Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Blaðsíða 114
118
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
veggur þessi hafi verið hlaðinn á fyrri hluta á 18. aldar. Mögulegt að hann
sé frá sjöunda áratug 18. aldar þegar vísitatíur benda til að gert hafi verið
við garðinn þó hvergi sé þess getið beint að vesturveggurinn hafi verið end-
urhlaðinn. Engar grafir voru vestan við stéttina nr. 9 og bendir það sterk-
lega til að nr. 3 sé kirkjugarðsveggur sá sem Neshverfingar hlóðu 1787-91.
Kirkjan var aflögð 1797 og því hefur viðbótarplássið, sem skapaðist í garðin-
um, aldrei verið nýtt. Það styrkir þessa tilgátu að veggurinn nr. 7 virðist
hafa verið vísvitandi jafnaður út (10) og nr. 3 hlaðinn þar á eftir.
Af neðri lögunum í skurði ND sýnist Ijóst að vesturmörk kirkjugarðsins
hafi um afarlangt skeið verið á því bili sem nr. 7-9 nær yfir. Lögin vestan við
þessa línu eru allt annars eðlis en þau sem eru austan við og er ótvírætt að
úrgangslögin nr. 12, 20 og 22 tengjast híbýlum manna en ekki guðshúsi.
Austurenda nr. 12 má raunar telja austurmörk bæjarhólsins í Nesi og ösku-
hauganna utaní honum. Erfiðara er að túlka grjótlögnina nr. 21. Hún er
áreiðanlega miklu eldri en grafirnar sem komu í ljós í skurðinum, en hversu
miklu eldri og hvaða hlutverki hún hefur gegnt verður að liggja á rnilli hluta.
Á grunni þessara upplýsinga má gera sér allgóða grein fyrir takmörkum
kirkjugarðsins og er á mynd 5 gerð tilraun til að endurgera umfang garðsins
sem mælt var fyrir 1787. Kirkjutóft sést á yfirborði, en hvort það er grunnur
síðustu kirkjunnar eða einhverrar eldri er ómögulegt að segja nema með
uppgrefti. Hvort sem er má ætla að hvortveggja kirkjan, sú sem byggð var
1675 og sú frá 1785, hafi staðið innan þeirra takmarka sem sýnd eru á 5. mynd.
Ef garðurinn nr. 3 er kirkjugarðsveggurinn frá 1787-91 eins og hér hefur
verið talið líklegt, og tóftin er eftir yngstu kirkjuna, þá hefur hún staðið al-
veg syðst í garðinum. Hún gæti hafa verið byggð á sama grunni og eldri
kirkjan eða við hlið hennar.
Ef kirkjugrunnurinn er eftir yngri kirkjuna og hún var byggð við hlið
hinnar eldri þá er líklegra að hún hafi verið byggð sunnan við eldri kirkj-
una, sem þá hefur verið nær miðju garðsins (og þá undir Neströð sem nú
er). Kirkjugarðsveggurinn frá 1787-91 hefur þá verið á sama stað og eldri garð-
ur, að öðru leyti en því að hann hefur verið færður út um 6 m til vesturs. Ef
tóftin er hinsvegar eftir kirkjuna frá 1675 þá gæti yngri kirkjugrunnurinn ver-
ið norðan við og þar með undir Neströð og nær miðju garðsins frá 1787-91.
Grafirnar sem fundust vestan við SV hornið á húsinu Neströð 7 sýna að
kirkjugarðuinn hefur í eina tíð náð mun lengra til suðurs en stefnan á garð-
inum frá 1787-91 bendir til. Mögulegt er að 1787 hafi verið mælt fyrir alveg
nýju kirkjugarðsstæði, þannig að garðurinn hafi verið færður út til norðurs
ekki síður en vesturs, og væri það í samræmi við fyrirskipun biskups frá
1780. Hitt er einnig mögulegt að syðstu grafirnar séu miklu eldri og að garð-
urinn hafi verið færður í norður löngu fyrir 18. öld.