Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Blaðsíða 64
68
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
samskonar sívalningum og glerperlum í ýmsum litum. Sörvið er 25 cm á
lengd og 5 að breidd með kögrinu og frá því um 1000-700 f.Kr.
54. Fíngerð festi með perlum og steinum í brúnum og bláum litum með
gylltum doppum og kúlum á milli, 44 cm löng. Bráðabirgðaathugun í smá-
sjá leiddi í ljós tæringu bæði á málmi og sörvistölum, sem bendir til þess að
gripurinn hafi legið í jörð og sé gamall. Kopar- eða bronsúrfellingar sáust í
málmhlutunum, og bendir það til að þetta sé gullhúðað brons eða kopar.
Málmdoppurnar gætu verið frá tímum miðríkisins en aðrir hlutar festarinn-
ar gætu vísast verið yngri.
55. Fíngerð festi með bláum og brúnum gler- og steinperlum. A milli
steinanna og perlanna koma viðhengi, samsett úr perlum og gulli, og
mynda gisið kögur. Festin er á spjaldi og er 38,5 cm á lengd. Gylltu hlutarnir
eru gullhúðað brons og sést tæring bæði á málmi og perlum. Gripurinn hef-
ur því legið í jörðu. Sumir hlutar festarinnar, svo sem bláu perlurnar, gætu
verið frá tímum miðríkisins en hinir hlutarnir gætu verið talsvert yngri.25
56. Lítil kinga úr fægðum kornskum rauðsteini frá tímum nýríkisins.
Hún líkist keri með tveim handarhöldum og gæti táknað sólina eða tunglið
í bát. Hún er 3 cm á lengd og 2,5 að breidd.
57. Hálsfesti úr málmi, gullhúðað brons eða kopar. Öll smelt með marglit-
um glerungi, um 46 cm að lengd og 2,3 að breidd. Hún er sett sarnan úr sex-
tán plötum sem festar eru saman með fínum hlekkjum. Miðplata og lás eru frá-
brugðnar hinum. Önnur hver plata er ferhyrnd með lágt upphleyptum mynd-
um af vængjuðum verum, helgidýrum svo sem nautinu Apis o.fl. Önnur
hver er sporöskjulöguð, dálítið kúpt að ofan, og í þær er fest tordýfils-
innsigli skorið úr steini. Þeir eru flestir gráleitir, en misdökkir. A miðplöt-
unni er mynd af guði eða manni með mikið höfuðdjásn og stóra uppsnúna
vængi. Maðurinn krýpur á annað hné. Lásplatan er talsvert stærri en allar hin-
ar, efst á henni er upphleypt andlitsmynd með fjaðraskreyttu höfuðdjásni.
Sitt hvoru megin sitja sfinksir, önnur með mannshaus hin með fuglshaus. Báð-
ar eru með háan höfuðbúnað. Ofan á plötuna miðja er greyptur grænleitur
12. mynd. Gripur nr. 52.
Steinasörvi frá um 1000-
799 f. Kr. Ljósmynd
Guðmundur J.
Guðmundsson.