farin var til að leita sérstaklega eftir minjum frá hákarlaveið-
um þeirra Strandamanna og athuga aðrar fornminjar norður þar.
Sú för bar þann árangur, að bjargað var til byggðasafnsins á Reykj-
um tveimur gríðarstórum hákarlalýsisköggum frá Ófeigsfirði og
Finnbogastöðum og þremur stórum bræðslupottum frá Finnboga-
stöðum, en hinir stóru hákarlahjallar eru allir fallnir. Þá voru sótt-
ar gamlar bátavélar norður að Kjörvogi, frá fyrstu áratugum vél-
bátanna, og fluttar í geymslu Þjóðminjasafnsins. Sá Pétur G. Jóns-
son um þessa fiutninga.
Utanlandsferðir voru sem hér segir:
Gísli Gestsson, Elsa E. Guðjónsson og Margrét Gísladóttir fengu
styrk frá menntamálaráðuneytinu og safninu til að sækja fund og
námskeið um viðgerðir fornleifa og textíla í Stokkhólmi. Þetta nám-
skeið var liður í viðgerðarnámskeiðum þeim, sem haldin hafa verið
undanfarin ár og kostuð að hluta til af Norræna menningarmála-
sjóðnum.
Halldór J. Jónsson sótti sams konar námskeið í Finnlandi um
geymslu og meðferð ljósmynda og ljósmyndaplatna.
Þjóðminjavörður sótti fund í Halifax í janúar í nefndinni sem fjall-
ar um rannsóknirnar í L’Anse-aux-Meadows á Nýfundnalandi, svo
og fund í L’Anse-aux-meadows í ágúst um sama efni. Einnig sótti
hann fund í Bergen í febrúar og Helsingfors í desember í nefnd þeirri
sem annast skipulag viðgerðarnámskeiðanna.
Gamlar byggingar.
Eins og ævinlega tekur viðhald og viðgerðir gömlu bygginganna
kúfinn af fjárveitingu safnsins, en þær eru eðlilega gríðar fjárfrek-
ar. Þetta er þó einn mikilvægasti þáttur minjaverndarinnar og má
í rauninni hvergi slaka á í þeim efnum og heldur þarf að leitast við
að fjölga þeim tegundum bygginga, sem safnið varðveitir, því að ein-