Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1976, Blaðsíða 111
SÁMSSTADIR I' ÞJÓRSÁRDAL
113
30. mynd. Kambar fundnir í kamarstóft á Sámsstöðum. Hinn efri, fundaskrá nr.
31, er nú 15.8 sm langur en hinn neðri, fundaskrá 32 er nú H.2 sm að lengd.
kambur hefur verið numinn af því svo að það yrði sem sléttast. „Bein“
merkt á lóðskurð L.
20. Brot af járngjalli, úr syðra sáfari í búri. Stærsti járngjallsmolinn lá nærri
nr. 19, mesta haf 11.5 sm, þyngd 435 g. Þessir járngjallsmolar vega samtals
540 g.
21. Mjórri endinn af herðablaði úr nautgrip, mjög skemmt. „Bein“ merkt á lóð-
skurði P—O.
22. Steinkola eða brot úr steinbolla, mesta umfang 13.6 sm, fundarstaður
merktur á lóðskurð L.
23. Kljásteinn, mesta lengd 11.6 sm, mesta breidd 7.6 sm og mesta þykkt 3.3
sm, þyngd 400 g, boraður. Fannst í syðra sáfari í búri í moldarblöndnum
vikri II.
24. Brot úr járngjallsköku, jaðarbrot, mesta lengd 12.3 sm, mesta breidd 10.3
sm, þyngd 500 g. Fundið í syðra sáfari í búri.
25. Þrjú járnnaglabrot, tvö þeirra gætu verið af rónöglum. Fundið í syðra
sáfari í búri í moldarblöndnum vikri II.
26. Brot af kúskel, fundið í syðra sáfari í búri í moldarblöndnum vikri II.
27. Kopar- eða bronsþynnubrot, ferhyrnt, 1.5 x 0.8 sm og um 1 mm að þykkt.
Fundið í nyrðra sáfari í búri í gulum vikursandi.
28. Brot úr járngjallsköku, mesta haf 7.4 sm, þyngd 260 g. Fundið nálægt nr.
21 við eystri langvegg búrs.
29. Brot úr beislisútbúnaði úr bronsi. Brotið er nú með tveimur örmum, annar
er iiljulaga í endann, 4.9 sm langur, hinn með um 1 sm víðu gati á endanum,
8